Morgunblaðið - 06.10.2022, Page 35
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. OKTÓBER 2022
Street 720
20.796 kr. / 25.995 kr.
St. 36-47
Street 720
20.796 kr. / 25.995 kr.
St. 36-47
KRINGLUKAST
20% AFSLÁTTUR AF VÖLDUM VÖRUM
*GILDIR FRÁ 6.-10. OKTÓBER
Street 720
19.996 kr. / 24.995 kr.
St. 36-41
Street 720
19.996 kr. / 24.995 kr.
St. 36-47
KRINGLAN
Rósa Margrét Tryggvadóttir
rosa@mbl.is
Tónlistarkonan Regína Ósk Óskarsdóttir
stjórnar nýjum morgunþætti á K100 alla laug-
ardagsmorgna ásamt Yngva Eysteinssyni en
hún segist ótrúlega spennt fyrir þessu nýja
verkefni. Þau Yngvi verða með sinn þriðja þátt
af Helgarútgáfunni næstkomandi laugardag á
milli 9-12.
Gaman að vera hinum megin við borðið
„Það var kominn tími til að gera eitthvað að-
eins öðruvísi en ég er búin að vera að gera,“
segir Regína í samtali við Morgunblaðið en
hún segist lengi hafa spáð í því hvort hún ætti
að stíga inn í heim ljósvakamiðla.
„Ég hef alltaf haft gaman af fjölmiðlum,
hvort sem það er útvarp eða sjónvarp. Það hef-
ur einhvern veginn aldrei komið upp og ég
sóttist ekkert endilega eftir því. Svo bara kom
símtal í sumar þar sem ég var beðin um að
leysa af í morgunþættinum í viku. Það var
ótrúlega skemmtilegt og ég er komin hingað
núna,“ segir söngkonan sem nýtur þess að fá
að vera hinum megin við borðið.
„Mér finnst það svo gaman, ég er náttúr-
lega búin að fara í milljón útvarpsviðtöl og
alls konar sjónvarp og svoleiðis en ég hef
aldrei stýrt neinu,“ segir Regína sem nýtur
sín vel í útvarpinu.
„Númer eitt, tvö og þrjú er að ef eitthvað
er áreynslulaust er það gott. Mér finnst það,
ég er ekkert búin að vera stressuð, bara
spennt. Það held ég að sé málið, ef maður
er ekkert að þvinga neitt fram þá er það
eitthvað sem manni líður vel með,“ segir
hún glaðlega.
Regína og Yngvi smullu strax saman í
þættinum og hafa skemmt sér vel síð-
ustu helgar ásamt hlustendum.
„Við eigum náttúrlega sjó-
mennskuna sameiginlega,“ segir
Regína glettnislega og vísaði þar í
starf Yngva úti á sjó, en hann er
menntaður skipstjórnarmaður, og sitt eigið
starf í skemmtanaiðnaðinum eða „show-
businessnum“.
Vill fá hlustendur með
„Hugmyndin er að hafa gaman af
þessu. Ef við höfum ekki gaman af þá hef-
ur enginn gaman af þessu,“ segir Regína
sem vill heyra í hlustendum í þættinum.
„Mér finnst gaman að fá fólkið með,“ segir
Regína sem sjálf nýtur þess að taka þátt í því
sem er í gangi í útvarpinu, þrátt fyrir að hún
hringi sjaldnast sjálf inn.
„Maður er alltaf með þó maður sé í bílnum,“
segir hún en þau Yngvi munu fá til sín
skemmtilega viðmælendur og spjalla
við þá á léttu nótunum.
„Ég er búin að segja skemmtilegt örugglega
svona tíu sinnum,“ segir Regína og hlær en
hún bendir á að það sé það sem þau Yngvi
leggi upp með – að fara skemmtilegri leiðina
heim og hækka í gleðinni.
Það er aldrei lognmolla hjá Regínu sem er
einnig skólastjóri í Söngskóla Maríu Bjarkar
og stýrir sunnudagaskóla og foreldramorgn-
um í Lindakirkju.
„Svo er ég skemmtikraftur, veislu-
stjóri, söngkona, tónlistarkona. Það er
bara alls konar. Það vantar ekki hjá mér,“
segir Regína hlæjandi og bætti við að svo
væri hún auðvitað þriggja barna móðir,
með hund, kött, eiginmann og einbýlishús.
Það er því nóg um að vera hjá Regínu
sem hlakkar mikið til ævintýra helg-
arinnar.
Yngvi Eysteins tekur undir með
Regínu og segir að það sé ótrúlega
gaman að vakna með hlustendum á
laugardagsmorgnum.
„Ég hef nú alltaf verið B-týpan
sem hef sofið fram eftir á laug-
ardögum en ég hef gert þetta núna í
rúmt ár og ég elska þetta,“ segir Yngvi
sem er spenntur fyrir því að vinna
áfram með Regínu.
„Hún er frábær. Ég þekkti Regínu
ekki áður en við byrjuðum að vinna
saman en við erum búin að vinna saman
í svolítinn tíma núna og ég er mjög
spenntur fyrir framhaldinu,“ segir
Yngvi.
Fylgstu með Helgarútgáfunni alla
laugardagsmorgna á K100.
Tími til að gera
eitthvað nýtt
Tónlistarkonan Regína stígur
sín fyrstu skref í útvarpi í
Helgarútgáfunni á K100 sem
hún stjórnar nú ásamt Yngva
Eysteins. Hún hlakkar til kom-
andi tíma og elskar að prófa
að vera „hinum megin við
borðið“ í fyrsta sinn.
Spennandi „Það var
kominn tími til að gera
eitthvað aðeins öðruvísi
en ég er búin að vera að
gera,“ segir Regína sem
stýrir nú sínum fyrsta
útvarpsþætti á K100.
Hress Regína og
Yngvi vakna með
hlustendum á
laugardags-
morgnum.
Rósa Margrét Tryggvadóttir
rosa@mbl.is
Söngkonan Valdís Valbjörnsdóttir, eða VALD-
IS, hefur sendi frá sér fallegt og angurvært
lag, lagið Story for you á dögunum. Lagið
fjallar um að sakna gömlu daganna, þegar
maður var ungur og áhyggjulaus.
„Ég held að margir geti tengt við lagið þar
sem margt getur breyst þegar maður eldist og
þá saknar maður ef til vill gamalla tíma,“ segir
Valdís, sem er 22 ára og kynnti lagið hjá
Heiðari Austmann á K100.
Valdís byrjaði að æfa söng þegar hún var
níu ára gömul en hún lærði meðal annars hjá
Regínu Ósk söngkonu.
Þegar ég var að læra hjá Regínu keyrðu
mamma og pabbi mig frá Sauðárkróki í söng-
tíma í Reykjavík aðra hverja viku. Síðan þegar
ég byrjaði í framhaldsskóla hóf ég söngnám
hjá Þórhildi Örvars og keyrði til hennar til Ak-
ureyrar vikulega. Eftir framhaldsskóla fór ég í
Complete Vocal Institute í Kaupmannahöfn og
útskrifaðist þaðan með diplómu í söng. Það
hefur því alltaf verið ætlunin að gefa út mína
eigin tónlist,“ segir Valdís sem vinnur nú í
ýmsu tónlistartengdu en von er á ýmsu frá
tónlistarkonunni ungu á næstunni.
„Ég hef verið að vinna með fjölbreyttum
hópi af tónlistarfólki og hlakka til að gefa út
meira efni. Svo er jólatónleikaundirbúning-
urinn hafinn þannig að það er nóg að gera. Ég
elska jólin og finnst jólatónleikar mjög
skemmtilegt verkefni,“ segir Valdís sem ætlar
að syngja á jólatónleikunum Jólin heima í Mið-
garði í Skagafirði 10. desember.
Hægt er að hlusta á lagið Story for you og
fleiri lög Valdísar á öllum helstu streymis-
veitum þar sem hún gengur undir listamanns-
nafninu VALDIS.
Fallegt Story for you fjallar um gömlu tímana
þegar maður var ungur og áhyggjulaus.
Auðvelt að
sakna gömlu
daganna
VALDIS hefur gefið út lagið
Story for you sem hún telur að
margir geti tengt við.