Verktækni - 2020, Page 42

Verktækni - 2020, Page 42
42 stjórnunin verið meira á jafningjagrunni. Jafningjastjórnun er mikilvæg því námskeiðið er valnámskeið og nemendur sem skrá sig eru mjög áhugasamir (Þvingunaráhrif = 0). Flestir nemendur gera sitt besta miðað við getu og aðstæður. Stakir hópar vinna þétt saman og andrúmsloftið einkennist af hjálpsemi, áhuga og metnaði fyrir því að mæta með nýjan betri bíl í næstu keppni (Þættir trausts = 2). En ekki eru allir nemendur sammála um hvaða atriði á að bæta fyrir næstu keppni – oftast hafa eldri nemendur náð að stjórna því. Upp hafa komið einstaka tilvik um félagslega leti, þ.e. nemendur hafa ekki lagt sig fram í hópvinnunni, en hún hefur ekki verið liðin af samnemendum því þá eykst álagið á hina meðlimi hópsins, sem er mikið fyrir. Í öllum tilvikum hefur þetta verið leyst, annað hvort með tiltali, með því að færa nemanda í annan hóp, eða með því að vísa nemanda úr verkefninu (Félagsleg leti og meðvirkni = 2). Í gegnum árin hefur einhvers konar liðsmenning mótast hjá nemendunum. Nemendurnir – sem lið – hafa mótað sameiginlega hugmynd um hluta þeirra verka sem þarf að vinna og innbyrðis tengsl þeirra. En þeir hafa ekki endurmetið verkin og tengsl þeirra út frá fyrri frammistöðu, tiltækum úrræðum og markmiðum liðsins. Þess vegna hafa nemendur aðeins sinnt hluta nauðsynlegra verka og stór hluti af þeim er að koma nýjum nemendum inn í verkefnið. Nemendurnir hafa í upphafi skólaársins mjög takmarkaða þekkingu á verkefninu, takmarkaða verkreynslu og verkþekkingu. Yfir skólaárið öðlast þessir nemendur – í gegnum eljusemi og dugnað – óhemjumikla reynslu og þekkingu. Það er því mikill munu á getu og skilningi liðsins í upphafi og enda skólaársins. Í upphafi vetrar gert átak í að koma nýjum nemendum sem hraðast inn í verkefnið. Það krefst töluverðrar vinnu af hálfu eldri nemenda en vinnan hefur verið gerð auðveldari með skipulagðri kennsluáætlun þar sem til að mynda er farið yfir reglur keppninnar og nemendur þjálfaðir í notkun hönnunarhugbúnaðarins Inventor (Liðsþjálfun = 1). Reynsla síðustu ára hefur sýnt að liðið er samheldið og sveigjanlegt þegar á reynir. Í tvö skipti hefur komið upp sú staða að nánast allir nemendur í ákveðnum hópi hættu í verkefninu. – Í þeim tilvikum stóð liðið saman og sýndi sveigjanleika með því að færa nemendur úr öðrum hópum yfir í viðkomandi hóp til að tryggja að verkefnið yrði ekki fyrir skaða (Liðseinkenni = 1, Aðlögunarerfiðleikar = 2). Nemendurnir hafa komið sér upp kerfi til að takast á við rauntímamál (vikulegir fundir) og þeir hafa einnig þróað kerfi innri ráðgjafa (hópstjórar og meðlimir hópa). Þeir hins vegar hafa ekki þróað skilning á sérstöðu – þ.e. að standa sig vel í keppnum og koma sér upp ferli fyrir hugmyndir. Skilningur liðsins á sérstöðu er að vekja athygli í keppni burtséð frá því hvort bílinn keyrir eða ekki. Metnaðurinn hefur aðallega gengið út á að liðið mæti með sérstakan bíl, bíl sem tekið verður eftir, á næstu keppni – t.a.m. með koltrefjaskrokk, fjórhjóladrif o.fl. Allt spennandi hugmyndir – sem stóru og vel fjármögnuðu skólarnir eru að vinna að – en ekki viðeigandi fyrir lið Háskóla Íslands þar sem nemendur hafa ekki enn náð tökum á að búa til áreiðanlegan bíl og klára alla keppnisþætti erlendu keppnanna. Ekkert formlegt ferli er fyrir hugmyndir. Tæknileg markmið eru óskilgreind og hóparnir ákveða sjálfir markmið sín fyrir nýja bílinn. Að mestu út frá tilfinningu og án samræmingar milli hópa. Þannig að ferlið við ákvarðanatöku er ekki í föstum skorðum. Það byggir ekki á heildarmarkmiði liðsins og að litlu til á gögnum – þ.e. mælingum og endurgjöf frá dómurum og leiðbeinendum (Liðslærdómur = 1). Markmið liðsins á hverju ári stjórnast að mestu af eldri nemendum – sem oftast taka þátt sem hópstjórnendur. Metnaður þessara nemenda er að mæta með bíl sem stendur jafnfætis bílum erlendu háskólanna. Erlendu háskólarnir sem þeir miða við hafa mun betri aðstöðu,

x

Verktækni

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Verktækni
https://timarit.is/publication/957

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.