Vaka : tímarit um þjóðfélags- og menningarmál - 01.06.1938, Side 6
VAKA 1. árgangur . 2. ársfjórðungur
Þar geta þeir starfað saman á tak-
mörkuðum grundvelli, að því að
verja þjóðernið, frelsið og lýð-
ræðið. Þeir geta taarizt móti á-
fengisbölinu. Þeir geta stutt lög-
hlýðna og frjálsa æsku í landinu
til að sýna dáð og dug í verki,
bæði sem einstakir dugnaðarmenn
og sem ötulir félagsmenn, hver á
sínu sviði.
Löghlýðnir unglingar, er fylgja
að málum einhverjum af lýðræð-
isflokkunum þremur, geta starfað
saman í fullu bróðerni að þessum
ákveðnu málum. Síðar meir, þegar
út í starfslífið kemur, skilja leiðir
þeirra um mörg mál dagsins. En
þá muna þeir jafnan, að þeir hafa
verið Vökumenn, að þeir hafa fyrr
og síðar staðið móti erlendu kúg-
unarvaldi, móti byltingu, móti á-
fengisbölinu, móti iðjuleysinu og
dáðleysi þeirra, sem ekki vilja
vera sjálfbjarga.
Sumir forráðamenn skóla í
landinu hafa misskilið svo að-
stöðu sína, að þeir hafa amazt
við starfi Vökumanna í skólun-
um. Þeir hafa ekki getað varizt
nema að litlu leyti að öfgastefn-
urnar, studdar af erlendu valdi,
hefðu undirtökin í skólunum. Þeir
hafa ekki skilið, að Vökumenn
vinna ekki fyrir neinn flokk held-
ur fyrir þjóðina sem frjálsa menn-
ingarþjóð. Með því, að unglingar
úr öllum lýðræðisflokkunum þrem
taki höndum saman um að skilja
öfgalaust og gremjulaust tilkomu
84
byltingarflokkanna í þjáðum
hernaðarlöndum, er skapað tæki-
færi fyrir þann mikla meirihluta
af æsku landsins, sem framtíð
þjóðarinnar hvílir á, að færa glögg
rök fram gegn skaðsemi bylting-
arkenninganna í frjálsum og
menntuðum löndum, og að meta
fyllilega þá blessun sem margra
alda frelsisbarátta hinna beztu
manna hefir búið frjálsum og vel
siðuðum nútímaþjóðum.
Hin miklu átök, sem þjóðin hef-
ir gert á síðasta mannsaldri, til
að fjölga menntastofnunum og
bæta hinar eldri, leggur mikla
skyldubyrði á herðar þeirrar æsku
sem er að vaxa upp í landinu. Það
væru vesæl laun fyrir áhuga og
fórnir foreldranna, ef einhver
verulegur hluti af æsku landsins
kæmi út úr hinum dýru og góðu
skólum kalinn á hjarta, trúlaus á
lífið, landið og frelsið, frábitinn
heiðarlegri vinnu, fús að lifa sem
ómagi á öðru fólki, beygður undir
oki sterkra nautnalyfja.
Vökumannahreyfingin er bezta
þekkta úrræðið móti þessari
hnignun. Þar geta beztu menn
skólanna stutt sig við áhugamenn
úr öllum lýðræðisflokkunum um
að efla dug og dáð æskunnar til
að lifa frjálsu menningarlifi á
íslandi.
Fyrir slíka hreyfingu hæfa hin
snöggu, sterku tök. Þau eiga við
æskuna og þau hjálpa til að gefa
henni trú á lífið. Þegar Runólfur