Verktækni - 2020, Qupperneq 5

Verktækni - 2020, Qupperneq 5
5 Sjálfakandi ökutæki á Íslandi: Viðhorf almennings gagnvart nýjum ferðamáta Arnór B. Elvarssona,b, Haraldur Sigþórssonb,c,d aInfrastructure Management Consultants, 8008 Zürich, Sviss. b WISE-ACT COST Action 16222. cVerkfræðideild Háskólans í Reykjavík, Menntavegur 1, 102 Reykjavík. dVerkfræðistofa Haralds Sigþórssonar, Suðurhlíð 38d, 105 Reykjavík. Fyrirspurnir: Arnór B. Elvarsson arnor.elvarsson@gmail.com Greinin barst 5. október 2020. Samþykkt til birtingar 2. desember 2020. Ágrip Sjálfakandi ökutæki eru stundum álitin vera hin fullkomna lausn við samgönguvandamálum samtímans. Undir vissum sviðsmyndum er tæknin talin hafa marga kosti, meðal annars að bæta aðgengi fatlaðra, aldraðra, ungra og annarra sem ekki ferðast jafn auðveldlega nú til dags. Hins vegar, þá gæti tæknin haft í för með sér aðra síður eftirsótta eiginleika undir öðrum sviðsmyndum. Koma tækninnar mun hins vegar ekki raungerast nema hún verði samþykkt af notendunum, þ.e. almenningi. Viðhorf almennings gagnvart tækninni hafa ekki verið skoðaðar fyllilega, og sérstaklega ekki á íslenskri grundu. Í þessari grein er sagt frá niðurstöðum rannsóknar byggðri á spurningalista unnum á samstarfsvettvangi WISE-ACT í Evrópu og víðar. Spurningalisti var lagður fyrir íslenskan almenning og fékkst 561 gilt svar, bæði m.t.t. huglægra þátta og ferðamátavalskönnunar og þau greind eftir lýðfræðilegum þáttum svarenda. Eftir samanburð úrtaks og þýðis voru niðurstöður bornar saman við evrópskar niðurstöður Eurobarometer. Íslenskur almenningur er almennt séð jákvæðari gagnvart sjálfakandi ökutækjum en Evrópubúar í heild, en þó enn tortryggnir. Á sama tíma og farþegum sjálfakandi ökutækja líður betur en óvörðum farþegum í nálægð ökutækisins er víst að stórum hluta fólks liði betur sem farþega með eftirliti öryggisfulltrúa í ökutækinu. Þá er alls óvíst að fólk sé tilbúið að senda börn sín með ökutækinu. Svarendur voru almennt jákvæðari gagnvart því að flytja vörur á milli staða með sjálfakandi tækni. Þrátt fyrir þetta eru 70% svarenda jákvæðir gagnvart því að tæknin sé prófuð í þeirra nágrenni og 60% svarenda jákvæðir gagnvart því að prófa tæknina sjálfir. Frekari rannsóknir eru lagðar til á grundvelli mælistika sem varpað er fram í greininni. Lykilorð: ferðamátaval, viðhorf, sjálfakandi, öryggi. Abstract Automated vehicles (AVs) are sometimes considered a silver bullet for contemporary transport problems. For particular scenarios, the technology is believed to have many advantages, such as improving the accessibility of underserved populations. However, the technology may also lead to lesser consequences under other scenarios, with some

x

Verktækni

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Verktækni
https://timarit.is/publication/957

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.