Morgunblaðið - 06.10.2022, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 06.10.2022, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. OKTÓBER 2022 Bi rt m eð fy rir va ra um pr en tv ill ur .H ei m sf er ði rá sk ilj a sé rr ét tt il le ið ré tti ng a á sl ík u. At h. að ve rð ge tu rb re ys tá n fy rir va ra . 595 1000 Flórens Borgdraumanna... 17.nóvember í3nætur 119.000 Flug & hótel frá Frábært verð á mann Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Gísli Freyr Valdórsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Winkel Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Guðni Einarsson gudni@mbl.is Umhverfisstofnun (UST) telur að áhrif stórfelldra vikurflutninga frá Mýrdalssandi á loftgæði í íbúða- byggð á flutningsleiðinni verði ekki óverulega neikvæð, eins og fram- kvæmdaraðili telur, heldur nokkuð neikvæð til talsvert neikvæð. UST telur að helstu áhrifin á loftgæði verði frá flutningi efnisins. Þetta kemur fram í umsögn UST um mat á umhverfisáhrifum efnis- töku á Mýrdalssandi. Framkvæmd- inni fylgir að á næstu 100 árum verði hægt að taka um 146 milljónir rúm- metra af vikri við Hafursey. Teknir verða 286.000 rúmmetrar fyrsta árið en aukið á fimm árum í 1,43 milljónir rúmmetra á ári. Þaðan í frá verður það árlegur útflutningur. Gert er ráð fyrir að aka þessu efni til Þorláks- hafnar og flytja það þaðan til Þýska- lands. Talið er að það að nota vikur af Mýrdalssandi til steypuframleiðslu í stað sementsgjalls muni draga ár- lega úr kolefnislosun sem nemur 800 milljónum kílóa koltvísýringsígilda, þegar búið er að taka losun vegna flutninga með í reikninginn. „Í matsskýrslunni eru einungis metin áhrif á losun á heimsvísu en ekki metin neikvæð áhrif hvað varð- ar skuldbindingar Íslands í loftslags- málum. Enginn vafi er því á að þeir efnisflutningar sem rætt er um í skýrslunni muni hafa áhrif til aukn- ingar losunar hér á landi. Gera má ráð fyrir að framkvæmd- in hafi áhrif á losunarbókhald Ís- lands á þrjá vegu: Losun gróður- húsalofttegunda vegna olíubruna vinnuvéla við námavinnslu á Mýr- dalssandi, vegna olíubruna vörubíla við vikurflutninga frá Mýrdalssandi til Þorlákshafnar og vegna olíubruna við skipaflutninga vikurs til megin- lands Evrópu,“ segir í umsögn UST. Neikvæð áhrif vikurflutn- inga á loftgæði í byggð - Efnisflutningarnir munu valda aukinni losun á Íslandi Morgunblaðið/Jónas Erlendsson Vikurnám Áform eru um að nema efni úr Háöldu austan við Hafursey. Ragnheiður Birgisdóttir ragnheidurb@mbl.is Samningur samninganefndar ríkis og sveitarfélaga um móttöku flótta- manna hefur legið fyrir síðan í júní síðastliðnum. Guðmundur Ingi Guð- brandsson, félags- og vinnumark- aðsráðherra, segir þennan samning vera á borðum sveitarfélaganna en að enn hafi engin sveitarfélög skrif- að undir hann. Húsnæðisskortur sé helsti vandinn þegar kemur að mót- töku flóttafólks. Allra leiða sé leitað við að finna húsnæði. „Ekkert sveitarfélaganna er búið að skuldbinda sig í þessa þjónustu við flóttafólk sem lagt er upp með í samningnum. En sveitarfélögin eru að sinna víðtækri og mikilvægri þjónustu við flóttafólk eins og aðra íbúa. Mér finnst brýnt að við náum að klára þetta sem allra fyrst,“ segir Guðmundur Ingi. „Auðvitað yrði það gott fyrir sveitarfélögin því um er að ræða fjárhagslegan stuðning við þá þjón- ustu sem sveitarfélögin eru þegar að veita flóttafólki eins og þeim ber að gera samkvæmt lögum.“ Hann segir ýmis sveitarfélög vera með samninginn í ferli innan sinnar stjórnsýslu. „Mörg þeirra eru ein- faldlega að skoða þetta. Ég veit að sum þeirra hafa einhverjar athuga- semdir sem þau vilja ræða frekar við okkur og það þarf þá bara að taka þann tíma sem það tekur.“ Byggðarráð Borgarbyggðar hefur þegar samþykkt samninginn og verður hann í kjölfarið lagður fyrir sveitarstjórn. Skoða gáma og sendiráð Spurður út í húsnæðismál flótta- fólks sem hingað streymir segir ráð- herra að með fjöldahjálparstöð eins og opnuð var í Borgartúni í gær sé verið að kaupa tíma þar til varan- legra húsnæði finnst. „Þetta er samt mikilvægur hlekk- ur í móttöku flóttafólks þegar mjög margt fólk kemur og staðan á hús- næðismarkaði er eins og hún er. Þess vegna er aðkoma Rauða kross- ins mjög mikilvæg. En við vonumst til þess að hver og einn þurfi ekki að dvelja mjög lengi þarna. Til lengri tíma litið þurfum við að horfa til þess að það sé byggt meira í landinu. En við þurfum að skoða aðrar lausnir í húsnæðismálum ef húsnæði hér heldur áfram að vera allt fullt á sama tíma og fleiri og fleiri koma til landsins.“ Að sögn Guðmundar Inga er reynt að komast hjá því að hýsa flóttafólk á hótelherbergjum, annars vegar vegna þess að þar séu ekki kjöraðstæður fyrir flóttafólkið og hins vegar vegna þess að það sé kostnaðarsamt. Gylfi Þór Þorsteinsson, aðgerða- stjóri stjórnvalda við móttöku flótta- fólks, segir að þegar komi að hús- næðismálum sé verið að skoða ýmsar lausnir. „Við erum á harða- hlaupum að reyna að útvega meira húsnæði.“ Meðal annars sé horft til þess hvernig þjóðirnar í kringum okkur leysi þessi mál. Þar hafi mál til dæmis verið leyst með því að reisa nokkurs konar gámabyggð. Gylfi tekur fram að ekki sé átt við „gáma eins og maður sér niðri á höfn“ held- ur sé um að ræða byggingarefni sem bæði gististaðir hér á landi og leik- skólar hafi verið byggðir úr. „En það hefur ekki verið tekin ákvörðun um neitt slíkt og ekki ver- ið skoðað hvar væri hægt að koma slíkri byggð upp. Svo eru aðrar lausnir til, t.d. einingahús úr timbri.“ Hann nefnir einnig að verið sé að skoða húsnæði sem hefur áður verið atvinnuhúsnæði. Þar sé hægt að búa ef lagt sé í ákveðnar breytingar. „Gamla bandaríska sendiráðið er eitt af þeim húsum sem við höfum skoðað. Það liggur fyrir að hægt er að breyta því húsnæði þannig að hægt sé að hýsa fólk til skamms tíma, allt upp í átta vikur.“ Einnig séu héraðsskólar úti á landi til skoð- unar. Vel gangi til dæmis á Eiðum. Í frumvarpi til fjáraukalaga Guðmundur Ingi segir að kostn- aður við móttöku flóttamanna fari fram úr áætlunum enda streymi fleira fólk að en gert var ráð fyrir þegar fjárlög voru samþykkt í des- ember síðastliðnum. Nú sé verið að vinna að frumvarpi til fjáraukalaga og þar muni vera gerð grein fyrir því hversu mikill aukakostnaður þetta stefnir í að vera. Hann hafi þó ekki heildarmynd af kostnaðinum fyrir framan sig en hann muni liggja fyrir þegar frumlagið verði kynnt. Spurður hvort íslenska ríkið ráði einfaldlega við verkefnið segir hann: „Þetta eru stórar áskoranir sem fylgja þessu. Því er ekki að neita. En við þurfum og ætlum okkur að standa við alþjóðlegar skuldbinding- ar um að taka á móti fólki í neyð. Við ætlum okkur líka að standa við þær skuldbindingar sem sérstaklega fylgja stríðsrekstrinum í Úkraínu þar sem var tekin ákvörðun um það að fólk sem þaðan kæmi fengi hér dvalarleyfi af mannúðarástæðum.“ Miklar áskoranir fylgja móttöku flóttafólks - Sveitarfélögin enn ekki skrifað undir samning - Leita lausna í húsnæðismálum Morgunblaðið/ Kristinn Magnússon Lausnir Húsnæði við Laufásveg sem áður hýsti sendiráð Bandaríkjanna er meðal þeirra bygginga sem til skoðunar er hvort hýst geti flóttamenn. Fyrir liggur að breyta þyrfti húsinu en væri það gert gæti fólk dvalið þar í átta vikur. Gylfi Þór Þorsteinsson Guðmundur Ingi Guðbrandsson Gunnlaugur Snær Ólafsosn gso@mbl.is „Góð vertíð skiptir íslenskt sam- félag auðvitað máli, hvort sem við horfum á útflutningstekjur, atvinnu eða tækifæri víða um land,“ segir Bjarni Benediktsson fjármála- ráðherra, er hann er inntur álits á því hve lítil kom- andi loðnuvertíð virðist ætla að verða. Hafrannsókna- stofnun leggur til að hámarksafli á komandi loðnu- vertíð verði 218 þúsund tonn og reikna má með að um 134 þúsund tonnum verði ráðstafað íslenskum skipum, mun minna en þau fengu á síðustu vertíð. Útflutningstekjur vegna næstu loðnuvertíðar gætu því orðið 20 milljörðum lægri en á þeirri síðustu. „Það gefur augaleið að sam- dráttur á þessu sviði hefur áhrif. […] Hér skiptir líka máli að verð sjávarafurða hefur hækkað stöðugt undanfarið hálft annað ár og hefur aldrei verið jafnhátt í erlendri mynt og nú í sumar. Það vinnur með okk- ur og vegur upp á móti mögulega minni afla. Breytileiki í veiði á upp- sjávartegundum milli ára dregur hins vegar skýrt fram mikilvægi þess að eiga fjárhagslega stöndug fyrirtæki í greininni, sem geta stað- ið af sér sviptingar og skapað verð- mæti fyrir samfélagið,“ segir Bjarni. Endanleg ráðgjöf ræðst af mæl- ingu veiðistofns í janúar eða febrúar og eru bundnar vonir við að ráð- gjöfin aukist, en ráðgjöfin getur al- veg eins minnkað mælist lítið af loðnu. Bjarni telur ráðgjöfina ekki kalla á sérstök viðbrögð af hálfu stjórn- valda. „Heilt yfir er góður gangur í hagkerfinu og við erum í öfunds- verðri stöðu miðað við mörg ná- grannaríki okkar, verandi að miklu leyti sjálfbær í orkumálum, með sterkar útflutningsgreinar, lítið at- vinnuleysi og nokkuð bjartar horfur bæði hvað varðar skuldaþróun og verðbólgu.“ »24 Hærra verð vegur á móti minni afla - Fjármálaráðherra óttast ekki samdrátt Bjarni Benediktsson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.