Vaka : tímarit um þjóðfélags- og menningarmál - 01.06.1938, Qupperneq 29

Vaka : tímarit um þjóðfélags- og menningarmál - 01.06.1938, Qupperneq 29
VA Iv A 1. drgangur . 2. úrsfjórdungiir að gera sér ljóst, hversu gersam- lega skammgóð trú hans er. Þeg- ar ég kem með eitthvað, sem virð- ist vera alger fullyrðing, þá verð ég að biðja ykkur að setja þar framan við eitthvað á þá leið, að „mér virðist mjög sennilegt að . . .“ Og nú ætla ég að reyna að gera grein fyrir áliti mínu. Maðurinn lifir í tveim heimum: sýnilegum heimi, sem breytist með tímanum, og ósýnilegum heimi, sem er óumbreytanleg- ur. En báðum þessum heim- um er aðeins hægt að lýsa eins og þeir koma okkur fyrir sjónir, þ. e. frá mannlegu, ófull- komnu sjónarmiði. Á meðal máttarstoða hins ósýnilega heims eru staðreyndir á borð við þá stærðfræðireglu að 16 -)- 9 = 25. Þessi staðreynd er alveg eins ó- neitanleg og t. d. Alberts minnis- merkið, sem hver heilskyggn mað- ur hlýtur að kannast við, þegar honum er bent á það. En hin ósýnilega staðreynd er að því leyti frábrugðin minnismerkinu, að hún var góð og gild fyrir 10 þús. árum síðan og mun verða í gildi eftir 10 þúsund ár. Vísindaleg lögmál eru einnig ósýnilegar stað- reyndir og af sama tagi tel ég einnig sumar hugmyndir okkar um, hvað fagurt sé og gott. En þessum síðast nefndu staðreynd- um er erfiðara að gera sér grein fyrir af því að við komumst ekki að þeim nema í gegnum móðu til- íinninganna. Við vitum aðeins lítið um það, sem nefna mætti landaskipun hins ósýnilega heims. Trúarbrögðin hafa mál- að þar herfileg skrípi á hin ókönnuðu svæði landabréfsins, svo að ég tali áfram í líkingum, og heimspekin hefir að sínu leyti markað þar eins vafasama breiddarbauga. Báðir aðilar hafa fullyrt, að tilgang hins sýnilega heims sé að finna í hinum ósýni- lega, þvert á móti því, sem fólk flest álítur. Þetta er galdurinn, sem gerði þá volduga. Þeim hefir mistekizt, þegar þeir hafa reynt að lýsa hinum sýnilega heimi út í æsar eða skipa fyrir um hegðun í honum. Kirkjan stendur hálf- tóm á vorum dögum, af því að trúarjátning hennar er full af úr- eltum vísindum, og siðalögmál hennar er sniðið eftir miklu ein- faldara þjóðskipulagi heldur en nú gerist. — Samt sem áður er fjöldi gáfaðra manna, sem held- ur sér að kirkjunni, af því að hún heldur að nokkru leyti uppi há- leitum kröfum í heimi hér, þar sem margt er á hverfanda hveli. Ég tilheyri engum trúarflokki, af því, að ég álít, að þessar kröfur séu bornar uppi annars staðar. Ef ég teldi, að takmark vísinda og lista væri eingöngu tímanlegt, þá myndi ég telja mig til einhverr- 107
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Vaka : tímarit um þjóðfélags- og menningarmál

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vaka : tímarit um þjóðfélags- og menningarmál
https://timarit.is/publication/1746

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.