Vaka : tímarit um þjóðfélags- og menningarmál - 01.06.1938, Qupperneq 31

Vaka : tímarit um þjóðfélags- og menningarmál - 01.06.1938, Qupperneq 31
1. árgangur . 2. ársfjórdungur V A. li A heldur en andlegur hungurdauöi og það er hin vísvitandi undir- okun frjálsrar hugsunar og mál- frelsis. Ég fagna því að lifa í landi, þar sem þetta böl kreppir minna að heldur en í flestum öðrum löndum. En þó hygg ég, að jafn- vel á voru landi sé ritfrelsi óþarf- lega mikið takmarkað í nafni sið- gæðis, velsæmis o. s. frv. Það er talsvert meira frelsi að þessu leyti hinum megin við Sundið, en eng- inn, sem unnið hefir með Frökk- um að friðsamlegum störfum eða barizt með þeim í ófriði, mun bera þeim á brýn úrkynjun. Svo margar nýjar hugmyndir eru fyrst í stað framandi og geigvænlegar, þótt nýtar reynist að lokum, að. þung ábyrgð hvílir á þeim, sem reyna að hamla þeim frá að sí- ast út. Meira að segja, sú ritskoðun, sem ég drap á, er framkvæmd á mjög hlutdrægan hátt. Bók, sem lofsyngur stríð, getur verið alveg eins andhælisleg, og að mínum dómi eins ósiðleg, eins og lofsöng- ur um lausung í ástum. En sú fyrrnefnda er aldrei bönnuð og sjaldan fordæmd í heyranda hljóði. * Ég sný mér nú frá heimi hug- myndanna að heimi veruleikans. — Ég er líffræðingur og þess- vegna rannsaka ég eðli og háttu lifandi vera og lít vitanlega á hlutina frá líffræðilegu sjónar- miði. Ég kann vel við mig hér í lífinu, af því að ég veit, að aðrar skepnur, og jurtirnar líka, eru ná- frændur mínir. Jafnvel hið líf- vana efni hefir að mestu leyti verið lifandi til forna. Þegar ég virði fyrir mér fjall úr kalksteini, þá hefi ég það á vitneskjunni, að það hafi myndast úr ótölulegum grúa örsmárra samherja. Það sem kynlegra er — ég held að ég hafi einhverja ofurlitla skímu um, hvernig það sé að vera kalksteinn. Við þekkjum oftast hlutina utan írá. Okkar eigin líkama þekkjum við innan frá. Alveg eins og allir vita, hvað það er að vera heitur, þannig þykist ég vita af eigin reynd, hvernig það sé að vera gerður úr óvenjulega miklu eða litlu af kolsúru kalcium, sem kalk- fjallið er myndað úr. Á þennan hátt finn ég skyldleika minn við umheiminn út í yztu æsar. Ég er hluti af náttúrunni og, eins og aðrir tímanlegir hlutir, hvort heldur er snæljós eða fjall, mun ég lifa mitt æfiskeið til enda og síðan ekki meir. Þessi vitneskja hrellir mig ekki, því að sumt af verkum mínum mun ekki deyja, þegar ég fer i gröfina. Sem líffræðingur gef ég mjög gaum að mínum eigin líkama. Flestir gefa lítinn gaum að því, sem er innan undir húðinni, nema þeir séu veikir. Mér þykir gaman að athuga, hvernig líffæri mín 109
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Vaka : tímarit um þjóðfélags- og menningarmál

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vaka : tímarit um þjóðfélags- og menningarmál
https://timarit.is/publication/1746

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.