Vaka : tímarit um þjóðfélags- og menningarmál - 01.06.1938, Side 50

Vaka : tímarit um þjóðfélags- og menningarmál - 01.06.1938, Side 50
VAKA 1 ■ iírgangur . 2. ársfjórdungur um fram hjá mönnum í lýðræðis- löndunum, þegar þeir vilja ekki heyra neitt um það, sem betur kynni aö fara þar, sem einræði er. Þetta er óviturlegt. Vitanlega getur ýmislegt nýtt og gagnlegt komið fram við breytta stjórnar- hætti, sem nota má víðar, þótt annað stjórnarfar sé. Og þeir, sem lýðfrelsi unna, eru skyldir að hafa það helzt, sem bezt reynist, hvað- an sem það kemur. Með því tryggja þeir bezt, að ekki verði hlaupið út í ótímabærar breyting- ar í ófrelsisátt út af óánægju eða vandræðum, sem afstýra hefði mátt með meira víðsýni. Engin líkindi eru til, eins og nú horfir, að þær þjóðir, sem búa við einræðisstjórn, fái aftur stjórn- frelsi, nema eftir margvíslegar hörmungar og ef til vill blóðugar byltingar. En því fremur er ástæða til fyrir þær þjóðir, sem vanar eru frelsi, og enn halda því, að láta ekki svipta sig því. Það hljómar óneitanlega dálítið einkennilega, þegar menn í lýðfrjálsu landi, eins og hér er, eru að kvarta undan höftum og ófrelsi I öðru orðinu en í hinu dást þeir að ástandinu í þeim löndum, þar sem frelsið er afnumið. Ætli þeim hinum sömu brygði ekki illa við, ef hér kæmi ströng einræðisstjórn, sem skipuð væri skörpustu andstæðingum þeirra? Hvað yrði þá úr kvörtun- um þeirra og kröfum á hendur 128 valdhafanna? Og hvað yrði um þá sjálfa, ef þeir færu líku fram og nú? Þetta ættu einræðissinnar að reyna að hugleiða, hvaða öfga- stefnu, sem þeir fylgja. Það er holl regla að setja sig öðruhvoru í annara spor. Fyrir skömmu var þess há- tíðlega minnzt, að íslendingar fengu fullt lýðfrelsi fyrir tuttugu árum, er fullveldi íslenzka ríkis- ins var viðurkennt. Fyrir þessu höfðu beztu menn þjóðarinnar barizt mannsöldrum saman. Öllum þótti frelsið gott. En það er vandi að gæta þess. Og fleira er athugavert fyrir þá kynslóð, sem nú er að alast upp og ekki þekkir frelsisbaráttuna nema úr sögunni. Hún þarf að muna, að það má misnota frelsið, og að vandi hvílir á öllum að nota það vel. Það er bein misnotkun, ef þeirr- ar aðstöðu, sem ritfrelsi og mál- frelsi veitir, er neytt til þess að rífa burtu þá hornsteina, sem lýð- frelsið sjálft er reist á. Grund- völlur lýðfrelsis er jafnrétti. Án þess verður aldrei til frelsi, nema handa fáum útvöldum, þeim, sem sterkastir eru í þann svipinn. Jafnréttið má því aldrei skerða. Réttur annara verður að vera hverjum einstökum jafnhelgur og hans eigin réttur. Annar hornsteinninn er vit og þekking, og einkum þó almenn upplýsing. Þar leggur einnig lýð-

x

Vaka : tímarit um þjóðfélags- og menningarmál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vaka : tímarit um þjóðfélags- og menningarmál
https://timarit.is/publication/1746

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.