Vaka : tímarit um þjóðfélags- og menningarmál - 01.06.1938, Page 16

Vaka : tímarit um þjóðfélags- og menningarmál - 01.06.1938, Page 16
VAKA 7. árgangur . 2. ársfjórdungur í : UmhugNuiiarefiii Vits es þörf þeim, sem víða ratar. Hávamál. Vizka er betri en afl, en vizka fátæks manns er fyrir- litin og orðum hans er eigi gaumur gefinn. Orð viturra manna, sem hlustað er á í ró, eru betri en óp vald- hafans meðal heimskingjanna. Vizka er betri en her- vopn, en einn syndari spillir mörgu góðu. Prédikarinn. Vitur maður er betri en sterkur og fróður maður betri en aflmikill. Salómon. Það á við heimskan að hæla honum. ísl. málsháttur. Hjarta spekinganna er í sorgarhúsi, en hjarta heimskingjanna í gleðihúsi. Prédikarinn. Ósnotur (heimskur) maður hyggur sér alla vesa við- hlæjendur vini. Hávamál. Orð af munni viturs manns eru yndisleg, en varir heimskingjans vinna honum tjón. Fyrstu orðin fram úr honum eru heimska og endir ræðu hans ill flónska. Prédikarinn. Auðþekktur er heimskur nær hjá hyggnum situr. ísl. málsháttur. Sá, sem varðveitir munn sinn og tungu, hann varð- veitir sálu sína frá nauðum. Salómon. 94

x

Vaka : tímarit um þjóðfélags- og menningarmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vaka : tímarit um þjóðfélags- og menningarmál
https://timarit.is/publication/1746

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.