Vaka : tímarit um þjóðfélags- og menningarmál - 01.06.1938, Side 52

Vaka : tímarit um þjóðfélags- og menningarmál - 01.06.1938, Side 52
VAKA 1. árgangur . 2. drsfjórdungur sem kom út í tímariti einu. Á næstu árum birtust eftir hana fleiri smásögur og árið 1930 kom út hin fyrsta af stærri skáldsög- um hennar. Árið eftir kom út skáldsagan The Good Earth, sem í íslenzkri þýðingu hlaut hið ó- heppilega nafn Gott land. Sú saga er frægust af öllum sögum frú Buck, enda var hún sæmd Pulit- zerverðlaununum og átti svo loks drýgstan þátt i þvi, að frúnni voru veitt bókmenntaverðlaun Nobels. Frú Buck er tvimælalaust í hópi allra fremstu skáldsagnahöfunda, sem nú eru uppi í heiminum, enda eru bækur hennar geysi- mikið lesnar á fjölda mörgum tungumálum. Lýsingar hennar á lifinu í Kína, árekstrunum milli gamla og nýja tímans, austrænna erfðavenja og vestrænnar menn- ingar, kjörum fólksins og hugsun- arhætti, að ógleymdu landinu sjálfu, eru svo ljósar og lifandi, að lesandinn gleymir ósjálfrátt, að hann er að lesa skáldsögu, og honum virðist þess í stað sem hann standi andspænis veruleik- anum sjálfum. í þessu hefti Vöku birtist byrjun á stuttri skáldsögu eftir Pearl S. Buck. Sú saga gefur góða hug- mynd um frúna sem rithöfund. í byrjun sögunnar er lesandinn leiddur inn á kínverskt heimili í betri röð. Heimili, þar sem æfa- gamlar erfðavenjur og hefðbund- 130 Til Yöknmaima Vökumenn, þið varpa skulið vorblóma yfir nýja öld. Ykkar mark er að efla, styrkja og auka ’in helgustu frelsisvöld. Háir tindar í fjarska falda fönnum ogbenda,hvar mark er sett. Hlutskiptið er að vinna og vaka, og vernda sjálfstœðrar þjóðar rétt. Draumurinn er með djarfleik að efla það dfjrsta og fremsta, sem þjóðin á. Og skilja komandi kynslóðum eftir þann karlmennskudug, er byggt skal á. Verndum þjóðerni, mál vort og menning; vor markvissa sókn skal ei þekkja kvöld. Vökumenn, þið vatpa skulið vorblóma yfir nýja öld. Björn Dan. inn vani sitja í hásæti dag hvern. Með komu einkasonarins frá námi sínu í skólum Evrópumanna, riða hin gömlu form, fyrst örlítið, svo að varla verður greint, en síðan æ meira, þangað til á sér stað alger bylting í lífsvenjum ættar- innar, gömul form verða að þoka fyrir nýjum, austræn hefð fyrir vestrænni tízku. Öllum persónum sögunnar er vel lýst, ekki sízt eiginkonu unga mannsins, sem honum var gift áður en hann fór að heiman til náms. Sú kona, konan, sem allt sitt líf, og einnig á dauðastund- inn, fórnaði sér fyrir skyldur við eiginmann og venzlafólk, hlýtur að verða lesandanum minnisstæð. V. J.

x

Vaka : tímarit um þjóðfélags- og menningarmál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vaka : tímarit um þjóðfélags- og menningarmál
https://timarit.is/publication/1746

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.