Morgunblaðið - 06.10.2022, Qupperneq 26

Morgunblaðið - 06.10.2022, Qupperneq 26
26 FRÉTTIR Viðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. OKTÓBER 2022 Þinn dagur, þín áskorun Hlýtt og notalegt 100% Merino ullarnærföt fyrir dömur og herra Stærðir: S–XXL Sölustaðir: Hagkaup • Fjarðarkaup • Útilíf • N1 • Vesturröst • Verslun Guðsteins Eyjólfssonar • Verslunin Bjarg, Akranesi • Herrahúsið, Ármúla 27 • JMJ, Akureyri Lífland, Hvolsvelli og Blönduósi • Verslunin Blossi, Grundafirði • Efnalaug Vopnafjarðar • Kaupfélag Skagfirðinga, Sauðárkróki • Verslun Grétars Þórarinssonar, Vestmannaeyjum • Borgarsport, Borgarnesi • Kaupfélag V-Húnvetninga, Hvammstanga • Verslun Bjarna Eiríkssonar, Bolungarvík • Þernan, Dalvík Siglósport, Siglufirði • Bókaverslun Breiðarfjarðar, Stykkishólmi • Vaskur, Egilsstöðum • Skóbúð Húsavíkur • Efnalaug Suðurlands, Selfossi • run.is Höfðabakka 9, 110 Reykjavík | run@run.is | www.runehf.is OLYMPIA 6. október 2022 Gjaldmiðill Gengi Dollari 143.5 Sterlingspund 162.52 Kanadadalur 105.08 Dönsk króna 19.079 Norsk króna 13.525 Sænsk króna 13.121 Svissn. franki 145.28 Japanskt jen 0.9904 SDR 184.73 Evra 141.9 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 174.3592 « Stapi lífeyrissjóður bætti verulega við hlut sinn í Kaldalóni í september og er nú fjórði stærsti eigandi félagsins með um 6,4% hlut. Stapi keypti um 555 milljónir hluta í félaginu í mánuðinum. Þrír stærstu hluthafarnir juku einnig við sinn hlut. Skel fjárfestingarfélag jók hlut sinn um rúmar 120 milljónir hluta, Arion banki um 300 milljónir hluta og Stefni um rúmar 250 milljónir hluta. Gera má ráð fyrir að eignarhlutur Arion og Stefn- is sé í gegnum framvirka samninga fyrir viðskiptavini þeirra. Nokkur félög detta út af lista yfir 20 stærstu eigendur fé- lagsins. Þar má nefna GGH ehf., félag í eigu Magnúsar Ármann, og Greenwater ehf., í eigu Guðmundar G. Reynissonar, eiganda Húsgagnahallarinnar, Betra baks og Dorma, en bæði félögin áttu um 1,3% hlut. Ekki liggur fyrir hvort þeir hlutir hafi verið færðir undir hatt banka eða sjóða í gegnum framvirka samn- inga. Það hafa einnig orðið lítilsháttar breytingar á eignarhaldi í Sýn. Gildi- lífeyrissjóður, stærsti eigandi félagsins, jók nokkuð við hlut sinn í september eða um 2,2 milljónir hluta og á nú 14% hlut í félaginu. Þá juku Arion banki, Kvika banki og Íslandsbanki einnig nokkuð við sig, Íslandsbanki þar mest eða um 5,6 milljónir hluta. Ætla má að allir þessir hlutir séu keyptir fyrir hönd viðskiptavina bankanna. Athygli vekur að Tækifæri ehf. keypti um 740 þúsund hluti í september og á nú um 2,3% hlut í félaginu. Þá jók Halldór Kristmannsson við sinn hlut og á nú um 1,5% hlut í Sýn. Breytingar á eigenda- hópi Kaldalóns og Sýnar STUTT BAKSVIÐ Baldur Arnarson baldura@mbl.is Fyrirtækjum á Íslandi, sem skiluðu hagnaði, fjölgaði milli ára 2020 og 2021 í helstu atvinnugreinum. Þar af mest innan ferðaþjónustunnar. Þetta má lesa úr greiningu Credit- info en hún er meðal þátta sem horft er til við val á framúrskarandi fyrir- tækjum. Niður- stöðurnar eru endurgerðar á grafi hér til hliðar og eru fyrirtækin flokkuð í sex atvinnugreinar. Við samantekt- ina var skoðuð þróun áranna 2019, 2020 og 2021 hjá fyrir- tækjum sem hafa skilað ársreikningi fyrir öll árin. Einungis eru skoðuð fyrirtæki i virkri starfsemi. Eignarhaldsfélög- um er sleppt og rekstrartekjur þurfa að vera að lágmarki tíu milljónir króna. Alls uppfylltu um 13.500 fyrirtæki þessi skilyrði. Hagurinn almennt vænkast Kári Finnsson, markaðs- og fræðslustjóri hjá Creditinfo, segir samantektina sýna fram á að hagur íslenskra fyrirtækja hafi almennt vænkast milli áranna 2020 og 2021. Hlutfall fyrirtækja, sem skiluðu hagnaði, hafi hækkað úr 45% árin 2019 og 2020 í 57% árið 2021. Þá hafi afkoman batnað hjá 60% fyrirtækja milli 2020 og 2021, borið saman við 46% fyrirtækja milli áranna 2019 og 2020. Kórónuveirufaraldurinn hafði mikil áhrif á þetta tímabil í íslensku atvinnulífi en hann hófst í mars 2020. „Faraldurinn hafði ekki slæm áhrif á rekstur allra fyrirtækja. Ferðaþjónustan er sú grein sem fór verst út úr faraldrinum en þessar tölur gefa til kynna að hún sé að ná vopnum sínum á ný.“ Spurður um samantektina segir Kári upplýsingar um rekstur ís- lenskra fyrirtækja vera eina af for- sendunum fyrir því að hægt sé að reikna út fjölda og hlutfall framúr- skarandi fyrirtækja. Sömuleiðis gagnist þær tölur við gerð láns- hæfismats Creditinfo. „Lokatalan í framúrskarandi fyrirtækjum er ekki ljós. Það gæti verið að ferðaþjónustufyrirtækjum fjölgi á þessum lista, miðað við þessar tölur, en við þurfum að bíða og sjá hver lokaniðurstaðan verður. Það verður forvitnilegt að sjá hver fjöldi framúrskarandi fyrirtækja verður og hvernig þessu verður skipt milli atvinnugreina,“ segir Kári. Fjallað verður um niðurstöðurnar í sérblaði Morgunblaðsins um fram- úrskarandi fyrirtæki 19. október. Hækkaði í öllum greinum Meðal annarra niðurstaðna í áður- nefndri samantekt er að miðgildi af- komu hækkaði í öllum helstu at- vinnugreinum milli ára 2020 og 2021. Miðgildið var neikvætt í ferða- þjónustu um 1,3 milljónir árið 2020 en jákvætt um 1,3 milljónir árið 2021. Þá áttfaldaðist meðalhagnaður af fjármála- og vátryggingastarf- semi úr 2,8 milljónum í 21,7 milljónir. Í smásölu hækkaði miðgildi af- komu úr 0,6 milljóna hagnaði í 1,5 milljóna hagnað og í heildsölu jókst hagnaður úr 0,45 milljónum í 1,9 milljónir króna. Loks hækkaði mið- gildi afkomu í sjávarútvegi úr 0,6 milljóna hagnaði í 2,7 milljónir. Tekjurnar einnig á uppleið Miðgildi rekstrartekna jókst sömuleiðis í helstu atvinnugreinum. Það jókst um 134% í ferðaþjón- ustu og um rúm 100% í fjármála- og vátryggingastarfsemi. Þá jókst það um rúm 42% í heildsölu, um 36% í sjávarútvegi og um rúm 34% í bygg- ingarstarfsemi og mannvirkjagerð. Loks jókst það um rúm 28% í smá- sölu. Sem fyrr segir er hér fyrst og fremst verið að bera saman árin 2020 og 2021 en fyrra árið varð einhver mesta röskun á atvinnulífi sem orðið hefur í atvinnusögu þjóðarinnar á lýðveldistímanum. Afkoma fyrirtækja batnaði talsvert milli 2020 og 2021 - Greining Creditinfo bendir til að afkoma hafi batnað hjá 60 prósentum fyrirtækja Tekjur og hagnaður íslenskra fyrirtækja Þróunin 2019 til 2021 eftir atvinnugreinum Miðgildi tekna Hlutfall þeirra sem skiluðu hagnaði (%) 2019 2020 2021 2019 2020 2021 2019 2020 2021 2019 2020 2021 2019 2020 2021 2019 2020 2021 Heimild: Creditinfo Upphæðir eru ma.kr. 2019 2020 2021 Atvinnugrein Tekjur, miðgildi Skiluðu hagnaði Tekjur, miðgildi Skiluðu hagnaði Tekjur, miðgildi Skiluðu hagnaði Byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð 15,7 52% 17,9 56% 24,0 66% Ferðaþjónusta 19,1 46% 10,6 26% 25,0 65% Fjármála- og vátryggingastarfsemi 29,6 58% 37,8 65% 75,7 82% Heildsala 23,7 53% 27,6 58% 39,3 68% Sjávarútvegur 14,4 62% 15,2 58% 20,7 72% Smásala 22,4 48% 28,3 58% 36,3 68% Heild 52% 51% 68% Byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð Ferðaþjónusta Fjármála- og vátrygginga- starfsemi Heildsala Sjávarútvegur Smásala Kári Finnsson Björn Traustason, framkvæmda- stjóri Bjargs íbúðafélags, kveðst binda vonir við að vaxtahækkun Seðlabankans í gær hafi óveruleg áhrif á verð- tryggða vexti sem félaginu bjóðast. Seðlabankinn hækkaði í gær vexti um 0,25 pró- sent og var það ní- unda vaxtahækk- unin í röð. Vextirnir voru 0,75 prósent í maí 2021 en hafa síðan hækkað í 5,75 prósent (sjá graf). Björn segir Bjarg fjármagna upp- byggingu með 50 ára verðtryggðum lánum úr sérstökum lánaflokki hjá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun (HMS). Slík lán séu eingöngu ætluð óhagnaðardrifum félögum. Hafa hækkað um 0,6 prósent „Vaxtahækkanir hafa að sjálf- sögðu áhrif á okkar lán eins og annarra. Bjarg er fjármagnað með leiguíbúðalánum frá HMS sem báru samkvæmt vaxtatöflu HMS 2,1 pró- sent vexti í júlí en þeir voru komnir upp í 2,7 prósent fyrir vaxtahækkun Seðlabankans. Það á eftir að koma í ljós hver áhrif síðustu vaxtahækkun- ar verða á vextina hjá HMS. Birtast í leiguverðinu „Verðtryggðir vextir hjá HMS eru ákvarðaðir með hliðsjón af markaðs- vöxtum á útgefnum ríkisskuldabréf- um og því er óskandi að ávöxtunar- krafa á ríkisskuldabréf haldi ekki áfram að hækka svo ekki þurfi að koma til hækkunar leiguverðs hjá Bjargi. Við erum óhagnaðardrifið félag og vextir endurspeglast í leigu- verði hjá okkur,“ segir Björn að lokum. baldura@mbl.is Hærri vextir hafa áhrif á leiguverð - Bjarg er með 50 ára verðtryggð lán Vextir frá maí 2021 6% 4% 2% 0% 2021 2022 Heimild: Seðlabankinn 19.5. 25.8. 6.10. 17.11. 9.2. 4.5. 22.6. 24.8. 5.10. 5,75% 2% 3,75% 1% Björn Traustason
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.