Vaka : tímarit um þjóðfélags- og menningarmál - 01.06.1938, Side 11

Vaka : tímarit um þjóðfélags- og menningarmál - 01.06.1938, Side 11
VAKA 1. árgangur . 2. ársfjórdungur tungu snerti. Tékkneskan breidd- ist mjög út og bæirnir, sérstaklega Prag, sem áður höfðu verið þýzkir að mestu, urðu nú tékkneskir. Mikið land komst í hendur tékk- nesku bændanna og brátt varð keisarinn að láta undan vissum kröfum hinna tékknesku þjóðern- issinna. Háskólanum í Prag var t. d. skipt í þýzkan og tékkneskan háskóla. Árið 1882 varð hinn mikli foringi Tékka, Masaryk, sem hafði líka þýðingu fyrir Tékkoslóvakíu eins og Jón Sigurðsson fyrir ís- land, prófessor við hinn tékkneska háskóla. -------- Upprunalega stóð hann nnsnra k einn uppj j stjórnmál- unum, en myndaði síðan sinn eig- in flokk, er stóð í nánu sambandi við aðrar slavneskar þjóðir, og nú var frelsisbarátta Tékka ekki lengur barátta um heimastjórn í landinu, heldur fyrir algerðu full- veldi. Áhangendur Masaryk voru því, sem vonlegt var, skoðaðir sem uppreisnarmenn, er væru hættu- legir fyrir ríkisheildina. Þegar heimsstyrjöldin brauzt út, var flokkur Masaryk og öll fé- lög honum áhangandi fyrirboðin og fjölda af foringjum Tékka varpað í fangelsi og 5000 voru hengdir. Sjálfur komst Masaryk til Frakklands og Englands og settist að í London til að vinna að því, að Tékkarnir fengju fullveldi sitt viðurkennt af Austurríki, þeg- ar stríðinu væri lokið, ef Banda- mönnum tækist að vinna sigur yfir Miðveldunum. Gekkst hann síðan fyrir því að stofna nefnd af Tékkum, sem bjuggu erlendis, til að berjast fyrir fullveldi landsins, og var dr. Eduard Benes, síðar forseti Tékkoslovakiu, aðalaðstoð- armaður hans. 1916 var nefndinni breytt í tékkneskt ráð og varð Ma- saryk forseti þess. í stríðinu reyndust Tékkar Austurríki mjög ótryggir. Fjöldi tékkneskra hermanna hljóp und- an merkjum og gekk yfir til Rússa, og var tékkneskur her myndaður í Rússlandi. í stríðslokin heppn- aðist Masaryk að fá Frakkland, England og Bandaríki Norður- Ameríku til að viðurkenna sjálf- stæðiskröfur Tékka og skoða þá sem bandamenn í stríðinu. Var nú 89

x

Vaka : tímarit um þjóðfélags- og menningarmál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vaka : tímarit um þjóðfélags- og menningarmál
https://timarit.is/publication/1746

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.