Morgunblaðið - 06.10.2022, Qupperneq 6

Morgunblaðið - 06.10.2022, Qupperneq 6
6 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. OKTÓBER 2022 AGADÍR VETRARSÓL Í MAROKKÓ 31. OKTÓBER - 08. NÓVEMBER Upplifðu töfra Marokkós og fáðu smá sól í kroppinn í leiðinni. Glæsileg níu daga ferð með fallegum ströndum, þægilegum hita og einstakri fegurð. Hægt er að velja úr fjölda spennandi dagsferða. Þaulreyndur fararstjóri ferðarinnar er Gréta S. Guðjónsdóttir. VERÐ FRÁ159.900 KR. Á MANN M.V. 2 FULLORÐNA ÚRVAL ÚTSÝN HLÍÐASMÁRI 19, 201 KÓPAVOGUR SÍMI 585-4000 INFO@UU.IS INNIFALIÐ Í VERÐI: BEINT FLUG VALIN GISTING FLUGVALLAGJÖLD & SKATTAR GISTING M. MORGUNVERÐI ÍSLENSK FARARSTJÓRN INNRITUÐ TASKA 20 KG. AKSTUR TIL OG FRÁ FLUGVELLI Íslendingar skera sig að ýmsu leyti úr í samanburði við aðrar Norð- urlandaþjóðir hvað varðar háhraða- tengingar í farnetskerfinu. Er þá miðað við auglýstan niðurhalshraða sem er a.m.k. 30 megabæti á sek- úndu (Mbit/sek) eða meiri hraða á hvert heimili. Ísland er einnig efst í þessum samanburði við Eystrasalts- þjóðirnar. Hið sama á við ef netnotkun þjóð- anna er borin saman og lagt er mat á niðurhalshraða á netinu sem er 100 Mbit/sek á heimili en Svíar koma þar næst á eftir Íslandi. Þetta er meðal þess sem fram kemur í nýútkominni skýrslu um fjarskiptanotkun í átta löndum, þ.e.a.s. á Norðurlöndunum og í Eystrasaltslöndunum á árinu 2021, sem Fjarskiptastofa hefur birt á vef- síðu sinni. Hraðinn fer vaxandi í löndunum ár eftir ár „Ísland er svo í sérflokki þegar kemur að háhraðainternetteng- ingum með auglýstan niðurhals- hraða 1 Gbps ef miðað er við á heim- ili,“ segir í umfjöllun Fjarskiptastofu um niðurstöðurnar. Útbreiðsla háhraðaneta er mikil í löndunum og hefur víðast hvar farið vaxandi ár frá ári. Hér á landi eru 98% heimila tengd slíkum netum (30 Mbit/sek eða meira). Sama hlutfall má finna í Danmörku og Noregi, 96% í Svíþjóð og 85% í Eistlandi, svo dæmi séu nefnd. Notkun fastlínusíma minnkar Bent er á að fjarskiptanotkun er mjög lík í þessum löndum og að íbú- ar þeirra nýti sér sambærilega tækni á svipaðan máta. Þá eiga þau sammerkt að notkun fastlínusíma heldur áfram að minnka í öllum löndunum. Á það bæði við um fjölda áskrifta og fjölda mínútna í fastlínu- kerfinu. Þegar bornar eru saman stafræn- ar sjónvarpssendingar yfir netið eða svonefndar IPTV-áskriftir (e. int- ernet protocol TV) kemur í ljós að Ísland er efst í samanburði við hin norrænu löndin og einnig við Eystrasaltslöndin þegar miðað er við höfðatölu „en þessum áskriftum hefur farið fækkandi hér á landi á síðastliðnum árum en fjölgað í öðr- um löndum, t.d. í Noregi og Sví- þjóð,“ segir ennfremur í umfjöllun um skýrsluna. „Mikil aukning varð á fjölda mín- útna í farnetum hjá öllum löndunum miðað við höfðatölu á árunum 2020 og 2021 sem líklega má rekja til fjar- vinnu vegna kórónuveirunnar þar sem margir íbúar landanna störfuðu að heiman. Gagnamagnsnotkun í farnetum heldur áfram að aukast hratt í öllum löndunum en þar bera Finnar höfuð og herðar yfir hinar þjóðirnar.“ Íslendingar á methraða og skera sig úr - Samanburður þjóða sýnir að gagna- magnsnotkun á farnetum eykst hratt Morgunblaðið/Eggert Í símanum Fjarskiptanotkun er mjög lík í löndunum átta. Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is „Vissulega er ánægulegt að mikil- vægu starfi sjálfboðaliða okkar sé gefinn gaumur af stjórnmálamönn- um. Ég er samt ekki viss um að skattaafsláttur sé ákjósanleg leið til að styrkja starf björgunarsveit- anna,“ segir Otti Rafn Sigmarsson formaður Slysa- varnafélagsins Landsbjargar. Á dögunum lögðu sex þingmenn Pírata fram á Al- þingi frumvarp til laga um að fólk sem tekur þátt í sjálfboðaliðastarfi á vegum lögaðila, líkt og björgunar- sveitastarfi, fái skattaafslátt. Inntak tillögunnar er að draga megi 675 kr. frá skatti fyrir hvern klukkutíma sem fólk gefur til sjálfboðaliðastarfs í al- mannaþágu. Afslátturinn verði að há- marki 500 þús. kr. á ári og verði ekki færanlegur á milli hjóna eða til fólks í sambúð. Nefnt er að til sjálfboðaliðastarfs teljist þátttaka í æfingum, nám- skeiðum og útköllum. Í greinargerð með frumvarpinu er tiltekið að æ erf- iðara sé fyrir björgunarsveitirnar að fá nýtt fólk í raðir sínar. Skattaaf- sláttur geti tekið á því. Þá hafi kostn- aður þess fólks sem tekur þátt í sjálf- boðnu starfi björgunarsveitanna sífellt hækkað, svo sem vegna kaupa á búnaði og annars. Otti Rafn Sigmarsson segir að virðisaukaskattur sem sem lagður er á búnað sem björgunarsveitir þurfa fáist að nokkru endurgreiddur. Hins vegar þurfi meira slíkt. Slysavarna- félagið Landsbjörg fái vissulega all- háar upphæðir á ári hverju í stuðning frá ríkinu, m.a. í krafti þjónustusamn- inga ríkisins. Nú sé hins vegar tíma- bært að fjárhagsleg samskipti þess við ríkið verði endurskoðuð á breið- um grundvelli og úr ýmsu bætt, eins og óskað hefur verið eftir. „Starf björgunarsveita og slysa- varnadeilda byggist upp á sjálfboða- starfi og nú þegar fer mjög mikil orka í það að afla fjár til rekstursins. Ákjósanlegast væri að fækka þeim stundum til þess að styrkja sjálfboða- starfið. Tillögur um skattafslátt verð- ur að skoða með tilliti til jafnræðis allra,“ segir formaður Slysavarna- félagsins Landsbjargar. Hefur efasemdir um skattaafslátt - Björgunarsveitir vilja aðra útfærslu Otti Rafn Sigmarsson Helgi Bjarnason helgi@mbl.is „Mest áhersla er lögð á að hækka laun og endurheimta kaupmátt. Okkar fé- lagsmenn sjá lánin og allt í samfélag- inu hækka, meðal annars lífsnauð- synlegar vörur. Launin eru því í fyrsta sæti,“ segir Þórarinn Eyfjörð, formaður Sam- eykis – stéttar- félags í almanna- þjónustu, um hljóðið í félags- mönnum sínum. Félagið er að undirbúa komandi kjaraviðræður, sér- staklega við viðsemjendur á almenna vinnumarkaðnum. Forystumenn fé- lagsins funduðu með 200 trún- aðarmönnum félagsins, hafa fundað með félagsfólki um allt land og haldið greiningarfundi í Reykjavík. Nánar spurður um launakröfur seg- ir hann að þær fari eftir því hvernig mál þróast á næstunni. Hann segir þó rætt um að endurheimta kaupmáttinn, sem gert var ráð fyrir í lífskjarasamn- ingunum, og styrkja hann enn frekar. „Okkar félagsmenn hafa lagt áherslu á krónutöluhækkun en einnig tryggingu fyrir kaupmætti allra. Það þýðir að fara verður blandaða leið krónutölu- hækkana, sem kemur þeim lægst launuðu best, og svo tryggingu kaup- máttar þeirra sem eru í milli- tekjuhópum. Finna þarf leið til að þau [fólk í millitekjuhópum] njóti einnig lagfæringar á sínum kjörum,“ segir Þórarinn. Krafa um 32 stunda vinnuviku Hann segir að stytting vinnuvik- unnar sé einnig mikilvægt mál í huga félagsmanna Sameykis á almenna vinnumarkaðnum. „Fólk hefur litið á það sem slæma niðurstöðu í síðustu samningum að stytta vinnutímann um 65 mínútur á viku, minna en hjá hinu opinbera. Nú erum við að setja á blað kröfu um 32 stunda vinnuviku, það er að segja virkar vinnustundir. Þegar búið er að taka inn neysluhléin þýðir það 35 stunda vinnuviku. Fólk á al- menna vinnumarkaðnum vill njóta sömu jákvæðu þróunar í samfélaginu um styttingu vinnuvikunnar og fólk á opinbera markaðnum. Það leggur áherslu á að fá meiri tíma með fjöl- skyldunni og geta betur sinnt fjöl- skyldumálum,“ segir Þórarinn. Einnig hefur útvíkkun á veikinda- rétti barna komið sterkt fram á fund- um með félagsfólki. Segir Þórarinn að atvinnuþátttaka á Íslandi sé mikil, bæði meðal karla og kvenna. Það þýði að allur vinnumarkaðurinn þurfi að hafa góðan sveigjanleika til fólk geti sinnt börnum, veikum foreldrum eða öðrum veikum aðstandendum. Sú kynslóð, sem nú er á vinnumarkaði, þurfi, auk þess að hugsa um börnin sín, að sinna veikburða og lösnum for- eldum og öðrum nákomnum. „Þegar heilbrigðiskerfin geta ekki staðið sómasamlega að umönnun eldra fólks lendir það á fjölskyldunum og vinnu- markaðurinn þarf að bregðast við þeirri stöðu.“ Fólk á almenna vinnumarkaðnum gerir, að sögn Þórarins, kröfu um að fá 30 daga orlof óháð aldri, í sam- ræmi við opinbera markaðinn. Krafa er um að vinna á aðfangadag og gamlársdag verði með stórhátíðar- álagi, eins og komið hefur fram hjá öðrum félögum. Óþol gagnvart misskiptingu „Fyrir utan þessi beinu kjara- samningsbundnu atriði er mjög rík krafa um að við förum að gefa spilin upp á nýtt í samfélaginu. Fólk er þar að horfa á nýtingu auðlinda, breyt- ingar á skattkerfinu þar sem hinir efnameiri taki meiri þátt og fjár- mögnum sveitarfélaga þar sem leið- rétt verði sú vitleysa að fjármagns- eigendur þurfi ekki að greiða útsvar. Það er aukið óþol gagnvart misskipt- ingunni í samfélaginu. Ég er hrædd- ur um að það óþol geti brotist út með harkalegum hætti ef stjórnvöld fara ekki að leggja áherslu á að leiðrétta skekkjuna sem orðið hefur,“ segir Þórarinn og bætir því við að hann fái ekki séð hvernig eigi að ganga frá kjarasamningum nema ríkið komi með sterkt útspil í þessu efni. Vilja endurheimta og styrkja kaupmátt - Félagsmenn Sameykis sagðir vilja gefa spilin upp á nýtt Morgunblaðið/Hari Undirritun Lífskjarasamningarnir fara að renna út og Sameyki, eins og önnur stéttarfélög, er að undirbúa viðræður um nýja samninga. Þórarinn Eyfjörð
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.