Vaka : tímarit um þjóðfélags- og menningarmál - 01.06.1938, Qupperneq 24
Aflatregða á þorskveiðum og hrun salt-
fiskmarkaðarins hefir fremur en nokkuð
annað opnað augu þjóðarinnar fyrir
nytsemi síldarinnar.
Það er vissulega ekki án tilefn-
is, þegar framleiðslustörfin eru
kölluð frelsisbarátta og þeir, er
þau vinna, frelsishetjur. Engin
þjóð getur átt sér tilveru án fram-
leiðslu í hinni eiginlegu og upp-
haflegu merkingu orðsins, ekkert
þjóðfélag getur orðið til án henn-
ar. Ef einhver þjóð vanrækir þessi
störf, ef hún vanmetur þau og
lætur viðgangast, að fólkið hverfi
frá þeim í stórum hópum, hlýtur
það að verða ofraun efnahagslegu
sjálfstæði hennar. Og þá þarf ekki
að spyrja, hvernig fari um stjórn-
arfarslegt og menningarlegt sjálf-
stæði sömu þjóðar. Hvoru tveggja
hlýtur hún að glata.
En það skal tekið fram, að með
framanrituðu er ekki átt við, að
engin önnur störf í þjóðfélaginu
102
en framleiðslustörf eigi rétt á sér
eða séu nauðsynleg, enda fer
fjarri að svo sé. í siðmenntuðu
nútímaþjóðfélagi þarf að inna af
hendi mörg önnur störf en þau,
sem kallast geta bein framleiðsu-
störf. Þeir, sem stunda verzlunar.
störf eða annast bókhald fyrir at-
vinnufyrirtæki, vinna nauðsynleg
störf, sem framleiðslan getur ekki
fremur verið án en þau hin sömu
störf geta verið án framleiðslunn-
ar. Þá er og fjöldi starfa unnin
belnt í þágu menningarinnar.
Bókaverðir, skáld og listamenn
/inna störf, sem siðað nútíma-
þjóðfélag getur ekki, og vill ekki
vera án. Önnur störf eru unnin
bæði í þágu menningar og fram-
leiðslu. Það gildir t. d. um starf
kennara yfirleitt. Sumir skólar
veita það, sem kallað er almenn
menntun, eru ætlaðir til þess að
breiða út þekkingu á því, sem sér_
hver þegn siðaðs þjóðfélags á að
kunna nokkur skil á. Aðrir skólar
búa fólk hins vegar undir að vinna
framleiðslustörf, eða önnur störf,
sem framleiðslan kemst ekki af
án. Þannig styður hvað annað
í þjóðfélagsbyggingunni. Hver
starfstegund er steinn í múrum
hennar, sem illt er að vera án, þó
að það raski ekki þeirri staðreynd,
að framleiðslustörfin eru sjálfur
hornsteinninn.
Ég hefi kallað framleiðslustörf-
in frelsisstríð og vil halda þeirri