Morgunblaðið - 06.10.2022, Side 43
MINNINGAR 43
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. OKTÓBER 2022
Nýlega kvaddi þennan heim
sómakonan Eygló frá Ásakoti.
Allan sinn aldur bjó hún á sínu
æskuheimili, starfaði þar að búi
með foreldrum og síðan félagsbúi
með bróður sínum, Ragnari, eftir
að faðir þeirra lést. Skólaganga
var að hætti sveitabarna þeirrar
tíðar og síðan gekk hún í Hús-
mæðraskólann í Reykjavík. Eygló
er einn síðasti fulltrúi gömlu heim-
ilanna í Tunguhverfinu, a.m.k.
þeirra sem þar bjuggu alla sína
tíð. Hún upplifði, má segja, tíma
allra breytinga í búnaðarháttum
þjóðarinnar. Ólst upp í torfbæ
með gömlu amboðin í höndum og
einnig á tíma hestaverkfæra, þar
til vélvæðingin hafði að fullu tekið
við og húsakostur allur steyptur
upp.
Frá barnæsku snerist líf
heimasætunnar í Ásakoti um
hesta og raunar kindur líka. Eygló
var ein þeirra vinkvenna sem riðu
norður til Hóla á landsmót 1966,
þ.e. án karlmanna, og þótti í frá-
sögur færandi í þá tíð. Helstu
áhyggjur karlpenings í Biskups-
tungum voru þær, að þessar kon-
Eygló
Jóhannesdóttir
✝
Eygló Jóhann-
esdóttir fædd-
ist 23.4. 1932. Hún
lést á sjúkrahúsinu
á Selfossi 25.9.
2022.
Foreldrar henn-
ar voru Margrét
Halldórsdóttir og
Jóhannes Jónsson
sem bjuggu að Ása-
koti í Biskups-
tungum. Systkini
hennar voru, Ragnheiður Þór-
laug, húsmóðir í Reykjavík, f.
29.10. 1924, d. 7.4. 2004 og
Ragnar Bragi, bóndi í Ásakoti, f.
30.9. 1926, d. 14.8. 2020.
Eygló var ógift og barnlaus.
Útförin fer fram frá Bræðra-
tungukirkju í dag, 6. október
2022, kl. 14.
ur yrðu bjargarlaus-
ar ef skeifa tapaðist
undan hesti. Þessar
konur komust allar
norður og heim aftur
án aðstoðar. Fjöl-
margar ferðir á hest-
um fór hún síðar
með vinafólki úr
heimasveit, bæði um
Suðurland og vestur
í Borgarfjörð. Alla
tíð hafði hún gaman
af að rifja upp þær ferðir. Á henn-
ar ungdómsárum voru kindur og
stóðhross rekin í afrétt og þá auð-
vitað farið á hestum. Þær ferðir
voru henni alla tíð ofarlega í huga
og gaman þótti henni fram á síð-
ustu stundu að minnast þeirra
tíma. En á síðustu mánuðum var
jafnvel farið að fyrnast um það
sem nýrra var í tilverunni. Fram á
síðasta dag mátti ná til hennar
með því að minnast á gamla
granna úr Tunguhverfinu sem
voru henni alla tíð kærir. Nokkrar
fjallferðir fór Eygló á Kjöl, en þó
ekki fyrr en á áttunda áratugnum,
þegar hún var komin um fimm-
tugt. Enda þótti það ekki vogandi
fyrir konur að vera heila viku á
fjöllum og smala kindum lengi
framan af öldum á Íslandi. Eygló
var dýravinur, hændi að sér bæði
hunda, ketti, hesta og kindur. Hún
hafði gaman af börnum og náði vel
til þeirra. Ég kom sem vinnumað-
ur í Ásakot á fimmtánda ári og var
frá fyrsta degi að kalla má heim-
ilismaður á þeim bæ og raunar alla
tíð síðan. Þar kynntist ég, Vest-
firðingurinn, alveg nýju landslagi
og búskaparháttum, með þeim af-
leiðingum að ég staðfesti mitt ráð
á Suðurlandi. Við Eygló vorum
alla tíð góðir vinir og áttum enda
sömu áhugamál sem við gátum
rætt fram á hennar síðasta dag.
Við Hallveig þökkum góðri konu
samfylgd og hlýju í garð okkar,
sem og okkar barna.
Magnús Halldórsson.
✝
Bragi Ingason
fæddist á
Drangsnesi 30.
janúar 1933. Hann
lést á Landakots-
spítala 18. sept-
ember 2022. Bragi
var sonur
hjónanna Guð-
rúnar Guðlaugs-
dóttur frá Kletti í
Geiradal í Austur-
Barðastrand-
arsýslu, f. 23. mars 1904, d.
17. febrúar 1971 og Inga Guð-
monssonar frá Kolbeinsvík í
Strandasýslu, f. 18. maí 1902,
d. 21. október 1992.
Bragi var næstelstur 5
systkina, elstur er Pétur og
yngri eru Guðlaugur og syst-
irin Sigurlína, sem er látin, og
Viðar yngstur sem lést aðeins
nokkurra vikna gamall.
Árið 1958 kvæntist Bragi
Erlu Óskarsdóttur frá Siglu-
firði, en þau kynntust um borð
í Gullfossi 1953 á leið til
Kaupmannahafnar, þegar þau
voru á leið þangað til náms.
Bragi og Erla eignuðust
fjögur börn: Anney Ósk, synir
hennar eru Óskar og Pétur.
Óskar er kvæntur Yvonne
Della Sio og eiga þau dæt-
urnar Avery Erlu og Sóleyju
Reginu.
Ingi Rúnar, í sambúð með
hann störf á Hellerup Club
Hotel.
Árið 1958 hóf hann störf á
Naustinu og frá 1960 var
hann yfirmatreiðslumaður á
veitingastaðnum Klúbbnum.
Hann starfaði á Hótel Sögu
sem yfirmatreiðslumeistari
frá 1965 til 1974, þegar hann
hóf störf sem matreiðslu-
meistari á Landakotsspítala,
og vann þar í 14 ár áður en
hann lauk starfsferlinum á
Hótel Esju árið 2000, er hann
lét af störfum eftir ríflega 50
ára starfsferil.
Bragi tók þátt í félags-
störfum innan fagsins og sat í
stjórn Félags matreiðslu-
manna um árabil og var m.a.
formaður FM 1960. Sem
fulltrúi FM sat hann í Iðnráði
1959 til 1966 og sat í ýmsum
nefndum, m.a. sveinsprófs-
nefnd og launasamninga-
nefnd.
Hann var einn af 12 stofn-
endum Klúbbs matreiðslu-
meistara árið 1972 og sat í
stjórn um árabil. Hann var
fulltrúi KM á fundum og ráð-
stefnum NKF eða Nordisk
Kökkenchef Federation og ár-
ið 1995 veitti NKF honum
orðu sambandsins, Cordon
Rouge.
Hann var heiðursfélagi
Klúbbs matreiðslumeistara frá
1987.
Útför Braga verður gerð
frá Kópavogskirkju í dag, 6.
október 2022, klukkan 15.
Kolbrúnu Jóns-
dóttur, dóttir hans
er Freyja, í sam-
búð með Sigurjóni
Bjarna Bjarnasyni.
Bragi Freyr,
kvæntur Lindu
Stefánsdóttur,
synir þeirra eru
Ingi Freyr og
Ágúst Freyr. Ingi
Freyr er kvæntur
Tinnu Lind Lauf-
dal Guðlaugsdóttur, dóttir
þeirra er Viktoría Lind.
Ívar, kvæntur Aldísi Haf-
steinsdóttur, börn þeirra eru
Garibaldi, Rúrik Lárus og Ást-
rós Rut (Sigurðardóttir), sem
er í sambúð með Davíð Erni
Hjartarsyni, börn þeirra eru
Elmar Óðinn (Davíðsson),
Emma Rut (Bjarkadóttir), Eið-
ur Ben og Erik Ben.
Bragi ólst upp á Fiskinesi
við Steingrímsfjörð til 7 ára
aldurs, en þá fluttist fjöl-
skyldan á Akranes.
Bragi sótti alla tíð mikið á
sjóinn og árið 1951 réð hann
sig sem matsvein á MS Kötlu
og var í siglingum til 1953, en
þá fór hann til náms til Kaup-
mannahafnar. Hann lærði til
matreiðslumanns hjá Fred-
riksberg Selskabslokaler og
lauk sveinsprófi 1957 með
hæstu einkunn. Í kjölfarið hóf
Elsku pabbi, það verður bið
á því að við ræðum draumfarir
síðustu nátta. Við vorum eig-
inlega búin að endurskrifa
draumráðningabókina sem þú
geymir í náttborðsskúffunni.
Manstu, þegar við keyptum
hana á bókamarkaðinum?
Vid vorum líka sammála um
að hún væri alls ekki tæmandi
og jafnvel þó nokkrar villur í
henni.
Við verðum líka að hinkra
aðeins með Orðaruglið, þú
skildir eftir nýjustu bókina.
Það er svo skrítið að hugsa
til allra minninganna sem ég á
um þig, okkur saman, vitandi
að ekki er hægt að búa til fleiri
minningar með þér.
„Það er best þú leiðir mig,
þrepin eru svo há“. Svo röltum
við niður af fjórðu hæð, ég man
enn hvað mér fannst höndin
hans pabba stór.
„Suss, hafið þögn, það eru að
koma veðurfréttir“. Ég kunni
ekki að meta kyrrðarstundina
meðan veðurfréttir voru lesnar
fyrr en löngu seinna. Þá sátum
við pabbi saman í litla bláa eld-
húsinu í Klettakoti, sötruðum
brennandi heitt kaffi, hlustuð-
um á veðurfréttir og horfðum
út um gluggann þar sem
drengirnir mínir voru að leik.
„Jæja nú dönsum við sam-
an“. Svo stóð hann upp í þess-
um fína smóking, hnarreistur
og hneigði sig stuttlega fyrir
framan mig. Við vorum á
árshátíð, á Borginni. Ég var
pínu montin þegar hann leiddi
mig út á dansgólfið. Mér fannst
þetta svo flott. Seinna bauðstu
mér í enn fínna samkvæmi með
mektarfólki landsins, „nei hér
er ekki dansað“ svo glotti hann
og dró stólinn frá borðinu og
bauð mér sæti.
„Anney mín, þú veist þú get-
ur alltaf leitað til mín ef eitt-
hvað bjátar á“. Svo tók hann
höndina mína og lagði milli
sinna lófa, og andaði þungt,
þar sem við stóðum við
gluggann og horfðum út í
haustsólina.
„Kemur ekki til greina“
sagði hann hávær og reiður …
og ég rauk út í fússi.
„Láttu ekki svona við mig“
þegar hann sá fýlusvipinn á
mér. Svo settumst við niður við
Orðarugl, hann var oft fljótari
en ég. Svo var vandasamt þeg-
ar við vorum að hjálpa hvort
öðru og gefa vísbendingar en
ekki mátti segja of mikið, það
var eiginlega jafn skemmtilegt.
„Viltu ekki fara heim að
hvíla þig?“ Nei, pabbi minn,
mér líður betur hérna, við get-
um svo vel þagað saman inn í
nóttina og svo kreisti hann
höndina mína örstutt.
Hjarta mitt er fullt af sorg
og trega, táraflóðið óstöðvandi.
Þetta er svo sárt, stóllinn þinn
við skrifborðið er tómur.
“Ef þú átt föður, farðu þá
varlega með hann, vegna þess
að þú munt kynnast þjáningu
og sársauka þegar þú sérð
tóma stólinn hans,“
Frida Kahlo sagði þetta, ég
er henni sammála.
Elsku pabbi, við hittumst
seinna.
Þín dóttir
Anney Ósk.
Elsku afi.
Mínar fyrstu minningar um
okkur saman eru þegar ég var
bara lítill. Við bjuggum hjá þér
og ömmu, þú sóttir mig oft á
leikskólann og hafðir mikinn
áhuga á því hvað ég hafði verið
að gera yfir daginn. Við áttum
langt samtal alla leiðina heim
um það sem mér þótti kannski
ekki mikið merkilegt, bara að
leika á leikskólanum. Oft fór ég
með þér í bíltúr niður á höfn
eða út á flugvöll, skoða alla
bátana og flugvélarnar og það
átti svo sinn þátt í því hvaða
starfsvettvang ég valdi mér
seinna meir.
Það eru yndislegar minning-
ar sem ég á frá öllum sumr-
unum okkar norður í Kletta-
koti. Skemmtilegast þótti mér
að fá að fara með þér út á bát
að veiða, alltaf vissir þú hvar
fiskurinn var. Það er líka sterk
minningin þegar ég þurfti að
hjálpa þér að taka netið inn
eitt kvöldið, til að bjarga því
frá stormi. Ég stóð í fjöru-
grjótinu og fannst öldurnar
ganga yfir mig meðan ég hélt í
bandið og slakaði þegar þú
kallaðir. Okkur tókst þetta og
mér fannst þetta vera mikið af-
rek og var stoltur að geta
hjálpað. Ferðirnar urðu fleiri
með árunum og alltaf var góð-
ur matur, nýveiddur silungur
eða íslenska kjötsúpan þín. Ég
lærði líka mikið af þér í mat-
argerð, sérstaklega þegar þú
og amma komuð út til okkar í
heimsókn og um jólin er við
elduðum jólamatinn saman.
Við áttum enn okkar góða
samband nú seinni árin þó að
ég byggi langt í burtu. Við átt-
um alltaf gott spjall í síma og í
hvert skipti sem ég var heima,
um vinnuna mína og annað.
Enn hafðir þú áhuga á því
hvernig gengi og hvað væri að
gerast hjá mér. Það mun taka á
að geta ekki lengur sent þér
bréf frá öllum borgunum þar
sem ég stoppa, það var yfirleitt
það fyrsta sem ég gerði þegar
ég var kominn inn á hótel, að
setjast niður og skrifa til þín.
Það gleður mitt hjarta að
stelpurnar mínar fengu tíma til
að kynnast þér og munu eiga
góðar minningar með langafa.
Það var alltaf yndislegt að
koma í Hlégerðið til ykkar
ömmu og vera hjá ykkur.
Þessar minningar og svo
margar aðrar mun ég geyma í
hjartanu.
Ég mun segja stelpunum
mínum sögur af langafa og öll-
um hans ævintýrum.
Við elskum þig, afi, og sökn-
um sárt.
Óskar, Yvonne, Avery Erla
og Sóley Regina.
Góður vinur og félagi, Bragi
Ingason, hefur kvatt þessa
jarðvist, 89 ára að aldri. Kynni
mín af Braga hófust á náms-
árum mínum í matreiðslu er ég
var að hluta til í námu mínu á
Hótel Sögu þar sem Bragi var
yfirmatreiðslumaður. Þetta var
á árunum 1966-67. Áður en ég
fór á Sögu var mér sagt að yf-
irmatreiðslumaðurinn væri
strangur og hefði mikinn aga á
nemum sínum þannig að það
var með nokkrum kvíða en um
leið tilhlökkun að fá að vera á
Hótel Sögu, sem þá var einn
helsti veislustaður landsins og
státaði af Grillinu á efstu hæð
hótelsins sem var gríðarlega
vinsælt á þessum árum. Ég
fann aldrei fyrir því að Bragi
væri strangur, aðeins það að
hann vildi að nemar hans stund-
uðu sína vinnu samviskusam-
lega, mættu stundvíslega og
væru reglusamir. Það var nú
allt og sumt.
En kynni okkar Braga hófust
af alvöru þegar ég gekk í Klúbb
matreiðslumeistara en Bragi
var einn af stofnendum hans ár-
ið 1972. Þarna hófst í raun okk-
ar góða vinátta sem hélst allt til
síðasta dags. Við sóttum oft
ásamt félögum klúbbsins þing
Norðurlandasamtaka mat-
reiðslumeistara sem haldin eru
annað hvert ár á milli landanna
og var Bragi þar oftast í far-
arbroddi. Hann hafði mikinn
áhuga á þessu samstarfi Norð-
urlandanna og vildi vita hvað
hinar þjóðirnar væru að gera og
líka segja frá okkar starfsemi.
Bragi var víðsýnn og hafði
sterkar skoðanir á ýmsum mál-
um og var geysilega fróður um
allt milli himins og jarðar. Þótt
15 ár væru á milli okkar Braga í
aldri lágu skoðanir okkar yf-
irleitt saman, hvorugur mikið
tæknivæddur, vildum oft halda í
það gamla en skildum að það
yrði að verða framþróum á
ýmsum sviðum og ekki síst í
okkar fagi. Í samtölum okkar
talaði hann oft um yfirborðs-
kennd og sýndarmennsku nú-
tímans sem ekkert væri á bak
við og stæðist enga skoðun.
Bragi var mjög minnugur á
fortíðina, var skipulagður í sín-
um störfum, átti til dæmis alla
matseðla handskrifaða frá tíma
sínum til sjós, Hótel Sögu og
veitingastaðnum Klúbbnum og
hvað margir voru í mat hverju
sinni. Þótt líkamlegt ástand
Braga væri ekki upp á það
besta hin síðari ár þá brást ekki
minnið og þörf á að ræða málin
og áttum við margar ánægju-
stundir saman sem ég er þakk-
látur fyrir. Ég náði að heim-
sækja Braga daginn fyrir
andlátið og átti með honum
góða stund þar sem ég skynjaði
að lokastundin væri komin.
Ég vil votta þér, elsku Erla
mín, mína dýpstu samúð og bið
góðan Guð að styrkja þig og
fjölskyldu þína. Bragi minn,
takk fyrir allt sem þú gafst
mér. Hvíl í friði minn kæri vin-
ur.
Lárus Loftsson.
Bragi Ingason HINSTA KVEÐJA
Ó, Jesús bróðir besti
og barnavinur mesti,
æ breið þú blessun þína
á barnæskuna mína.
(Páll Jónsson)
Við kveðjum þig með
söknuði og þakklæti fyrir
allt sem þú gafst okkur.
Hvíl í friði, elskulegur.
Ívar, Aldís, Ástrós Rut,
Garibaldi og Rúrik Lárus.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og
hlýhug vegna andláts og útfarar ástkærrar
eiginkonu minnar, móður, tengdamóður,
ömmu og langömmu,
ÁSDÍSAR VALDIMARSDÓTTUR,
Næfurholti 1, Hafnarfirði,
sem lést sunnudaginn 11. september.
Þór Gunnarsson
Anna Margrét Þórsdóttir Ólafur Gauti Hilmarsson
Þórdís Þórsdóttir Jóhann G. Jóhannsson
Davíð Arnar Þórsson Ingibjörg Ólafsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn
Innilegustu þakkir fyrir auðsýnda samúð og
hlýhug vegna andláts og útfarar föður
okkar, tengdaföður, afa og langafa,
SIGURGEIRS KJARTANSSONAR
læknis
Aðalsteinn Sigurgeirsson Steinunn Geirsdóttir
Elín Sigurgeirsdóttir Þorsteinn Gunnlaugsson
barnabörn og barnabarnabörn
HELGI INGI SIGURÐSSON
lést 13. september.
Samkvæmt ósk hins látna
fór útförin fram í kyrrþey.
Aðstandendur
Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð og
hlýhug vegna andláts og útfarar ástkærrar
eiginkonu minnar, móður, tengdamóður,
ömmu og langömmu,
SIGRÍÐAR Þ. KOLBEINS,
Boðaþingi 10,
sem lést föstudaginn 2. september.
Sérstakar þakkir fær starfsfólk Roðasala og Landspítalans B-2
fyrir alla aðstoð og aðhlynningu.
Gunnar Ágústsson
Ásgrímur I. Friðriksson Patti Fridriksson
María Þórunn Friðriksdóttir
Þórdís D. Gunnarsdóttir Jóhann S. Guðmundsson
Berglind Gunnarsdóttir Eggert S. Kaldalóns Jónsson
barnabörn og barnabarnabörn