Vaka : tímarit um þjóðfélags- og menningarmál - 01.06.1938, Síða 15

Vaka : tímarit um þjóðfélags- og menningarmál - 01.06.1938, Síða 15
VAKA í. árgangur . 2. ársfjórðungur að síður var það eitt af aðalatrið- um í stefnuskrá national social- ista að breyta þeirri ríkjaskipun, sem gerð var á friðarfundinum í Versailles. í enska íhaldsflokknum átti Hitler líka marga vini, er á- litu að Þýzkaland undir forustu hans mundi verða aðalþröskuld- urinn í vegi Bolschevismans, ef byltingarástand kæmi í Evrópu, og hefir enska stjórnin síðan notað hin miklu áhrif á stjórnmál Frakka til að koma í veg fyrir, að þeir hindruðu áform Hitlers, sem svo alltaf gerði það, er hon- um sýndist, hvað sem öllum samn. ingum og skuldbindingum leið. Þótt það tækist án nokkurrar mótstöðu að losa Þýzkaland við greiðslu á skaðabótum og undan þeim ákvæðum Versaillessamn- ingsins, sem hindraði hervæðingu landsins, þá leit lengi vel ekki út fyrir, að Hitler mundi heppnast að vinna ný lönd undir ríkið. Það land, sem stóð næst að Þýzkaland fengi, var Austurríki, en á móti sameiningu þess við Þýzkaland stóð ekki einungis Frakkland og Tékkoslóvakía heldur einnig ítal- ía, og hafði Mussolini lýst því yfir, að það kostaði stríð við Ítalíu, ef Þjóðverjar reyndu að innlima landið. En brátt styrktist aðstaða Þýzkalands að miklum mun. Fyrst og fremst heppnaðist Þjóðverjum að gera vináttusamning við Pól- verja, sem um leið rufu bandalag- ið við Frakka, og i öðru lagi tókst þeim að vekja sundrung innan Litla bandalagsins. Mest styrktist þó aðstaða Þýzkaland við styrj- aldir ítala á Spáni og í Abbessiníu. Þessar styrjaldir veiktu Ítalíu í tvennum skilningi.Þeim var nauð- synlegt að halda mikinn her í báðum löndunum og fjármála- vandræðin jukust um allan helm- ing við stríðin. Ennfremur hefir Ítalía með stríðunum bakað sér óvild Englands, og þó sérstaklega Frakklands, og var henni því nauðugur einn kostur að styðja sig við Þýzkaland. Hinn ítalski her á Spáni reyndist líka mjög illa og varð því útlitið mjög ískyggilegt, þegar spánski stjórnarherinn í lok ársins 1937 hafði unnið hinn ágæta sigur yfir uppreisnarhern- um við Teruel og sýnt með því svart á hvítu, að hann stóð upp- reisnarhernum, að minnsta kosti jafnfætis, en allmikill hluti af þeim her voru ítalir. Var Musso- lini því nauðugur einn kostur að láta það viðgangast að Þjóðverjar innlimuðu Austurríki, þótt það væri auðséð, að Þýzkaland yrði eftir innlimun Austurríkis ofjarl Ítalíu í Dónárlöndunum og á Bal- kan. Hin harða stéttabarátta í Frakklandi og viðhorf ensku stjórnarinnar gerði það að verk- um, að Frakkar horfðu upp á þennan mikilvæga atburð án þess að hreyfa sig og varð Tékkoslóva- kía að gera hið sama, þótt hvert barn gæti séð, að þetta riki mundi 93

x

Vaka : tímarit um þjóðfélags- og menningarmál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vaka : tímarit um þjóðfélags- og menningarmál
https://timarit.is/publication/1746

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.