Morgunblaðið - 06.10.2022, Síða 4

Morgunblaðið - 06.10.2022, Síða 4
4 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. OKTÓBER 2022 NET LAGERSALA ALLT AÐ 80% AFSLÁTTUR Ragnheiður Birgisdóttir ragnheidurb@mbl.is Á Úlfarsbraut í Úlfarsárdal í Reykjavík liggja umferðareyjur þar sem gróðursett hafa verið tré og annar gróður sem hefur vakið áhyggjur af umferðaröryggi. Þvert í gegnum gróðurinn liggja nefnilega gangbrautir sem börn á leið til og frá Dalskóla, íþróttasvæði Fram, sund- laug og bókasafni nýta sér. Magdalena Kjartansdóttir, íbúi í Grafarholti, fer oft þarna um á bíl og segir gróðurinn byrgja sýn þegar börn eigi leið yfir götuna. „Maður sér þau bara alls ekki. Þau koma svo snöggt. Þau eru á hlaupahjólum og koma bara þvert yfir.“ Hún segir yfirsýnina versna enn frekar þegar farið sé að dimma, til dæmis þegar börn streymi yfir göt- una eftir leiki hjá knattspyrnufélag- inu Fram. „Þetta er bara svo vit- laust, ég skil þetta ekki.“ Þór Björnsson íþróttastjóri hjá Fram segir að starfsmenn knatt- spyrnufélagsins hafi rætt þetta sín á milli. „Við höfum rætt þetta í kaffinu, að þegar maður er að keyra þarna og það er lítið fólk að fara yfir götuna þá sést það illa af því það er svo mikill gróður þarna. Maður hef- ur tekið eftir þessu á morgnana þeg- ar börnin eru að fara í skólann. Yf- irsýnin er ekkert sérstaklega góð.“ Hann bætir við að vissulega sé þetta huggulegt en sér þyki „svolítið sér- stakt“ hvað gróðurinn er hafður hár. Í skriflegu svari frá umhverfis- og skipulagssviði segir: „Starfsfólk garðyrkjudeildar klippti og snyrti þarna í sumar og munu gera það aft- ur strax í dag þar sem vöxturinn hef- ur verið töluverður. Umferðareyj- urnar ættu að vera hættulausar þegar garðyrkjustarfsfólkið hefur klippt gróðurinn á þessum eyjum.“ Þá kemur fram í svarinu að ekki séu áætlanir um að helluleggja eyj- urnar að svo stöddu heldur verði fylgst með vexti gróðurs á eyjunum og klippt og snyrt reglulega. Morgunblaðið/Eggert Úlfarsbraut Gróðurinn sem komið hefur verið fyrir á umferðareyjunni er sagður byrgja bílstjórum sýn. Bílstjórar sjá ekki börnin fyrir gróðri - Hafa áhyggjur af öryggi á gangbrautum yfir Úlfarsbraut Morgunblaðið/Eggert Vöxtur Borgin segir garðyrkjudeildina ætla að halda gróðrinum í skefjum. Skólastjórnendur í Menntaskólanum við Hamrahlíð segjast harma að nú- verandi og fyrrverandi nemendur hafa upplifað vanlíðan vegna mála er varða kynferðislegt ofbeldi og kyn- ferðislega áreitni sem hafa komið upp og ekki var tekið á með viðun- andi hætti. Stjórnendur biðja nem- endur afsökunar í yfirlýsingu sem þeir hafa sent frá sér. Yfirlýsingin kemur í kjölfar mik- illar ólgu meðal nemenda í vikunni. Greint hefur frá því að nemendum hafi verið nóg boðið vegna aðgerða- leysis skólastjórnenda í nokkrum málum sem tengjast kynferðisof- beldi á milli nemenda. „Menntaskólinn við Hamrahlíð lít- ur kynferðislega áreitni og kynferð- islegt ofbeldi mjög alvarlegum aug- um. Stjórnendur, starfsfólk MH og allt skólasamfélagið stendur með þolendum ofbeldis og ef upp koma mál sem tengjast ofbeldi, af hvaða tagi sem er, viljum við taka á þeim. Þessi mál eru viðkvæm, við erum að læra og við viljum gera betur,“ segir í yfirlýsingunni. „Þá hörmum við að núverandi og fyrrverandi nemendur hafa upplifað vanlíðan vegna mála er varða kyn- ferðislegt ofbeldi og kynferðislega áreitni sem hafa komið upp og ekki var tekið á með viðunandi hætti. Við biðjumst innilegrar afsökunar á því. Við munum leggjast á eitt við að vinna vel úr þeim málum sem hafa verið tilkynnt til skólans og bregðast við í samræmi við áætlanir. Skóla- stjórnendur hafa tekið á móti tillög- um nemenda um úrbætur og hvernig megi bæta ferlið þegar upp koma mál af ofangreindum toga.“ Biðja nemendur í MH afsökunar - Skólastjórnendur bregðast við ólgu Morgunblaðið/Kristinn Magnússon MH Nemendur hafa mótmælt að- gerðaleysi stjórnenda í vikunni. Dóra Ósk Halldórsdóttir doraosk@mbl.is Á fundi borgarstjórnar á þriðjudag var tillaga sjálfstæðismanna um uppbyggingu á Geldinganesi felld með fjórtán atkvæðum borgarfull- trúa Samfylkingar, Framsóknar, Pí- rata, Viðreisnar og Vinstri grænna. Einar Þorsteinsson, borgarfulltrúi Framsóknar og væntanlegur borg- arstjóri, segir það ekki lýsandi fyrir stöðuna í húsnæðismálum borg- arinnar. „Staðan er að framundan er mesta uppbygging á íbúðarhúsnæði í sögu borgarinnar. Þessi meirihluti er byrjaður á þeirri vinnu að for- gangsraða svæðum til þess að ná því markmiði sem stjórnvöld hafa sett sér og við vitum að er nauðsynlegt til þess að koma jafnvægi á húsnæð- ismarkaðinn. Við erum að ganga til samninga núna á grundvelli ramma- samningsins á milli ríkisins, sveitar- félagsins og Húsnæðis- og mann- virkjastofnunar (HMS) og það felur í sér að við munum auka bygginga- magn gríðarlega mikið.“ Einar segir að Keldnaland og Úlf- arsárdalurinn séu forgangssvæði í uppbyggingarstarfinu, en þar sé gríðarlegt landsvæði sem verði byggt upp samhliða þeirri uppbygg- ingu sem nú þegar er fyrirhuguð í borginni, m.a. á Ártúnshöfða og í Skerjafirði. „Varðandi Geldinganesið, þá er það alveg rétt að þegar Sundabraut- in er komin betur á veg í skipulagi er alls ekki útilokað að það verði fýsilegt að byggja þar íbúðar- húsnæði en við töldum rétt að skipuleggja fyrst þessi hverfi, enda ærið verkefni.“ Þegar Einar er spurður hvort Framsókn sé að reka slyðruorðið af borginni í húsnæðismálum með meirihlutasamstarfinu, segir hann að kjósendur hafi sýnt vilja sinn skýlaust í síðustu kosningum. „Flokkarnir í þessum meirihluta sömdu um það að fara í þessa upp- byggingu og nú er bara verið að efna samstarfssáttmálann. Ég er bara mjög ánægður með það.“ Hann segir að nú sé búið að setja í auglýsingu deiliskipulagsbreytingu í Úlfarsárdal fyrir ríflega 300 íbúðir og einnig land fyrir íbúðir uppi á Kjalarnesi. „Nú er bara lykilatriðið að innviðaráðherra og HMS og Samband íslenskra sveitarfélaga gerðu rammasamning sem kveður á um að byggja þurfi 20 þúsund íbúðir á næstu fimm árum og 35 þúsund á næstu tíu árum. Nú er verkefnið að fá öll sveitarfélög til þess að semja hvert um sig við HMS um hvernig þau ætla að tryggja byggingar- hæfar lóðir á þessu tímabili þannig að uppbyggingarhraðinn strandi ekki á sveitarfélögunum.“ Spurður um hvort aukin byggð á þéttingarreitum hafi hækkað íbúð- arverð bendir hann á að íbúðarverð hafi hækkað mikið í öllum sveitar- félögum vegna mikillar eftir- spurnar. „Það er vandinn.“ Hann bendir einnig á að í faraldrinum hafi losnað mikið um fjármagn vegna lágra vaxta sem hafi enn aukið á eft- irspurnina. Þrátt fyrir að staðan sé önnur nú segir Einar að það sé ljóst að eftirspurnin verði mikil á næstu árum. Mannfjöldaspáin sýni að það þurfi að byggja meira til að tryggja öllum þak yfir höfuðið og undirliggj- andi eftirspurn verði til staðar. „Þrátt fyrir pólitískt þras eru stóru tíðindin í húsnæðismálum Reykvíkinga þau að meirihlutinn í borginni hyggur á mestu uppbygg- ingu á íbúðarhúsnæði í sögu borg- arinnar. Geldinganesið er framtíð- arsvæði. Þegar Sundabrautin kemur opnast mörg tækifæri, bæði uppi á Kjalarnesi, á Geldinganesi og á Esjumelum fyrir iðnaðarstarf- semi, og hún gerbreytir umferð- arlandslaginu á höfuðborgarsvæð- inu.“ Segir sögulega uppbyggingu framundan - Tilllaga um Geldinganes felld - Forgangsraða uppbyggingu í Keldnalandi og Úlfarársdal - Þétt- ing byggðar og ný hverfi - Hátt verð vegna mikillar eftirspurnar - Geldinganes á framtíðarplani Morgunblaðið/Eggert Borgarstjórn Einar segir alla flokka sammála um þörfina á meira húsnæði.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.