Morgunblaðið - 06.10.2022, Side 20
20 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. OKTÓBER 2022
Nánari upplýsingar á tasport.is eða í síma 552 2018
S. 552 2018 • info@tasport.is
Master Class
í Toscana
Vín og góður matur í fallegu
umhverfi á Ítalíu með
íslenskri fararstjórnAllra
síðustu
sætin í
boði!
27. október til 4. nóvember
Verð frá 267.800 kr. á mann
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Starfsemi Silfurstjörnunnar í Öxar-
firði mun tvöfaldast með byggingu
fimm nýrra eldiskera sem nú er
unnið að. Bygging og rekstur ker-
anna ásamt flóknum tæknibúnaði er
undirbúningsverkefni fyrir áform
Samherja fiskeldis hf. um byggingu
stórrar landeldisstöðvar á Reykja-
nesi. Verður sérstaklega vandað til
rekstursins í því ljósi. Um leið festir
uppbyggingin Silfurstjörnuna í
sessi sem burðarfyrirtæki í atvinnu-
málum svæðisins og eykur byggða-
festu.
Fjöldi eldiskera er í laxeldisstöð
Silfurstjörnunnar, byggð á mismun-
andi tímum og af ýmsum stærðum.
Fyrirtækið er í eigu Samherja fisk-
eldis hf. sem er dótturfélag Sam-
herja hf. Eldisrými stöðvarinnar er
28 þúsund rúmmetrar. Þau fimm
ker sem verið er að byggja rúma
fjögur þúsund rúmmetra hvert eða
alls 20 þúsund rúmmetra. Er þetta
hrein viðbót við stöðina. Fer nærri
að framleiðslugetan tvöfaldist, fari
úr 1.500-1.600 tonnum í tæplega
þrjú þúsund tonn á ári.
Fiskur í fyrstu kerin
Kostnaður við stækkunina er
áætlaður um fjórir milljarðar
króna. Er þetta því mikil fjárfesting
á þessu svæði og þótt litið sé víðar
yfir.
Rúnar Þór Guðmundsson bygg-
ingarstjóri segir að framkvæmd-
irnar hafi gengið vel en séu þó
nokkrum mánuðum á eftir áætlun.
Nú stefnir í að vatn og fiskur fari í
nýju kerin í febrúar og mars.
Framkvæmdin er vandasöm, að
hans sögn. Fyrst þarf að leggja all-
ar lagnir og steypa botnplötu og síð-
an eru forsteyptar einingar sem
keyptar eru að hífðar ofan á. Fjögur
ker eru risin og það fimmta í und-
irbúningi. Þessu fylgja ýmsar
hliðarframkvæmdir eins og aukin
vatnsöflun, ný seiðastöð, aðstaða til
að framleiða áburð og fleira.
Samherji fiskeldi er að undirbúa
byggingu stórrar laxeldisstöðvar á
Reykjanesi sem reyndar verður
byggð upp í áföngum. Viðbótin við
Silfurstjörnuna er liður í þeim
undirbúningi. Þar verður látið
reyna á eldi í stórum kerum. Starfs-
menn fyrirtækisins hafa mikla
reynslu í landeldi en í minni eld-
isrýmum. „Ætlunin er að sjá hvort
hægt er að þróa áfram þá hluti sem
við erum að gera hér í dag og ná
sem mestu út úr stöðinni. Það er
mikil þekking innan fyrirtækisins
og við byggjum á henni við þetta
þróunarstarf,“ segir Rúnar.
Thomas Helmig, stöðvarstjóri
Silfurstjörnunnar, segir mikilvægt
að hafa stjórn á öllum aðstæðum
þegar jafn mikill lífmassi er undir.
Prófa þurfi þann búnað sem fylgi
stækkun eldisrýmisins.
Allir innviðir byggðir upp
Bendir hann á að samhliða
stækkun keranna þurfi að byggja
upp alla innviði, svo sem fóðurkerfi,
súrefniskerfi, sláturhús og vinnslu,
frárennsli og hreinsistöð. Hann
vekur athygli á því að allar fóð-
urleifar og laxamykja verði hreins-
uð úr frárennslinu og notuð til
áburðarframleiðslu. Keypt verður
vélasamstæða til þeirrar vinnslu og
byggt hús yfir.
Samherji keypti jörðina Akursel
sem er hinum megin ár, eins og
Thomas tekur til orða, og er líklegt
að áburðurinn verði notaður til upp-
græðslu og jafnvel skógræktar á
gróðurlausum söndum sem þar eru.
Hann segir að landgræðsla og skóg-
rækt yrði þá liður í að kolefnisjafna
laxeldið.
„Allur búnaður fyrir stóru kerin
verður prófaður hér og dregnar
ályktanir af rekstrinum um virkni,
afköst og viðhaldsþörf vegna upp-
byggingarinnar á Reykjanesi. Að-
ferðirnar sem við notum hér hafa
aldrei verið prófaðar fyrir ker með
jafn miklum lífmassa. Laxinn er við-
kvæmur fyrir breytingum í um-
hverfinu og ef upp kemur streita
þarf að bregðast hratt við til þess að
hægt sé að auka súrefnisgjöf eða
grípa til annarra ráðstafana til að
fiskinum líði vel. Allur búnaður þarf
að virka rétt og vera í fullkomnu
lagi,“ segir Thomas.
Silfurstjarnan Nýju eldiskerin eru margfalt stærri en þau eldri. Fjögur eru komin og það fimmta undirbúið. Nýju kerin rúma nærri því jafn mikið og öll kerin sem fyrir voru, bæði inni og úti.
Fimm risastór eldisker rísa
- Samherji fiskeldi notar stöð sína í Öxarfirði til að þróa aðferðir sem notaðar verða í stórri landeld-
isstöð á Reykjanesi - Fjárfest fyrir fjóra milljarða í Silfurstjörnunni - Allt þarf að virka fullkomlega
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Stjórnendur Rúnar Þór Guðmundsson byggingarstjóri og Thomas Helmig stöðvarstjóri stýra uppbyggingunni.