Vaka : tímarit um þjóðfélags- og menningarmál - 01.06.1938, Page 20
VA K A i. árgatlgur . 2. úrsfjórðungur
fengið nóga málma, en skortir
bæði landbúnaðarafurðir og olíu.
Leiðin til að bæta úr þeim skorti
er að ná tangarhaldi á Rúmeníu,
Ungverjalandi og Ukraine. Ung-
verjaland hefir að minnsta kosti
fyrst um sinn hagsmuni af sam-
bandi við Þýzkaland, þar eð Ung-
verjar óska að ná aftur þeim
löndum, sem þeir urðu að láta af
hendi við Rúmeníu og Jugóslavíu
eftir heimsstyrjöldina. Þar að auki
hefir Ungverjaland sem landbún-
aðarland mikinn hagnað af að fá
markað í Þýzkalandi fyrir afurðir
sínar, og má því fullyrða að áhrif
Þýzkalands á stefnu Ungverja í
utanríkismálum eru mikil og hafa
aukizt um allan helming við sund-
urlimun Tékkóslóvakíu.
Það land, sem vafa-
laust verður næsta
bráð Þjóðverja, er Rúmenía,
og eiga þeir þar auðveldan leik,
þar eð ástandið er að ýmsu leyti
svipað eða verra en það var í
Tékkóslóvakíu.
Af hinum 18 milljónum íbúa
Rúmeníu eru aðeins 70% af rúm-
enskum uppruna. Aðalþjóðirnar,
sem búa þar, auk Rúmena, eru
Þjóðverjar, Ungverjar, Gyðingar
og Litlu-Rússar, er búa í Bessara-
biu og eru nálægt 800.000 að tölu.
Ungverjarnir eru rúmlega 1,5
milljón og Þjóðverjarnir í kring-
um 800.000, og búa hvorir tveggja
aðallega í vesturhéruðum lands-
ins. Gyðingarnir eru um 900.000
98
og búa á víð og dreif um allt
landið, einkanlega í borgunum.
Ennfremur búa þar allmargir
Tyrkir og Búlgarar.
Af þessum þjóðum eru Ungverj-
arnir óánægðastir með yfirráð
Rúmena, enda eru þeir miklu bet-
ur menntaðir og voru áður yfir-
þjóðin. Hafa Rúmenar haldið
þeim niðri með hervaldi. Á síð-
ustu árum hefir þjóðernishatrið
aukizt mjög. Ekki sízt hefir það
valdið miklum æsingum, að Rúm.
enar hafa í byrjun ársins 1938
skyldað öll fyrirtæki Ungverja og
Gyðinga og alþjóðleg fyrirtæki til
að hafa 75% af verkamönnunum
hreina Rúmena. Bæði þetta og
önnur lík ákvæði hafa espað alla,
sem ekki eru Rúmenar, upp á móti
stjórninni, svo að jarðvegurinn
fyrir æsingar fasista þar í landi
er svo vel undir búinn, sem mest
má verða. Enda hafa Þjóðverjar
og Ungverjar þegar hafið líka bar-
áttu í Rúmeníu eins og í Tékkó-
slóvakíu áður en hún var sundur-
limuð og fara ekki leynt með til-
ganginn.
Það, sem Þjóðverjar sækjast
eftir í Rúmeníu er sérstaklega olí-
an. Rúmenía er einn af hinum
miklu olíuframleiðendum heims-
ins og ef Þýzkaland nær yfirráð-
unum yfir þeim olíulindum, þá
hafa þeir gnægð af olíu. Þá hafa
þeir náð yfirráðunum yfir nægum
hráefnum til þess að geta háð
langvarandi stríð. Þar að auki