Vaka : tímarit um þjóðfélags- og menningarmál - 01.06.1938, Page 14

Vaka : tímarit um þjóðfélags- og menningarmál - 01.06.1938, Page 14
VAKA 1. árgangur . 2. ársfjórðungur aðalbandamenn Frakka móti Þjóðverjum, en eftir byltinguna í Rússlandi tóku þeir þátt í stríði á hendur Bolschevíkum, og gat þá ekki komið til mála, að nokkurt bandalag yrði myndað á móti Þjóðverjum. Frakkar stefndu þess vegna að því, að komast í öruggt bandalag við Pólverja, Tékka, Rú- mena og Jugoslava. Þeir gerðu vináttusamning við Pólverja árið 1921 og gengust ennfremur fyrir því, að hið svonefnda Litla banda- lag var stofnað. í því voru Rú- menía, Jugoslavía og Tékkoslóva- kía. Tilgangur þess var bæði að hindra allar tilraunir til að rjúfa Versaillessamninginn og til að vinna gegn áhrifum ítala á Bal- kan. Frakkar gerðu ýmsar ráð- stafanir til að styrkja þessi ríki, því að franskir stjórnmálamenn sáu það fyrir, að Þjóðverjar myndu, hvenær sem tækifæri gæfist, reyna að rífa sig undan áhrifum Versaillessamningsins. Af þessum löndum var Tékko- slóvakía að ýmsu leyti lang-þýð- ingarmest. Fyrst og fremst liggur hún í hjarta Evrópu og myndar þröskuld í veginn fyrir útbreiðslu þýzkra áhrifa í Dónárlöndunum og á Balkan, og ennfremur er þar bæði mikill og ágætur hergagna- iðnaður. Það virtist því vera alveg óhugsandi, að Frakkar myndu nokkru sinni sleppa hendinni af Tékkoslovakíu. Fyrst eftir stríðið var Frakkland líka voldugasta 92 ríkið á meginlandi Evrópu og hafði alla möguleika til að vernda þennan þýðingarmikla forvörð gegn Þjóðverjum í suðaustrinu. Afstaða Englands til Þýzkalands eftir stríðið var alt önnur en af- staða Frakklands. Enskir stjórn- málamenn vildu alls ekki að Frakkland yrði of voldugt á meg- inlandinu og unnu því á móti Frökkum á ýmsum sviðum. Árið 1929 byrjaði hin mikla viðskiptakreppa Breytt viðhorf og gjörbreytti öllum viðhorfum, bæði í stjórnmálum og atvinnu- málum heimsins. Á næstu árum á eftir breiddist byltingarhreyfing Bolschevika mjög út og óttuðust hinar hærri stéttir mjög þessa hreyfingu. Brátt varð ástandið í Þýzkalandi mjög ískyggilegt og trúðu menn almennt, bæði Bolschevikar og aðrir, að bylting- in stæði þar fyrir dyrum. Og það lá í augum uppi, að ef Þýzkaland yrði kommúnistiskt ríki, þá myndi byltingin sigra á öllu meginlandi Evrópu. Eins og annars staðar or_ sakaði kreppan mikil vandræði í atvinnulífi Frakka og bæði social- istum og kommúnistum óx mjög fiskur um hrygg. Hin harða stéttabarátta orsakaði það, að rík- ið varð veikt út á við. Margir hægrimenn í Frakklandi fögnuðu þess vegna mjög yfir því, þegar Hitler náði völdum árið 1933 og honum tókst að bæla niður verka- lýðshreyfinguna í Þýzkalandi. Eigi

x

Vaka : tímarit um þjóðfélags- og menningarmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vaka : tímarit um þjóðfélags- og menningarmál
https://timarit.is/publication/1746

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.