Vaka : tímarit um þjóðfélags- og menningarmál - 01.06.1938, Side 4

Vaka : tímarit um þjóðfélags- og menningarmál - 01.06.1938, Side 4
VAKA í. árgangur . 2. ársfjórðungur Pálmi Hanne.sHon: Kerlingarf j öll Sæluhús Ferðafélagsins. Kerlingarfjöll eru eitt fegursta og hrikalegasta fjallabákn á landi hér. Þau rísa í þéttri fylkingu suS- vestur frá Hofsjökli og teygja bjarta tinda úr litverpu líparíti hátt yfir dimmleitar hœðir og örœfaöldur. Mjög eru þau dölum skorin og djúpum hamragiljum, sem hríslast milli hárra röðla upp undir eggjar og skörð. Norðan í fjöllin ganga Hvera- dalir, djúp lœgð með skriðurunnum hlíðum og krókóttum giljum í botni. Þar er slík býsn brennisteinshvera, að ekki getur annars staðar meira á íslandi og, ef til vill, ekki á allri jörðunni. Óvíða eða livergi gangast andstœður islenzkrar náttúru fastar að né hafa skapað furðulegra for- virki stœltra lína og litaauðs. Hvarvetna kraumar og ymur hin bláleita brennisteinsvella, og gufustrókar stíga upp um ótal glufur og göt í grotn- aðri jarðskorpunni, sem skartar í öllum blœbrigðum regnbogans: gulum, rauðum, grcenum, bleikum og bláum. En hátt í lofti Ijóma hinir Ijósu tindar í ríkilátri ró og þögn. Áður fyrr var fáferðugt í Kerlingafjöllum. Menn komu þangað eftir tveggja eða þriggja daga ferð úr byggð og leit- uðu sér tjaldstaðar með hófatak hestanna, hinn undarlega óð liásléttunnar, hljómandi fyrir eyrum sér. Nú er öldin önnur. Bílfœr leið liggur upp að Ásskarðsá, norðan undir fjöllunum, og nú stíga menn út úr upphituðum bílum við hið vistlega sœluhús, sem Ferða- félag fslands hefir reist að vegarenda. Ekki er því að leynu, að okkur, sem annað munum, finnst slík ferðalög fremur bragðdauf og æfin- týrasnauð. En á hitt er þó fyrst að líta, að nú gefst miklu fleira fólki en áður kostur þess að komast á þennan stórfenglega stað og njóta þar liinnar voldugu náttúru og heilnœma háfjallalofts. Af tindum Kerlingarfjalla er, að líkindum, mest víðsýni á öllu fslandi, og er sagt, að þaðan sjáist til hafs sunnan lands og norðan. En i hlíðum fjallanna eru fannalög svo mikil, að þar mun haldast skíðafœri allt sumarið. Það er því spá mín, að komandi kynslóðir innlendra og erlendra œskumanna muni una þar löngum stundum við vetraríþróttir þann tíma árs, þegar nóttin er ekki heima. 82

x

Vaka : tímarit um þjóðfélags- og menningarmál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vaka : tímarit um þjóðfélags- og menningarmál
https://timarit.is/publication/1746

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.