Morgunblaðið - 06.10.2022, Síða 22

Morgunblaðið - 06.10.2022, Síða 22
22 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. OKTÓBER 2022 Björn Jóhann Björnsson bjb@mbl.is „Um sumarið 2021 íhugaði ég fyrst alvarlega að gefa bókina út, þá var ég búinn að yrkja um sex dýr,“ segir Al- freð Guðmundsson, grunnskólakenn- ari og hagyrðingur á Sauðárkróki, sem gefið hefur út barnabókina Dýr- in á Fróni. Um er að ræða mynd- skreytta vísnabók en þetta er í fyrsta sinn sem Alfreð sendir frá sér bók. Í bókinni eru tekin fyrir 14 algeng íslensk dýr og með þeim fylgja 42 vís- ur Alfreðs ásamt vatnslitamyndum eftir franska listamanninn Jérémy Pailler. Tekur Alfreð fyrir karldýrið, kvendýrið og síðan afkvæmi þeirra. „Eftir að ég tók ákvörðun um að gefa út bók með efninu þá kom kipp- ur í þetta, um haustið 2021 var ég kominn með vísur um fjórtán dýr. Mér fannst það vera hæfilegur fjöldi og fór að huga að myndskreytingum með vísunum. Ræddi þetta við sam- kennara minn, Guðbrand Ægi Ás- björnsson, og hann ráðlagði mér að skoða bókina eftir Berglindi Þor- steinsdóttur, forstöðumann Byggða- safns Skagfirðinga. Safnið hafði gefið út barnabókina Sumardagur í Glaumbæ, með vatnslitamyndum þessa franska listamanns og með texta Berglindar,“ segir Alfreð. Teiknarinn vel kunnur Íslandi Jérémy Pailler er ágætlega kunn- ugur Íslandi, lífríki þess og mannlífi. Hann hefur oftast unnið í listasmiðju á Skagaströnd en sumarið 2019 var Jérémy í hópi listamanna sem boðið var í vinnusmiðju í Kakalaskála til að gera listaverk úr sögu Þórðar kakala. Í kjölfarið fékk Berglind hann til að myndskreyta bók Byggðasafnsins. „Hann tók mínu erindi strax mjög vel og ég sá fljótt að hann er mjög hæfileikaríkur,“ segir Alfreð um franska teiknarann. Eftir því sem fleiri teikningar komu notaði Alfreð tímann til að betrumbæta vísurnar en Jérémy fékk þýðingar á þeim í hendurnar, til að átta sig betur á um- fjöllunarefninu. Einnig studdist hann við ljósmyndir af dýrunum. Alfreð og sonur hans Guðmundur, sem er út- gáfustjóri bókarinnar, þýddu vís- urnar yfir á ensku fyrir Jérémy. Í þessu ferli gekk ýmislegt á, sem Al- freð segir vel hægt að hlæja að eftir á og sú útkoma var stundum bráð- fyndin. Þar sem Alfreð gefur dýr- unum nafn í vísunum, eins og Húni og Hrímir, þá komu fyrstu teikn- ingar ekki alveg eins og ætlast var til þar sem Jérémy hafði persónugert dýrin og klætt þau m.a. í föt. Það hafði Alfreð ekki hugsað sér að gera og því sýna teikningarnar í bókinni dýrin eins og þau koma af skepn- unni. „Þennan misskilnig tókst okkur að leysa á farsælan hátt og allt okkar samstarf var með ágætum,“ segir Alfreð og er mjög sáttur við hvernig til hefur tekist með myndskreyt- ingar í bókinni. Fengið góð viðbrögð Bókinni hefur verið dreift í bóka- búðir og Alfreð hefur einnig kynnt hana fyrir grunn- og leikskólum í landinu. Viðbrögð hafa verið góð. „Bókin hentar mjög vel til kennslu í skólum, hvort sem það er í lestri eða annarri íslenskukennslu, mynd- mennt, náttúrufræði eða samfélags- fræði. Yngstu börnin fá fróðleik um dýrin og einnig gæti bókin kveikt áhuga á vísnagerð, eins og rími, ljóð- stöfum og annarri bragfræði,“ segir Alfreð, sem hefur hlotið þakkir frá kennurum víða um land fyrir fram- takið. Bókinni hefur líka verið vel tekið í leikskólum landsins. Dýrin sem fjallað er um í bókinni eru hænsni, geitur, svín, hestar, endur, refir, selir, nautgripir, álftir, hundar, kindur, rjúpur, kettir og hreindýr. Alfreð hefur gert mikið af því um dagana að semja vísur og segist hafa gaman af því. Flestar eru þær tæki- færisvísur, settar fram á góðri stund og af skemmtilegum tilefnum. Spurður hvort önnur bók sé í píp- unum útilokar Alfreð það ekki, nóg sé til af vísum, ljóðum og limrum í fórum hans. Þá hefur hann verið að þróa hugmynd að annarri barnabók, en það komi betur í ljós síðar. Alfreð gefur sjálfur bókina út og hann neitar því ekki að það sé krefj- andi verkefni. Hann naut góðrar að- stoðar fjölskyldunnar. Kona hans, Helga Kristín Sigurðardóttir, veitti góð ráð í textagerðinni og hikaði ekki við að henda vísu til baka í húsbónd- ann og óska eftir betrumbót. Synir þeirra veittu einnig aðstoð, þeir Helgi Arnar og Guðmundur. Alfreð naut einnig mjög góðrar að- stoðar samkennara síns, Sigurðar Jónssonar, við yfirlestur og próf- arkalestur handrits. Þá gaf bróðir Al- freðs, Ágúst, góð ráð eftir að hafa staðið sjálfur að bókaútgáfu. Menn- ingarjóður KS og uppbyggingar- sjóður SSNV styrktu útgáfuna. Hægt er að panta bókina á netfang- inu ljodakver@gmail.com. Dýrin á Fróni í bundnu máli - Kennari á Sauðárkróki gefur út myndskreytta vísnabók um 14 algeng dýr - Franskur listamaður teiknaði myndirnar - Hentar vel til kennslu í leik- og grunnskólum - Með fleiri bækur á prjónunum Vísnagerð Alfreð Guðmundsson íþróttakennari er hagmæltur og ákvað að setja saman myndskreytta barnabók. Unga stundum eignast lítinn er eldist, nefnist kjúklingur. Vafrar gulur, voða skrítinn varla getur staðið kjur. ÞRJÁR VÍSUR UM HVERJA DÝRATEGUND Kollur, Vala og kjúklingur Hænan Vala verpir eggjum vinsæl eru hennar föng. Þæg hjá kofans þéttu veggjum þar hún gaggar dægrin löng. Haninn Kollur hoppar glaður hauga yfir endalaust. Víst ef galar vaknar maður vaskur þenur sína raust. Alfreð yrkir þrjár vísur um hverja dýra- tegund; um karldýrið, kvendýrið og af- kvæmi þeirra. Hér fylgja vísurnar um hænsnin, með leyfi höfundar: Örugg og traust þjónusta í fasteignaviðskiptum í áratugi arsalir@arsalir.is, s. 533 4200 Hagstætt verð. Glæsilegt skrifstofuhúsnæði. Sér inngangur. Tangarhöfði 6 - 2. hæð - 110 RVK ÁRSALIR FASTEIGNAMIÐLUN 533 4200 TIL LEIGU

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.