Verktækni - 2020, Blaðsíða 43

Verktækni - 2020, Blaðsíða 43
43 fleiri nemendur, meiri fjármuni og aðgang að fyrirtækjum í bílaiðnaðinum. Metnaður þessara nemenda er mikill, í raun miklu meiri en geta liðsins. Þetta má mögulega rekja til skorts á hugrænni færni (Liðsvitund = 1). Liðið hefur öll árin – fyrir utan eitt – smíðað frumgerðir af bíl en ekki náð að prófa þær. Skortur á prófunum – fyrir og eftir keppnir – á bílnum og íhlutum hans hefur orðið til þess að lítil þekking hefur byggst upp í gegnum árin. Vegna þess þá hefur framþróunin verið mjög hæg. Það var ekki fyrr en 2018 og 2019 að fyrstu bílarnir keyrðu löglega á erlendum keppnum. Bílarnir voru hins vegar ekki tilbúnir þegar þeir voru sendir út og þurfti að vinna í þeim á keppnisstað til að koma þeim í gegnum reglu- og öryggisprófanir. a. Liðsskipulag (8/14) Langflestir nemendanna eru nemendur á fyrsta og öðru ári í grunnnámi. Örfáir nemendur hafa reynslu og/eða fræðilega þekkingu sem nýtist í verkefninu. Vegna þessa fer stór hluti af tíma þeirra, yfir veturinn, í að kynnast verkefninu – læra keppnisreglurnar, kröfurnar og fyrirkomulagið – sem og læra á hugbúnaðartólin og öðlast yfirborðsþekkingu á þeim fræðum sem þau þurfa að nýta til að endurhanna og endurbæta bíl síðasta árs (Liðseiginleikar = 2). Í upphafi vetrar er nemendahópnum skipt upp í 3-5 manna hópa sem hver vinnur að ákveðnum viðfangsefnum yfir veturinn; til dæmis, fjöðrunarhópur sem sér um að endurbæta og smíða nýtt fjöðrunarkerfi og drifkerfishópur sem sér um að endurbæta og smíða nýtt drifkerfi. Nemendur velja sjálfir hópa eftir áhugasviði nema þegar sárlega vantar í ákveðinn hóp. Þegar það kemur upp þá aðstoðar stjórnin við finna nemendur til að manna hópinn (Liðssamsetning = 2). Verkefnið hefur aðstöðu á háskólasvæðinu til að vinna að verkefninu en hluti af smíði bílsins fer fram í húsnæði fyrirtækja sem styðja verkefnið (Samstaðsetning = 2). Fyrir þátttöku í verkefninu fá nemendur þrjár ECTS einingar á haustönn og aðrar þrjár ECTS einingar á vorönn. Nemendur sem taka þátt aftur sitja námskeiðin aftur. Þátttaka í verkefninu gefur nemendum einnig tækifæri á að fylgja liðinu á keppnir erlendis. Flestir nemendanna taka þátt í verkefninu í eitt skólaár (tvö misseri). Nemendur sem taka þátt aftur verða í flestum tilfellum hópstjórar eða hluti af stjórnunarhópunum. Þessir nemendur þekkja því til verkefnisins en þeir hafa litla sem enga reynslu eða fræðilega þekkingu í verkefnastjórnun. Margir þeirra ferla sem eru notaðir í verkefninu eru vegna stutts þátttökutíma nemenda í verkefninu. Eldri útskrifaðir nemendur hafa haldið tengslum við verkefnið og verið nemendum innan handar – oft litið við á kvöldin eftir vinnu til að aðstoða. Þetta hefur reynst verkefninu og nemendum vel. Annars vegar er þetta mikilvægur þáttur í að viðhalda þekkingu (sem er ekki skráð í dag) og hins vegar hefur þetta hjálpað nemendum að ná fyrr tökum á viðfangsefnum vetrarins. Sterk tenging við eldri nemendur hefur einnig neikvæða hlið því hún torveldar leiðbeinendum að innleiða nýja og bætta vinnuferla (Skipulagðir ferla = 1). Nemendur hafa unnið að því að koma upp skráningu og skipulagi en vinnan hefur aldrei verið kláruð. Vinnan hefur oft verið endurvakin, því nemendur átta sig á þörfinni, en tími nemenda er takmarkaður og því hefur vinnan fallið fljótt í skuggann fyrir meira aðkallandi verkefnum. Skortur er á skipulögðum ferlum við ákvarðanatöku og vinnu liðsins. Að auki eru engir ferlar til fyrir mat á eldri og nýrri hönnun eða fyrir endurbætur. Vegna þessa hefur meðal annars verið skortur á notkun mælinga við staðfestingu á hönnun, mat á fyrri hönnun og við endurhönnun. Skortur á skráningu hefur orðið til þess að þekking byggist hægt og illa upp, sem dæmi má nefna að endurgjöf frá keppnum hefur ekki skilað sér á milli ára og endurteknar athugasemdir dómara frá fyrri árum hafa hljómað í eyrum nýrra liðsmanna sem nýjar athugasemdir (Upplýsingageymsla = 1).
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54

x

Verktækni

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Verktækni
https://timarit.is/publication/957

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.