Verktækni - 2020, Page 36
36
nemendateymið að fást við önnur smærri vandamál en það var mjög erfitt að bera kennsl á
þau og segja til um hvort rekja mætti frammistöðustöðnunina til þeirra.
Mynd 12 – Stig sem nemendur fengu á Formula Student keppnum. Appelsínu tíglarnir sýna stig frá kyrrstæðum
keppnisgreinum og bláu hringirnir sýna heildarstigin (bæði kyrrstæðar og hreyfanlegar keppnisgreinar). Ástæða
fyrir því að heildarstig eru lægri en stig fyrir kyrrstæðu keppnisgreinarnar – t.d. 2017 – er vegna refsistiga.
Þess ber þó að geta að nemendur hafa verið óhemju duglegir öll árin þannig að stöðnunina
var ekki hægt að rekja til þess að nemendur væru ekki að leggja sig fram. Í raun notuðu
nemendur töluvert meiri tíma en úthlutað er í námskeiðið, eða um 150-180 klst. yfir veturinn
(6 ECTS einingar). Þetta er þekkt þegar nemendur vinna að verkefnum sem þeir hafa áhuga
á. Benjamin og Keenan [6] sögðu frá svipaðri þátttöku nemenda í verkfræðilegu
hönnunarnámskeiði þar sem stuðst var við verkefnamiðað nám
Í næsta kafla, kafla 2, munum við stuttlega kynna aðferðafræðina. Áhugasömum lesendum
er bent á Oddsson og Unnþórsson [3] ef þeir vilja fá nánari upplýsingar um hvernig
aðferðafræðin var búin til. Í kafla 3 förum við í gegnum aðferðafræðina, gefum hópþáttum
einkunn og gefum lýsingar á stöðu þeirra. Í kafla 4 tökum við einkunnagjöfina saman og
skoðum niðurstöður aðferðafræðinnar. Í kafla 5 tökum við saman og ræðum niðurstöður
greinarinnar.
Aðferðafræði
Til að meta frammistöðu nemendateymisins notuðum við aðferðafræði sem við höfum þróað
[3]. Hún er kerfisbundin aðferð og byggir á niðurstöðum fjölda ritrýndra vísindagreina um mat
á árangri teyma í kennslu. Við höfðum í huga að útbúa tól sem gæti hjálpað við að bera
kennsl á og draga fram hvar frammistöðuvandamál nemendateymis liggja – nokkurs konar
hitamælir á frammistöðu teymisins. Við notkun aðferðafræðinnar þarf að fara í gegnum 43
mismunandi frammistöðuþætti og meta þá. Þættirnir voru síðan í sjö hópa til að auðvelda
sjónræna framsetningu niðurstaðna (Tafla 5). Niðurstöðurnar má þá rýna í töflu eða með
ratsjárriti.
Upplýsingunum um frammistöðu liðsins var safnað með ítarlegum viðtölum við kennarana tvo
sem hafa leiðbeint nemendum í námskeiðinu frá upphafi. Viðtalsniðurstöðurnar voru notaðar
til að gefa hverjum frammistöðuþætti einkunn. Við ákváðum að nota einfaldan þriggja stiga