Vaka : tímarit um þjóðfélags- og menningarmál - 01.06.1938, Síða 47

Vaka : tímarit um þjóðfélags- og menningarmál - 01.06.1938, Síða 47
1. árgangur . 2. ársfjórðungur VAKA mín rétta mamma. Mín rétta mamma er sú, sem þau kalla ung- frú Denlinger, og segja, að sé kennslukonan mín. Englunum á sjúkrahúsinu skjátlaðist og þeir sögðu hinni konunni að hún væri mamma mín. Mín rétta mamma vildi ekki særa hana með því að segja henni eins og var----- — Já, einmitt það! — Hún heldur að hún sé mamma mín, en við höfum bara alltaf gert grín með hana. Hún kemur til okkar einu sinni í mán- uði og er þá alltaf full. — Joe segir að hún hafi líka járn- maga------- — Herra dómari, við mótmæl- um------- — Haltu bara áfram, Neddie. Hvað hafið þið ungfrú Denlinger lengi gert grín með frú Pryskin, eins og þú orðar það? — í mörg, mörg ár, eins lengi og ég man eftir mér. Við höfum gert henni marga brellu, það get- urðu reitt þig á! Hún á eitthvað sem hún kallar framavon og hún getur ekki þolað litla drengi. Ég má aldrei gera hávaða, þegar hún er komin. En mamma mln segir að hún eigi mig og hún kæri sig ekki um framavon af því að syngja í útvarpið eða leika í New York. — Afsakið, herra dómari, þetta barn er ekki skynbært sem vitni------ — Augnablik. Ég þarf aðeins að spyrja þig eins enn, Neddie. Þekkir þú föður þinn, manninn, sem þarna situr? — Ójá, hann er kvæntur aftur og á tvo litla drengi í Boston. Joe segir, að hann kæri sig ekkert um foreldraréttinn yfir mér — hann vill bara ekki að konan í loðfeld- inum ráði neitt yfir mér, en ég kæri mig ekki um neina nema mina réttu mömmu-------- — Við mótmælum, herra dóm- ari. — Rétturinn hefir heyrt nægi- lega mikið af vitnaframburði í þessu máli. Hvorugt foreldranna er til þess fallið, að takast á hend- ur uppeldi þessa drengs. Ég út- nefni því ungfrú Denlinger sem forráðamann hans, það er að segja, ef hún er fús til að takast þá ábyrgð á hendur? — Já, með ánægju, herra dóm- ari! — Við mótmælum — barnið er ekki skynbært sem vitni — — Skynbært? Hvað þýðir það? Er það eitthvað rangt? Ó, hvað þýðir þetta orð? spurði drengur- inn angistarfullur. — Það þýðir ekkert drengur minn Réttinum er slitið! V. J. þýddi. Áfeitgi----------------------- Um langan aldur hefir fátt bakað mannkyninu meira böl, sjúkdóma og þjáningar en nautn áfengra drykkja. Charles Darwin. 125

x

Vaka : tímarit um þjóðfélags- og menningarmál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vaka : tímarit um þjóðfélags- og menningarmál
https://timarit.is/publication/1746

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.