Verktækni - 2020, Qupperneq 33
33
Frammistöðumat á umfangsmiklum nemendateymum
Rúnar Unnþórssona, Guðmundur V. Oddssona.
aIðnaðarverkfræði-, vélaverkfræði- og tölvunarfræðideild, Háskóla Íslands,
Hjarðarhaga 2-6, 107 Reykjavík.
Fyrirspurnir:
Guðmundur V. Oddsson
gvo@hi.is
Greinin barst 5. október 2020.
Samþykkt til birtingar 14. desember 2020
Ágrip
Höfundar hafa þróað aðferðafræði fyrir kennara til að hjálpa þeim við að meta frammistöðu í
umfangsmiklum nemendateymum í verkfræðinámskeiðum. Í þessari grein munum við sýna
aðferðafræðina með tilviksrannsókn. Viðfangsefnið er verkefnanámskeið sem kennt hefur
verið við Háskóla Íslands í 10 ár. Í námskeiðinu hanna nemendur eins sætis
rafmagnskappakstursbíl, smíða hann og keppa á honum á erlendum keppnum. Markmið
námskeiðsins hvert ár er það sama – að endurbæta hönnun síðasta vetrar. Frammistaða
nemenda – metin útfrá stigum sem þeir hafa fengið á keppnunum – hefur nánast verið sú
sama öll árin. Tilraunir kennara til að bæta frammistöðuna hafa ekki skilað árangri.
Niðurstöður sýna að með því að beita aðferðafræðinni sem höfundar hafa þróað þá geta
kennarar fengið gott yfirlit yfir þá þætti sem hafa áhrif á frammistöðu nemendanna og öðlast
góðan skilning á því hvað mögulega kemur í veg fyrir framþróun. Aðferðafræðin er öflugt tól
sem er auðvelt að nota til að greina kerfisbundið frammistöðu nemenda og bera kennsl á
vandamál. Notandinn verður að meta hvern þátt og gefa einkunn með rökum. Þessi
kerfisbundna nálgun veitir góðan skilning á virkni teymisins, hún hjálpar til við að sjá hvar
vandamálin liggja og hjálpar til við að ákveða hvaða þætti þarf að skoða frekar. Þó að
aðferðafræðin hafi verið hönnuð til að meta teymi nemenda þá bendir allt til þess að hún gæti
verið nytsamleg til að meta frammistöðu annarra teyma – til dæmis í atvinnulífinu.
Lykilorð: Frammistaða, teymi, nemendur, mat.
Abstract
A methodology has been developed aimed at helping teachers to evaluate the performance
of extensive student teams in engineering courses. The paper demonstrates the
methodology with a case study. The case is a project course that has been taught at the
University of Iceland for 10 years. In the course, students design a one-seater electric race
car, build it and compete in it at foreign competitions. The aim of the course each year is the
same - to improve the last design. The students' performance - judged on the points received
in the competitions - has been nearly the same all these years. Attempts by teachers to help
the students to improve their performance have not been successful. The results show that
by applying the methodology developed by the authors, teachers can get a good overview of
the factors that affect students' performance and gain a good understanding of what possibly
hinders progress. The methodology is a powerful tool that is easy to use to systematically
analyse student performance and identify problems. The user must evaluate each factor and