Verktækni - 2020, Qupperneq 9

Verktækni - 2020, Qupperneq 9
9 á dýrari vörum. Helsti kostnaður við vöruflutninga er starfsmannakostnaður og er því ljóst að eftirspurn eftir vöruflutningum gæti aukist töluvert. Benda má á að iðnaðarrisinn Rio Tinto er með að minnsta kosti 150 sjálfakandi vörubíla í rekstri á vinnusvæði sínu í Ástralíu (Fagnant & Kockelman, 2015). 2.3. Viðhorf til nýs ferðamáta m.t.t. ferðamátavals Harper og félagar (2016) gerðu áhugaverða samantekt á rannsóknum sem byggja á ferðadagbókum. Ferðadagbækur eru hluti af manntalsgögnum um þætti sem hafa áhrif á heild ekinna ökutækjakílómetra. Childress, Nichols, Charlton & Coe (2015) bentu á að aukning væri á breiðu bili -35% til 20% vegna breytinga á ferðatíma, umferðarrýmd, bílastæðagjöldum og veggjöldum. Aðrir eru sammála því að aukning ekinna ökutækjakílómetra muni eiga sér stað t.a.m. vegna tómra ferða sjálfakandi deilibíla um 11% (Fagnant & Kockelman, 2014) og afleiddrar umferðar vegna aukins aðgangs ungra, aldraðra og fatlaðra að samgöngukerfinu (Harper et al., 2016). Áhrifin á heildarferðatíma og umferðartafir eru þó ekki jafn ótvíræð og eru háð bæði þróun umferðarrýmdar, eftirspurn eftir vegplássi á háannatímum og verðlagningu fyrir þjónustu sjálfakandi bíla auk samkeppnishæfni ferðamátans í samanburði við aðra ferðamáta. Það má vera ljóst að aukin bílaeign muni ekki leiða til minnkunar tafa að öðru óbreyttu enda munu ökumenn, nú farþegar, finna fyrir minni streitu í umferð. Til að greina heildaráhrifin hafa umfangsmikil líkön verið sett upp og ýmsar sviðsmyndir prófaðar. Strjál vallíkön (e. Discrete choice models) eru þannig notuð til að líkja eftir vali á milli strjálla valkosta, hver með notagildi U, þar sem líkur til að velja ferðamáta i er lýst sem 𝑃! = 𝑒"! ∑ 𝑒"!!⁄ (Train, 2003). Bösch, Ciari & Axhausen notuðu forritið MATSim til að setja upp fulltrúalíkan (e. agent-based model) byggt á Zürich borg, ferðadagbókum og lýðfræðilegum breytum fulltrúa (Bösch, Ciari & Axhausen, 2016). Með strjálum vallíkönum er því hægt að líkja eftir ferðamátavali einstaklinga og komust Bösch og félagar að því að með 10% bílaflota sjálfakandi leigubíla mætti afgreiða ferðaþarfir yfir 95% allra daglegra ferða fulltrúanna í samfloti með öðrum með að hámarki 10 mínútna biðtíma. OECD gaf út skýrslu árið 2015 byggða á sambærilegu líkani fyrir Lissabon sem sýndi fram á um 65% fækkun heildarfjölda bíla í borginni með samspili sjálfakandi ökutækja í samfloti og almenningssamgangna. Ef ferðir eru farnar með sjálfakandi ökutækjum án samflots og án almenningssamgangna leiddi slíkt til 89% aukningu í eknum kílómetrum. Slíkt á einnig við um sviðsmynd þar sem 50% farartækjanna voru sjálfakandi í samfloti og 50% voru hefðbundnir einkabílar, sem gefur til kynna að umskiptin frá hefðbundnum bílum yfir í sjálfakandi ökutæki munu ekki vera sársaukalaus (OECD, 2015). Að nota ferðamátavalskannanir til að greina eftirspurn samgangna sýnir áhrif nýrra hugsanlegra samgöngumáta og þjónustu (Yang, Choudhury, Ben-Akiva, Abreu e Silva, & Carvalho, 2009). Slík strjál vallíkön hafa ekki verið unnin fyrir íslenskar kringumstæður að vitund höfunda, en Etzioni og félagar unnu að rannsókn til samanburðar á Bretlandi, Ungverjalandi, Austurríki, Slóveníu og Kýpur auk Íslands (Etzioni et al., 2020). Val svarenda stóð á milli sjálfakandi bíls í einkaeigu og hefðbundins bíls í einkaeigu. Niðurstöður sýndu að ríkari lönd, hafa síður jákvæð viðhorf gagnvart sjálfakandi ökutækjum. Bílnotendur völdu frekar venjulega bílinn áfram og konur völdu einnig bílinn frekar en sjálfakandi ökutæki. Á Íslandi fengust einnig marktækar niðurstöður fyrir virði ferðatíma eftir ferðamáta, n.t.t. 64 € per klst fyrir sjálfakandi ökutæki og 53€ per klst fyrir venjulegan bíl, sem gefur annars til kynna að efnameiri velji sjálfakandi ökutæki en líka að svarendur sjái ekki ávinning af því að velja sjálfakandi ökutæki.

x

Verktækni

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Verktækni
https://timarit.is/publication/957

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.