Vaka : tímarit um þjóðfélags- og menningarmál - 01.06.1938, Page 37

Vaka : tímarit um þjóðfélags- og menningarmál - 01.06.1938, Page 37
1. árgangur . 2. ársfjórðungur VAKA inda. Vísindastörf mín og rann- sóknir eru á engan hátt bundnar við landamæri eða þjóðflokka. Ja- panir, Kínverjar og Indverjar eru, eða hafa verið, samverkamenn mínir engu siður en Norðurálfu- og Ameríkumenn. Vitanlega er ég meðmæltur öllum ráðstöfunum, sem miða í þá átt að samlaga þjóðirnar og hindra stríð. En hug- myndir mínar um beztu aðferð- irnar til að ná þessu marki, get eg ekki rökstutt af nægilegri þekkingu og sleppi þeim því. Af sömu ástæðu segi eg ekki neitt um fjármál. Mér þykir vænt um að vera lif- andi einmitt núna í stað þess að hafa lifað á liðnum tímum. Um 4000 ára skeið fyrir lok 18. aldar- innar hafði menning smám sam- an breiðzt yfir stærra og stærra svæði, en hún hafði ekki að sama skapi vaxið að gæðum til. Það eru ekki nema 100 ár síðan að börn voru hengd í Englandi fyrir þjófn- að og giftar konur máttu ekki eiga eignir. Svona böl og ánauð þekktist ekki í kaldeisku borginni Úr 4200 árum áður. Á 19. öldinni tvöfölduðum við væntanlegan meðalaldur okkar, ferfölduðum meðaltekjur okkar að kaupgetu, og bættum stórlega uppeldi og siðferði okkar. Þetta tókst fyrst °g fremst með því að taka vísindin í þjónustu sína. — Nú er allt sem menning heitir að breyta um gervi. Verið er með tilraunir, sem ekki eiga sér nokkurt fordæmi. Hin stórfellda tilraun með sósíal- isma stendur yfir í Rússlandi og verður efalaust reynd á einhverj- um öðum stað. Við verðum fyrir stórkostlegum og óvæntum slys- um svo sem styrjöldinni miklu. Við munum halda áfram að verða fyrir slíkum slysum svo lengi sem foringjar okkar eru, ekki aðeins vísindalega fáfróðir, heldur og aftan úr grárri forneskju í hugs- unarhætti. (Allir kannast við þegar keisarinn var að kenna stríðið við „hin skínandi her- klæði“ og Mr. Asquith við „hið óslíðraða sverð“.) Við verðum að láta okkur lærast að hugsa vís- indalega, ekki aðeins um dauða hluti, heldur og sjálfa okkur og aðra. Þetta er hægt. Hver og einn getur öðlazt allgóða þekkingu á öllu sviði vísindanna og haft samt nægilegan tíma til þess að sinna algengum mannlegum málefnum. En það eru fáir, sem leggja þetta á sig. En án vísindalegrar þekk- ingar fá menn ekki skilið rás við- burðanna. Þar í liggur ástæðan fyrir því, að bókmenntir og listir okkar tíma fara að mestu leyti svo langt frá virkileikanum. Við lifum á hættulegu, en af- skaplega merkilegu tímabili. Saga myndast nú í stærri stíl og með meiri hraða en nokkru sinni fyrr. Um mannkynið í heild el eg bjart- ar vonir. Um England er eg ekki nema í meðallagi vongóður, þó að 115

x

Vaka : tímarit um þjóðfélags- og menningarmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vaka : tímarit um þjóðfélags- og menningarmál
https://timarit.is/publication/1746

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.