Fréttablaðið - 04.01.2023, Side 30
AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Guðmundur Örn Jóhannsson gudmundur@torg.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050: Auður Húnfjörð audur@
frettabladid.is, Sverrir Birgir Sverrisson sverrir@frettabladid.is , Reynir Elís Þorvaldsson reynir@frettabladid.is, Örn Geirsson orn@frettabladid.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5078:
Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@frettabladid.is, Kolbeinn Kolbeinsson kolbeinn@frettabladid.is, Ruth Bergsdóttir ruth@frettabladid.is
FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR/FASTEIGNIR SÍMI 550 5056: Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is TÍMAMÓTA- OG
ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5055: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@frettabladid.is
toti@frettabladid.is
Penninn Eymundsson hefur tekið
saman lista yfir mest seldu bæk-
urnar í verslunum sínum á nýliðnu
ári. Á sölulista ljóðabóka ársins 2022
trónir Þórarinn Eldjárn á toppnum
með bókina Allt og sumt. Blástjarna
efans, eftir Valdimar Tómasson, er í
2. sæti þannig að enn stendur Met-
sölu-Valdi, eins og hann er stundum
kallaður, undir nafni.
„Þetta er náttúrlega bara afbragð,“
segir Valdimar sem unir vel sínum
ljóðahag á milli Þórarins og Berg-
þóru Snæbjörnsdóttur sem er í 3.
sæti með Allt sem rennur.
„Og það er nú ekkert tap að lúta
í gras fyrir höfuðskáldinu Þórarni
Eldjárn. Það er nú bara heiður og
notalegt að vera upp við hann.
Notaleg nánd,“ segir Valdimar og
bætir við að hann geti ekki annað
en verið ánægður með árið.
„Vorútgáfurnar gjalda alltaf svolít-
ið haustlátanna vegna þess að þegar
maður kemur út þetta snemma
árs þá upplifa margir mann eins
og fyrra árs varning.“ Hann bætir
aðspurður við að enn sé eitthvað til
af Blástjörnu efans og þá helst hjá
Eymundsson. „Þar er eitthvað eftir
en lítið orðið til á lager. Og einhver
eintök á skáldfuglinn í skjóðu sinni,“
segir skáldið sem selur sjálfur drjúgt
á tíðum ferðum sínum um höfuð-
borgarsvæðið.
„Já, já. Ég verð fyrir aðkasti og fólk
er að kaupa bókina. Þessi lágmæltu
orð ljóðsins, þau rata til sinna,“
segir skáldið sem er þannig í beinu
og góðu sambandi við ljóðelska les-
endur án þess að hafa nokkru sinni
sóst eftir né hlotið rithöfundalaun.
„Nei, ég kann ekkert á þessar
umsóknir. Ég fæ svona brauðafganga
hjá góðu fólki,“ segir Metsölu-Valdi
með prakkaralegu glotti. n
Notalegt að vera utan í Þórarni Eldjárn
Metsölu-Valdi kemur vel undan
ljóðagóðæri ársins 2022.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
MARKAÐURINN
MIÐVIKUDAGA KL. 19.00 OG 21.00
Vikulegur þáttur um íslenskt
viðskiptalíf þar sem farið er yfir
helstu viðskiptafréttir vikunnar
ásamt öðru því sem hæst ber í
efnahagslífinu hverju sinni.
Bibbi í Skálmöld var á tón-
leikaferðalagi með hljómsveit
sinni þegar hann skrifaði
þögnina ofan í Egil Ólafsson
og Ólaf Darra í auglýsingu
sem hefur hitt fjölda sjón-
varpsáhorfenda lóðbeint í
hjartastað þegar sá síðar-
nefndi tekur orðlaust við sem
rödd Toyota á Íslandi.
toti@frettabladid.is
„Það hefði ekki verið neitt mál að
láta þá bara koma keyrandi inn
á Land Cruiser-jeppum eða ein-
hverju, skilurðu? En þá er hjartað
svolítið farið,“ segir Snæbjörn Ragn-
arsson, bassaleikari Skálm aldar,
sem fékk það snúna en heillandi
verkefni að semja þögnina fyrir Egil
Ólafsson og Ólaf Darra Ólafsson í
auglýsingu þar sem Darri tekur við
af Agli sem rödd Toyota á Íslandi.
Bibbi, eins og hann er alltaf kall-
aður, starfar samhliða þungarokk-
inu hjá auglýsingastofunni PIPAR/
TBWA og segir þau hafa fengið þetta
„fallega verkefni“ í fangið nokkrum
dögum áður en Skálmöld lagði upp
í sex vikna tónleikaferðalag.
„Ég fór bara af stað í túrinn. Gat
ekkert bakkað með það,“ segir
Bibbi um hugmyndavinnuna sem
fór því „að mestu fram í kojunni
í hljómsveitarrútunni á ferð um
óslétta þjóðvegi Austur-Evrópu, og
fyrsta útgáfa handritsins varð til í
subbulegu bakherbergi í Leipzig.“
Súrrealískt raddleysi
Bibbi segir það óneitanlega svo-
lítið súrrealískt að vera orðinn of
seinn í sándtékk á meðan nokkur
fátækleg orð eru hömruð niður á
blað. „Og koma svo heim rúmum
mánuði síðar þegar allt er tilbúið
eftir þrotlausa vinnu hjá öllu þessu
hæfileikafólki.“
Bibbi segir það þó hafa verið
„gullverkefni“ að fá að gera aug-
lýsingu fyrir Egil og Ólaf Darra og
þetta hafi verið ógeðslega gaman
þótt vissulega hafi verið snúið að
skrifa þögnina inn í auglýsingu
sem þó hvílir á jafn mögnuðum og
þekktum röddum.
„Þarna eru svo augljóslega tvær
stjörnur. Að skrifa textalausa aug-
lýsingu er alltaf svolítið trikkí en
að gera það ofan í þessa tvo menn
voru alger forréttindi. Ég hafði
ákveðnar hugmyndir um túlkun
og ósögð orð en Egill Ólafsson og
Ólafur Darri Ólafsson færðu allar
þær hugmyndir upp á hærra stig.
Þarna fer saman fagmennska, list-
fengi, eitthvað óútskýranlegt og
fullkomið vald á öllu saman.“
Auglýst með hjartanu
Bibbi hefur auk þess að vera bassa-
leikari og textahöfundur Skálm-
aldar og einn Ljótu hálfvitanna
meðal annars skrifað sjónvarps-
efni og leikrit og segist alltaf koma
að auglýsingunum úr sinni listrænu
átt.
„Ég vinn á auglýsingastofu þann-
ig að ég vil halda Toyota á lofti. Ég
ætla ekkert að reyna að fela það
en mín alveg skothelda skoðun og
góða tilfinning er að allar bestu
auglýsingar heimsins eru þær sem
eru ekki að auglýsa neitt. Þar sem
þú ert í alvörunni að tala um eitt-
hvað sem skiptir máli,“ segir Bibbi
og tekur dæmi.
„Og ég verð alltaf, jafnvel þótt ég
sé bara að auglýsa fokking bolla-
súpu, að finna eitthvert hjarta í því.
Segja einhverja sögu í stað þess að
segja bara: Keyptu bollasúpuna
mína! Auðvitað eru tilefnin mis-
hjartnæm og það allt saman og
í þessu tilfelli öskruðu auðvitað
allar aðstæður á að það væri hægt
að gera eitthvað ógeðslega gott úr
þessu.“ n
Gyllt þögn Egils og Darra
Bibbi fann gull í þögn Darra og Egils.
FRÉTTBLAÐIÐ/ERNIR
30 ÁR SEM BREYTTU ÖLLU
EGILL ÓLAFSSON
TAKK FYRIR OKKUR
SAGAN HELDUR ÁFRAM
ÓLAFUR DARRI ÓLAFSSON
VELKOMINN TIL TOYOTA
Raddir þeirra Egils og Darra eru svo magnaðar að jafnvel þögn þeirra er þrungin merkingu sem fólk skilur. MyND/TOyOTA
26 Lífið 4. janúar 2023 MIÐVIKUDAGURFréttablaðið