Vaka : tímarit um þjóðfélags- og menningarmál - 01.06.1938, Page 7
VAKA 1. árgangur . 2. ársfjórðungur
Sveinsson, skólastjóri á Hvann-
eyri, sameinar alla pilta á skólan-
um í fyrravetur um að þola engan
ölvaðan aðkomumann á skemmt-
un skólans, þá byrjar nýtt tímabil
í uppeldissögu landsins. Hinar
drykkjuhneigðu liðleskjur, sem
vildu fá að óvirða skólann með
návist sinni, reyndu að skapa
fjandsamlegt andrúmsloft í hér-
aðinu gegn þessari nýjung. Þá
skorti þá málstað og bolmagn.
Runólfur hafði sitt lið tilbúið, 50
röska, samtaka menn. Þeir ætluðu
ekki að láta ómenningu drykkju-
skaparins setja blett á Hvanneyri.
Og þeir sigruðu. Vínið er útlægt
af staðnum. Og hin nýja mann-
dómsbylgja nær út yfir héraðið,
og síðar um landið allt.
Byltingarstefnurnar höfðu um
nokkur undanfarin ár sýkt hið
fagra Borgarfjarðarhérað að
nokkru leyti eins og ýmsar aðrar
byggðir. Hin árlegu íþróttamót við
Hvítá voru að verða umtalaðar
vandræðasamkomur, þar sem
drykkjuslarkarar settu sitt merki
á mannfagnaðinn. Út frá hinum
einföldu reglum Vökumanna var
hafizt handa þar í sumar sem
leið. Fjöldi ungra manna var í
löggæzlusveit á mótinu, undir ör-
uggri lögreglustjórn. Hið nýja
skipulag var auglýst fyrir-
fram. Drykkj uskaparómenningin
lagði þegar á flótta. Æskan í
Borgarfirði vann glæsilegan sigur,
á þeim öflum, sem voru aö draga
hina góðu byggð niður án eðlilegs
tilefnis.
Runólfur Sveinsson hefir mótað
dagskrána í vissum þætti áfengis-
baráttu Vökumanna. Hraustir fé-
lagsmenn eru tilbúnir að gerast
sjálfboðaliðar til aðstoðar skóla-
stjórum, hreppstjórum og lög-
reglustjórum til að þurrka sýnileg
áhrif ofdrykkjunnar úr almennu
og opinberu lífi. Það þarf dálítinn
manndóm til að leysa þessa raun
en ekki meiri en þann, sem heil-
brigð æska er jafnan fús til að
sýna, þegar tækifæri gefast.
Bjarni Bjarnason skólastjóri á
Laugarvatni hefir mótað sókn
Vökukvenna í áfengismálinu. Þær
hafa skipulögð samtök, byggð á
fullkominni athugun um að neita
að umgangast karlmenn, sem eru
undir áhrifum áfengis. Drukkinn
maður er á þann hátt útlægur ger
úr samkvæmislífinu með hinum
ákveðna og réttláta dómi siðfág-
aðra kvenna, meðan hann er sjúk-
lingur áfengiseitrunarinnar. Þessi
tvennu úrræði í sókn ungra
kvenna og ungra manna til að
lyfta þjóðinni upp úr dýki áfeng-
isómenningarinnar, eru svo sterk
og heilbrigð, að þau munu um
langan aldur móta menningar-
starf íslendinga.
Á Laugarvatni var haldin hátíð
fullveldisins 1. des. síðastliðinn.
Á heimilinu eru 200 menn. Að-
komumenn voru 500. Vín sást á
þremur. Tveir héldu sig úti. Einn
85