Verktækni - 2020, Side 46
46
Vegna skorts á almennilegum hönnunargögnum er samræmi verka hverfandi. Flækjustig
verka er mjög hátt vegna þeirra fjölda verka sem þarf að klára, þ.e.a.s. frá hönnun, smíði,
samsetningu, prófunum og kappakstri á bílnum. Fjölbreytni og ónákvæmni upplýsinga sem
og tímapressan bæta enn frekar við flækjustigið (Flækjustig verka = 1).
Vegna þess að tæknihóparnir fimm vinna að verkum sem eru háð hvort öðru, til dæmis
burðarvirkið, fjöðrun, raf- og drifkerfið, þá þurfa þeir að eiga náin og góð samskipti á meðan
þeir vinna að hönnun. Það er mikilvægt til að tryggja að allir íhlutir passi og það sé gert ráð
fyrir þeim. Þess vegna verður að miðla skýrt heildar hönnunarmarkmiðinu til hópanna og allar
hönnunarbreytingar verða að vera ræddar og samþykktar af öllum viðkomandi hópum
(Gagnvirkni verka =1).
1.4. Samskipti (5/6)
Samskipti nemenda eru mjög virk – innan hópa, milli hópstjóra og milli hópstjóra og
stjórnendateymisins. Samskiptin eru öll á jafningjagrundvelli, oftast milli tveggja einstaklinga
og snúa aðallega að tæknilegum úrlausnarmálum og verkáætlunum. Samskiptin fara að
mestu fram munnlega og í gegnum samskiptaforrit eins og Slack. Samskipti nemenda í
verkefninu eru mikil, innan hópa sem og milli hópa. Til viðbótar þá eru hópstjórar og
stjórnendahópur verkefnisins í daglegum samskiptum. Samskipti nemenda við leiðbeinendur
fara aðallega í gegnum stjórnendahóp verkefnisins. Nemendur hafa hins vegar nefnt í
kennslukönnunum að þeir hefðu viljað hafa meira samband við leiðbeinendur (Innri samskipti
= 2).
Fundagerðir hafa verið mjög takmarkaðar. Misræmi í samskiptum nemenda er eðlilegt og
leysist í langflestum innan nokkurra mínútna. Oft hefur mátt rekja misræmi til misheyrnar en
misræmið hefur stundum verið vegna þekkingar og reynsluleysis. Alvarlegra misræmi kemur
upp þegar stjórnendur og jafnvel hópstjórar ná ekki að miðla ákvörðunum sínum til allra
nemendanna í verkefninu þannig að þeir skilji þær. Þetta getur orðið til misskilnings varðandi
heildarmarkmið verkefnisins sem og markmið og væntingar til hópa (Misræmi í samskiptum =
1).
Samskipti stjórnendahópsins við leiðbeinendur hafa verið brottgeng í gegnum árin. Flest árin
hafa samskiptin verið mjög góð en í tvö ár urðu þau mjög slæm. Að hluta til má segja að
slæmu samskiptin hafi verið vegna misskilnings nemenda. Samkvæmt stjórnendahópunum
þessi tvö ár þá töldu þeir að verkefnið væri sjálfstætt – það hefði haft sína kennitölu og sinn
bankareikning – og samskipti við leiðbeinendur vera sama eðlis og önnur samskipti við aðila
innan skólans. Það verður látið liggja á milli hluta hvort þessi eftir á skýring sé rétt ástæða
fyrir samskiptaörðugleikunum. Önnur samskipti nemenda út fyrir Háskólann; þ.e., við
atvinnulífið og önnur lið hafa verið til fyrirmyndar (Ytri samskipti = 2).
Mat á heildarframmistöðu nemenda í verkefnisnámskeiði í verkfræði
Þegar öllum frammistöðuþáttum hefur verið gefin einkunn er hægt að meta
heildarframmistöðuna. Það eru margar leiðir til þess. Eins og áður segir hafa allir
frammistöðuþættir jafnt vægi. Heildarframmistöðueinkunnin er 50%. Hún er fæst með því að
leggja saman stig allra frammistöðuþátta og deila með hámarksstigum. Tafla 7 sýnir
niðurstöðurnar. Dálkur 2 sýnir stigin sem nemendur fengu í hverjum þáttahóp, alls 43 stig.
Dálkur 3 sýnir hámarksstig sem hægt er að fá, alls 86 stig. Dálkur 4 sýnir
frammistöðueinkunn í hverjum þáttahóp. Litirnir standa fyrir lágmarks (rautt), meðal (gult) og
góða (hvítt) frammistöðu.
Tafla 7 – Heildarstig þáttahópa, hámarksstig sem hægt er að fá í hverjum hóp, einkunn fyrir hvern hóp og mat á
heildarframmistöðu með því að leggja jafnt vægi á frammistöðuþætti.