Vaka : tímarit um þjóðfélags- og menningarmál - 01.06.1938, Side 30
VAKA 1 • rírgangtir . 2. ársfjórðimgur
ar kirkju. En það er mitt álit, að
vísindamaðurinn sé í leit að hin-
um æðsta sannleika og listamað-
urinn að hinni fullkomnustu feg-
urð. Þessvegna þykist ég finna í
vísindum og listum, og í viðleitni
til að breyta vel, öll þau trúar-
brögð, sem ég hefi þörf fyrir.
Mér er ekki mikið gefið um
fólk, sem ekkert vill vita af hin-
um ósýnilega heimi. í bezta falli
er það eins og góðar skepnur, en
allt of margt ekki einu sinni svo
mikið.
Þeir menn og konur, sem mestu
hafa afrekað, bæði fyrir sig og
sinn náunga, hafa einmitt tengt
saman hina tvo heima. T. d. getið
þið heyrt mig í kvöld af því, að
James Clerk Maxwell tókst, fyrir
56 árum síðan, að flétta saman í
nokkrar líkingar mjög mikils-
verðum eiginleikum við rafsegul-
bylgjur. í þessum líkingum er
falinn sannnleikur, sem er eilíf-
ur — og tilheyrir hinum ósýni-
lega heimi. Loftskeyti og útvarp
byggjast á þessari uppgötvun.
Þeir, sem engar tengdir hafa við
hið ósýnilega í tilverunni, engan
hugarheim, geta í mesta lagi náð
einskonar lausatökum á gæfunni.
Hafi þeir slíkar tengdir munu
þeir allmjög brynjaðir gegn
óhamingju hins sýnilega heims
og vera algerlega ónæmir fyrir
leiðindum. Inge prófastur, H. G.
Wells og ég erum að miklu leyti
sammála um eðli hins ósýnilega
heims, því að við erum allir, að
nokkru leyti, lærisveinar Platós.
*
Mönnum er ekki meðfæddur
skilningur á eilífum sannindum
og verðmætum. Þeir öðlast hann
við uppeldi í víðtækustu merk-
ingu. Þ^ð er eitt af höfuðverk-
efnum mínum að kenna stúdent-
um við Cambridge háskóla til-
teknar vísindalegar staðreyndir.
Margir þeirra geta lært og eru
námfúsir. En sumir eru hvorki
næmir né námfúsir. Þeir geta sótt
til Cambridge af því, að foreldrar
þeirra eru ríkir. Með því útiloka
þeir aðra, sem hafa betri and-
lega hæfileika til náms og eru
námfúsari. Sem kennari get ég
ekki mælt bót þjóðskipulagi, sem
ber ábyrgð á svona ranglæti. Við
erum upp úr því vaxnir að verða
líkamlega hungurmorða. Andleg-
ur hungurdauði viðgengst ennþá,
sem að mínu áliti er meira böl
heldur en nokkurt efnahagslegt
ójafnræði. Þangað til uppeldis-
málum okkar hefir verið komið í
það horf, að hver pilltur og stúlka,
sem óskar eftir fullkominni
menntun og hefir hæfileika til að
njóta hennar, fái sinn skerf,
munu stjórnmálaskoðanir mínar
halda áfram að vera vinstra
megin.
Það er til ennþá þyngra böl
108