Vaka : tímarit um þjóðfélags- og menningarmál - 01.06.1938, Side 58

Vaka : tímarit um þjóðfélags- og menningarmál - 01.06.1938, Side 58
V A lí A 1. árgangur . 2. ársfjórðungur „Oh!“ sagði Yuan, „en hvar er sonur minn?“ „Hér er ég!“ sagði drengurinn mjög hátt. Hann hafði starað á föður sinn með augum, sem voru kringlótt af undrun og eftirvænt- ingu. Yuan hló við og lyfti honum upp. „Þetta hefir þú aðhafzt síð- ustu sjö árin, karlinn! Þú hefir breytzt úr mánaðargömlum, væl- andi anga í stóran og myndar- legan karlmann!" Nú gat hún virt hann fyrir sér óhindruð, því að hann sneri sér undan og lét dátt að barninu. Jú, hann hafði þroskazt. Hún sá greinilegan mun. Þegar hann fór að heiman, hafði hann verið grannur og unglingslegur, þrátt fyrir tuttugu og fjögurra ára ald- ur, miklar gáfur og mikinn lær- dóm. Nú var hann þreknari, ofur- lítið hávaxnari einnig. Blærinn yfir andlitinu var annar. Sjö ár í framandi landi höfðu eðlilega haft sín áhrif á hann. Að heiman hafði farið unglingur, þrátt fyrir allt. Til baka kom fullþroskaður karlmaður, herra hennar og eig- inmaður. Hún varð allt í einu gripin af sterkri feimnistilfinn- ingu. Hún fann blóðið leita til höfuðsins og vissi að roðinn breiddist yfir kinnar sínar. Hún ýtti dóttur sinni fram fyrir sig. „Talaðu við föður þinn, barnið mitt!“ hvíslaði hún. En litla stúlkan brosti aðeins 136 og horfði niður fyrir fætur sína, þangað til drengurinn hrópaði: „Þarna er systir mín!“ Þá sneri Yuan sér að dóttur sinni, tók í hönd hennar og sagði: „Og hvað ert þú nú að búa til, litla Siu-lan? Skó handa þér eða eitthvað slíkt?“ „Nú er hún orðin tíu ára,“ sagði gamla frúin, „og þvi nógu gömul til þess að fara að suma brúðar- kjólinn. Móðir hennar kann að ala upp stúlkubörn á hinn góða og gamla hátt. Hún veit, hvað ung stúlka á að kunna og er þess vegna farin að láta Siu-lan æfa saum- inn á brúðarpilsinu.“ Litla stúlkan hlustaði á allar þessar skýringar með illa dulinni óþolinmæði, og hún var komin á flugstig með að láta hana í ljós með orðum, þegar móðir hennar drap aðvarandi hendi á öxl hennar. Faðirinn ungi svaraði móður sinni engu. Hann opnaði munninn eins og hann ætlaði að segja eitt- hvað, en lokaði honum svo aftur án þess að taka til máls. Það varð vandræðaleg þögn. Hann fann það og sagði því: „En hvað það er gott að vera kominn heim aftur! Nú ætla ég að fara inn í mitt eigið herbergi til þess að þvo af mér ferðarykið. Þetta hefir verið þreytandi ferða- lag upp á síðkastið. Við vorum þrjá daga upp eftir fljótinu — þrjá daga að ferðast hundrað

x

Vaka : tímarit um þjóðfélags- og menningarmál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vaka : tímarit um þjóðfélags- og menningarmál
https://timarit.is/publication/1746

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.