Stétt með stétt - 01.05.1941, Blaðsíða 27
STETT MEÐ STETT
23
ekki í augnablikinu hvað segja skyldi.
— 1 ráðleysinui ráfaði hann stamandi
þrjú skref inn á herbergisgólfið. —
Þar stóð hann nú og virti hana, hálf
nakta, fyrir sér. —- Hún draup höfði
með hendurna krosslagðar á magan-
um og kreisti morgunsloppinn að
óstyrkum líkama sínum. — Hann sá
þrýstin, nærri fullvaxta brjóstin mill-
um lafanna á sloppnum hennar.
Sterkar ástríðuþrungnar kenndir
fóru um líkama hans. og með ósjálf-
ráðri hreyfingu lagði hann lófa sinn
á höfuð hennar. Það var blíða, með-
aumkvun og ást í þessari ósjálfráðu
hreyfingu hans, en á þessu augna-
bliki var honum það ekki Ijóst. Þeg-
ar hún fann hendi hans hvíla létt
á höfði sínu, var eins og allan mátt
drægi úr líkama hennar. — Ö — guð
— hún hvíslaði það svo lágt að hann
heyrði það ekki og höfuð hennar hneig
hægt og máttJaust að brjósti hans.
— Það blikuðu tár í augum hennar.
— Hún grét.
— Úti flugu fuglarnir syngjandi
grein af grein. — Sólin vermdi jörð-
ina með ylheitu geisiunum sínum. —-
Kl. 11 settist maríuerla á glugga-
karminn á herbergi hennar. — Hún
hneygði sig og beygði og dýggaði stél-
inu og sendi fallega tóna út í iðandi
náttúruna. Þannig naut hún lífsins
á gluggakarminum í nokkrar mínút-
ur, en þá hrökk hún við og flaug
hrædd í burtu. Inni í herberginu hafði
hún heyrt rödd sem sagði: — Ö —
guð minn — kl. er orðin 11, við verð-
um að klæða okkur,
Eáhiniarstcfa EejtjaTiWæjar
Bankastræti 7 — Sími 4966
Karlmannadeildin,
opin kl. 10—12 f. h. og 1—2 e. h.
Kvennadeildin,
opin kl. 2—5 e. h.
Atvinnurekendur
og heimilisfeður.
Þrátt fyrir h'ð breytta viðhorf
í atvinnumálum, hefir stcfunni
tekist í flestum tilfellum að ráða
fram úr starfsmanna og verka-
mannaþörf vinnuveitenda.
Gleymið því ekki, að viðskipti
við ráðningastofuna spara ykk-
ur tíma og peninga.
öll aðstoð án endurgjalds.
Ráðningarskrifstofa Reykjavlkurbæjar.
Körfugerðin
Bonkastræti 10
Sími 2165
Yöggur
Þvottakörfur
Bréfakörfur
Körfustólar
og önnur húsgögn.