Vaka : tímarit um þjóðfélags- og menningarmál - 01.06.1938, Page 32

Vaka : tímarit um þjóðfélags- og menningarmál - 01.06.1938, Page 32
VAKA 1 ■ árgangur . 2. ársfjórðungur verka, alveg á sama hátt og kunn- ingjar mínir athuga bifreiðina sína eða viðtæki. Mér þykir gam- an að taka eftir, hvernig hjart- anu í mér verður við, þegar ég hleyp upp stigann, eða hve ört neglurnar á mér vaxa. Fyrir líf- fræðing getur jafnvel tannpína verið uppbyggileg. Vitanlega álít ég heilsuna ákaflega mikils virði, miklu dýrmætari en auðæfi, og ég tel æfi minni vel varið, ef ég get eitthvað stutt að því með rann- sóknum og uppeldi, að gera með- bræður mína heilsubetri. Ennþá er þekkingu í heilsufræði geysilega ábótavant, en ef alþýða manna hefði tileinkað sér þá þekkingu, sem nú er til hjá örfáum mönn- um, þá myndi meðalaldur í voru landi væntanlega lengjast um 10 ár. Tveir þröskuldar standa í vegi: fáfræði og blekkingar. Dæmi um hið síðarnefnda: Stórfé er til þess varið að útbreiða lygar um heilsu- far, til þess að koma við auglýs- ingum um læknisiyf og „holla fæðu“, sem að jafnaði er gagns- laus og oft skaðleg. Mjög skrum- auglýst vitamínsamsull inniheld- ur, auk vitamínanna, efni, sem er blátt áfram eitur fyrir ungbörn. Að landslögum kynni ég að verða dæmdur í þungar fjársektir, ef ég nefndi þetta efni, jafnvel þótt hægt væri að sanna staðhæfingu mína. Hinsvegar er mér frjálst að halda því fram opinberlega, að bóluefni við barnaveiki sé gagns- 110 laust, enda þótt það séu helber ósannindi. Tökum svo dæmi um ríkjandi fáfræði. Þegar faðir leitast fyrir um lífsstarf handa syni sínum, lætur hann aðallega leiðast af hagsvon og að nokkru leyti af smekkvísi. Hann vill forða synin- um frá lélegum launum og slæm- um félagsskap. Hann hugsar ekki um tjón á heilsu, nema um slysa- hættu sé að ræða. En heilsufar í starfsgreinum er ákaflega mis- munandi og almenningur veit oft- ast lítið um áhættu í eigin starfs- grein, hvað þá heldur annara. Annars myndi vart nokkur maður með viti fást til að vinna við málmsvarf eða knæpurekstur, þar sem dauðsföll eru helmingi tíðari en í meðallagi, ef hann ætti kost á að verða trésmiður eða járnbraut- arþjónn og njóta þannig meira en meðallangra lífdaga. Stjórnendur vorir eru jafn fáfróðir í þessum efnum. Verndartollar og styrkir eru veittir jöfnum höndum til heilnæmra starfa, svo sem til jarðyrkju, og til óhollra starfa, svo sem bitjárnaframleiðslu. Sé þess- um ráðstöfunum mótmælt, þá er það frá hagrænu sjónarmiði, en aldrei með þeim rökum, að með því að létta undir með og örva óhollar starfsgreinar, sé verið að dæma nokkra samlanda sína til dauða. Allir stjórnmálaflokkar virðast sammála um að meta meira fjárhagsleg rök heldur en

x

Vaka : tímarit um þjóðfélags- og menningarmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vaka : tímarit um þjóðfélags- og menningarmál
https://timarit.is/publication/1746

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.