Vaka : tímarit um þjóðfélags- og menningarmál - 01.06.1938, Síða 60

Vaka : tímarit um þjóðfélags- og menningarmál - 01.06.1938, Síða 60
VAIiA í. árgaugur . 2. ársfjórdungur Dugnaðarmenn 11. 1*1111111* Ch 1*1 ÍBISSOII GRÍMUR er fæddur árið 1904. Ungur missti hann föður sinn og ólst síðan upp á vegum móður sinnar. Hann lagði stund á alla algenga vinnu, sem fyrir kom, þangað til hann hóf búskap árið 1932. egar Grímur hóf búskap sinn á Svarfhóli í Geiradal í Barðastrand- arsýslu, grúfði viðskiptakreppan eins og óveðursský yfir atvinnuvegum lands- manna, ekki sízt landbúnaðinum. Margir bændur flýðu jarðir sínar vegna örðug- leikanna og bættust i hóp atvinnuleys- ingjanna á mölinni. Aðeins örfáir höfðu til að bera þá trú á framtíð landbúnað- arins, þann yfirlætislausa kjark og raun- hæfa dugnað, að þeir þyrðu að byrja búskap, treysta íslenzkri frjómold fyrir afkomu sinni og sinna. Grímur var einn af þeim, sem jafnvel á þessum tímum fráfældust ekki hlut- skipti bóndans. Hann hóf búskap á lítilli jörð og við lítil efni. En vegna mikillar ráðdeildarsemi og dugnaðar í hvívetna, hefir hagur hans blómgazt svo, að nú er hann vel bjargálna bóndi. Bústofn hans er nú um 100 fjár, 5 hestar og 2 kýr, og að meðtöidum öðrum eignum, s. s. allhárri eningaupphæð í kaup- félagi sínu, nemur skuldlaus eign Gríms nú á 8. þúsund krónur. Grímur hefir bætt og stækkað túnið á Svarfhóli og byggt steinsteypt fjós, hlöðu og haughús og safnþró. Nú hefir hann sterkan hug á að byggja bæinn að nýju, og má óhætt gera ráð fyrir, að þar verði ekki látið sitja við hugmyndina eina. 138 Grímur er ókvæntur og býr með móður sinni. Grímur er góður heim að sækja eins og íslenzkir bændur yfirleitt. Hann er ræðinn og spyr margs, en berist talið að hans eigin framkvæmdum, verður hann fámálli og vísar því tali á bug með svipuðum orðum og þessum: „Minn bú- skapur er ekki til að gera orð á. Það er hverjum fullhraustum manni vorkunnar- laust að skapa sér sæmilega afkomu við búskap í ekki verra árferði en nú er.“ Á þessum „síðustu og verstu tímum“ er okkur gott að minnast manna eins og Gríms. Manna, sem stefna gegn erf- iðleikunum og sjá mörg úrræði, þegar dáðleysinginn leggur árar í bát. Þeim mönnum veitist næsta létt að notfæra sér hin margháttuðu og lítt notuðu gæði landsins. Þeir eygja aðra afkomumögu- leika en framíærslu af almannafé.

x

Vaka : tímarit um þjóðfélags- og menningarmál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vaka : tímarit um þjóðfélags- og menningarmál
https://timarit.is/publication/1746

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.