Morgunblaðið - 06.10.2022, Qupperneq 28
28 FRÉTTIR
Erlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. OKTÓBER 2022
Ný sending
af Modal
náttfötum frá
Bláu húsin v/Faxafen
Sími 553 7355
Vefverslun: selena.is
Frí
heimsending
ef verslað er
yfir 15.000 kr.
Vefverslun
selena.is
OPEC, samtök þrettán stærstu olíu-
framleiðsluríkja heims, ákváðu að
draga verulega úr framleiðslu sinni
á olíu á fundi sínum í Vínarborg í
gær. Er markmið þeirra að hækka
heimsmarkaðsverð á olíu.
Amir Hossein Zamaninia, fram-
kvæmdastjóri OPEC í Íran, sagði að
ákveðið hefði verið að skera niður
framleiðsluna sem næmi um tveimur
milljónum tunna á dag frá og með
næstkomandi nóvember.
Jake Sullivan, þjóðarörygg-
isráðgjafi, og Brian Deese, efna-
hagsráðgjafi Bandaríkjastjórnar,
sögðu í sameiginlegri yfirlýsingu að
Joe Biden Bandaríkjaforseti væri
„vonsvikinn með þessa skammsýnu
ákvörðun“ OPEC-ríkjanna, en
Bandaríkjastjórn hafði þrýst mjög á
ríkin að halda framleiðslunni
óbreyttri.
Sögðu Sullivan og Deese að
ákvörðunin myndi skaða heimsbú-
skapinn, þar sem hækkun olíuverðs
myndi koma verst við þau ríki sem
þegar stæðu hvað höllustum fæti
vegna hás olíuverðs heima fyrir, á
sama tíma og alþjóðahagkerfið
glímdi við neikvæðar afleiðingar inn-
rásar Rússa í Úkraínu.
Biden ákvað að svara ákvörð-
uninni með því að setja 10 milljón ol-
íutunnur úr varaforða Bandaríkja-
stjórnar á markað í næsta mánuði.
Vonast stjórnvöld vestanhafs til þess
að sú ákvörðun muni dempa verð-
hækkanir á olíu og bensíni. Biden
hefur hins vegar áður þurft að ganga
á forðabúrið, og hafa birgðirnar ekki
verið jafnlitlar frá árinu 1984.
Í yfirlýsingunni sagði jafnframt
að Bandaríkjastjórn vildi kanna með
Bandaríkjaþingi leiðir til að losa um
völd OPEC-ríkjanna yfir olíuverði,
auk þess sem orkumálaráðuneytinu
var falið að kanna allar ábyrgar leið-
ir til þess að auka framleiðslu
Bandaríkjamanna á olíu.
AFP/Joe Klamar
OPEC Hermaður stendur vörð um
höfuðstöðvar OPEC í Vínarborg.
Draga úr olíu-
framleiðslu
- Biden gagnrýnir ákvörðunina
Vladimír Pútín
Rússlandsforseti
hefur hækkað
Ramsan Kadírov,
leiðtoga Tsétséna,
í tign innan rúss-
neska hersins. Er
hann nú þriggja
stjörnu hershöfð-
ingi. Stöðuhækk-
unin kemur í kjöl-
far harðra ummæla Kadírovs, sem
um helgina gagnrýndi rússneska
hershöfðingja fyrir að hafa misst
úkraínsku borgina Líman úr greip-
um sér og kallaði eftir beitingu
kjarnavopna gegn Úkraínu.
Kadírov lýsti því yfir á mánudag
að synir hans þrír á táningsaldri
myndu ferðast til Úkraínu til þess
að berjast í fremstu víglínu. Áður
hefur hann sent frá sér myndskeið
sem eiga að sýna hann nærri víg-
vellinum. Annað hefur þó komið í
ljós við nánari skoðun og hann jafn-
vel reynst víðs fjarri átakasvæðum.
RÚSSLAND
Hækkaður í tign
eftir harða gagnrýni
Ramsan Kadírov
Stefán Gunnar Sveinsson
sgs@mbl.is
Vladimír Pútín Rússlandsforseti
sagði í gær að hann byggist við því
að ástandið í þeim héruðum Úkraínu
sem hann innlimaði í Rússland um
síðustu helgi myndi verða „stöð-
ugra,“ en gagnsóknir Úkraínuhers í
héruðunum hafa náð miklum árangri
í vikunni. Pútín staðfesti formlega
með undirskrift sinni í gær lög frá
dúmunni, þar sem innlimun hérað-
anna var samþykkt.
Pútín lýsti því einnig yfir í gær að
Rússar myndu nú taka yfirráðin yfir
kjarnorkuverinu í Saporisja-héraði,
en Rafael Grossi, framkvæmdastjóri
Alþjóðakjarnorkumálastofnunarinn-
ar, hélt í gær til Kænugarðs til að
ræða stöðu kjarnorkuversins. Sagði
Grossi á Twitter-síðu sinni að
ástandið væri alvarlegt og að það
væri mikilvægara en nokkru sinni
fyrr að koma á fót vopnlausu svæði í
kringum verið.
Gagnsókn Úkraínumanna í gær
skilaði einkum árangri í Lúhansk-
héraði, og sagði Serhí Haídaí, hér-
aðstjóri Lúhansk, að frelsun héraðs-
ins væri nú hafin, en Rússar náðu
nær algjöru valdi á héraðinu í júlí-
mánuði.
Aukin svartsýni meðal Rússa
Velgengni Úkraínumanna í Ker-
son-héraði og víðar hefur haft nokk-
ur áhrif á það hvernig rússneskir
heimildarmenn greina frá átökunum
á samfélagsmiðlum, en þeir hafa ver-
ið helsta upplýsingatæki Rússa
heima fyrir, þar sem rússnesk
stjórnvöld hafa lítið viljað greina frá
gangi stríðsins.
Þannig sagði blaðamaðurinn Alex-
ander Kots, sem styður innrásina,
frá því á Telegram-síðu sinni, að ekki
væri að vænta „neinna góðra frétta í
náinni framtíð,“ hvorki frá víglínunni
í Kerson né frá Lúhansk. Rúmlega
640.000 manns fylgjast með Kots á
Telegram.
Þá sagði Andrei Kartapolov, for-
maður varnarmálanefndar dúmunn-
ar, í gær að yfirmenn hersins yrðu að
segja sannleikann um það sem væri
að gerast í Úkraínu eftir ósigrana.
„Við þurfum að hætta að ljúga,“
sagði hann í viðtali við rússneskan
ríkisfjölmiðil. „Skýrslur varnarmála-
ráðuneytisins breytast ekki. Fólkið
veit. Fólkið okkar er ekki heimskt.
Þetta getur leitt til þess að trúverð-
ugleikinn glatist,“ sagði Kartapolov.
Dmitrí Peskov, talsmaður Pútíns,
sagði hins vegar í gær að Rússar
myndu ná aftur þeim landsvæðum
sem Úkraínuher hefði tekið, og hét
því að þau myndu tilheyra „Rúss-
landi að eilífu og verður ekki skilað“.
Áttundu aðgerðir ESB
Ríki Evrópusambandsins sam-
þykktu í gær að herða enn á refsiað-
gerðum sínum gegn Rússum í ljósi
innlimunar þeirra á fjórum héruðum
Úkraínu. Engar upplýsingar var
hins vegar að fá um eðli hinna nýju
aðgerða, en vitað var að Ungverjar
höfðu hreyft mótbárum við hertum
aðgerðum. Talið er að aðgerðirnar
muni meðal annars fela í sér verðþak
á olíukaup frá Rússlandi.
Aðgerðirnar verða þær áttundu
sem aðildarríkin samþykkja gegn
Rússlandi í kjölfar innrásarinnar, en
gert er ráð fyrir að þær verði birtar
og taki gildi í dag, fimmtudag, ef
engar frekari athugasemdir berast.
Innlimunin „staðfest“ formlega
- Rússar taka sér öll völd yfir kjarnorkuverinu í Saporisja - Frelsun Lúhansk sögð formlega hafin
- Peskov heitir því að Rússar muni endurheimta landsvæðið - Nýjar refsiaðgerðir tilkynntar í dag
AFP
Gagnsókn Ónýtir rússneskir bryn-
drekar sjást hér í safnbing í nágrenni
Líman sem var frelsuð fyrir helgi.
Frans páfi þeysti um Sankti Péturs-
torg í Vatíkaninu í gær og blessaði
þá sem þar voru saman komnir fyr-
ir vikulegt ávarp trúarleiðtogans.
Páfinn beindi orðum sínum til
Vladimírs Pútíns Rússlandsforseta
í messu á sunnudag og kallaði eftir
því að hann stöðvaði stríðið. Þá bað
hann forseta Úkraínu, Volodimír
Selenskí, um að vera opinn fyrir
viðræðum.
Þá hvatti hann einnig alþjóða-
samfélagið til þess að gera allt sem
í sínu valdi stæði til þess að binda
enda á stríðið, án þess þó að láta
draga sig inn í hættulegar að-
stæður.
Var þetta í fyrsta sinn sem páfinn
beinir orðum sínum til Pútíns opin-
berlega frá því að Rússar réðust inn
í Úkraínu í febrúar.
Æðsti leiðtogi rómversk-kaþólsku kirkjunnar dregur enn að sér fjölda fólks
Páfinn veitir
blessun sína
viðstöddum
AFP