Morgunblaðið - 06.10.2022, Blaðsíða 54

Morgunblaðið - 06.10.2022, Blaðsíða 54
54 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. OKTÓBER 2022 Besta deild karla Efri hluti: Víkingur R. – Valur .................................. 3:2 Staðan: Breiðablik 23 17 3 3 58:23 54 Víkingur R. 23 13 7 3 61:34 46 KA 23 14 4 5 46:26 46 Valur 23 9 5 9 40:35 32 KR 23 7 10 6 37:35 31 Stjarnan 23 8 7 8 40:45 31 Neðri hluti: ÍBV – FH .................................................. 2:1 Staðan: Keflavík 23 9 4 10 42:42 31 Fram 23 6 10 7 47:53 28 ÍBV 23 5 8 10 35:45 23 Leiknir R. 23 5 5 13 23:52 20 FH 23 4 7 12 28:37 19 ÍA 23 3 6 14 26:56 15 Meistaradeild karla E-RIÐILL: Salzburg – Dinamo Zagreb ..................... 1:0 Chelsea – AC Milan.................................. 3:0 Staðan: Salzburg 3 1 2 0 3:2 5 Chelsea 3 1 1 1 4:2 4 AC Milan 3 1 1 1 4:5 4 Dinamo Zagreb 3 1 0 2 2:4 3 F-RIÐILL: RB Leipzig – Celtic .................................. 3:1 Real Madrid – Shakhtar Donetsk........... 2:1 Staðan: Real Madrid 3 3 0 0 7:1 9 Shakhtar Donetsk 3 1 1 1 6:4 4 RB Leipzig 3 1 0 2 4:7 3 Celtic 3 0 1 2 2:7 1 G-RIÐILL: Manchester City – Köbenhavn .............. 5:0 - Ísak B. Jóhannesson lék allan leikinn með Köbenhavn og Hákon Arnar Haralds- son kom inn á eftir 55 mínútur en Orri Steinn Óskarsson var ekki í hópnum. Sevilla – Dortmund .................................. 1:4 Staðan: Manchester City 3 3 0 0 11:1 9 Dortmund 3 2 0 1 8:3 6 Sevilla 3 0 1 2 1:8 1 København 3 0 1 2 0:8 1 H-RIÐILL: Benfica – París SG.................................... 1:1 Juventus – Maccabi Haifa ....................... 3:1 Staðan: París SG 3 2 1 0 6:3 7 Benfica 3 2 1 0 5:2 7 Juventus 3 1 0 2 5:5 3 Maccabi Haifa 3 0 0 3 2:8 0 England B-deild: Burnley – Stoke ....................................... 1:1 - Jóhann Berg Guðmundsson kom inn á hjá Burnley á 72. mínútu. Hull – Wigan ............................................. 2:1 Middlesbrough – Birmingham................ 1:0 Rotherham – Millwall .............................. 1:1 Watford – Swansea .................................. 1:2 Preston – WBA......................................... 1:0 Staða efstu liða: Sheffield Utd 12 7 3 2 20:7 24 Norwich 12 7 3 2 18:10 24 Reading 12 7 1 4 14:16 22 QPR 12 6 3 3 17:12 21 Burnley 12 4 7 1 19:12 19 Ítalía Bikarkeppni C-deildar: LR Vicenza – Virtus Verona .................. 2:1 - Emil Hallfreðsson kom inn á hjá Virtus Verona á 77. mínútu. 4.$--3795.$ Subway-deild kvenna Fjölnir – Njarðvík ................................ 84:95 Grindavík – Breiðablik......................... 65:77 Keflavík – Haukar ............................. (50:46) _ Leiknum var ekki lokið þegar blaðið fór í prentun í gærkvöld. Staðan fyrir leik Keflavíkur og Hauka: Keflavík 2 2 0 183:130 4 Haukar 2 2 0 181:115 4 Njarðvík 3 2 1 244:240 4 Valur 2 1 1 146:123 2 Grindavík 3 1 2 213:229 2 Breiðablik 3 1 2 181:237 2 Fjölnir 3 1 2 217:232 2 ÍR 2 0 2 103:162 0 1. deild kvenna Snæfell – Þór Ak................................... 63:57 Aþena/Leiknir/UMFK – KR............... 75:82 Staðan: KR 3 3 0 235:192 6 Snæfell 3 2 1 225:176 4 Stjarnan 2 2 0 171:142 4 Þór Ak. 3 2 1 194:173 4 Ármann 2 1 1 136:129 2 Hamar-Þór 3 1 2 213:192 2 Tindastóll 3 1 2 213:178 2 Aþ/Lei/UMFK 2 0 2 156:179 0 Breiðablik B 3 0 3 110:292 0 Meistaradeild FIBA Tenerife – Rytas Vilnius..................... 89:74 - Elvar Már Friðriksson skoraði 5 stig og tók eitt frákast á 14 mínútum með Rytas. Ítalía Libertas Moncalieri – Faenza ............ 88:85 - Sara Rún Hinriksdóttir skoraði 14 stig og tók 4 fráköst á 29 mínútum með Faenza. 4"5'*2)0-# Englandsmeistarar Manchester City voru alltof stór biti fyrir dönsku meistarana í Köbenhavn á Etihad-leikvanginum í Manchester í gærkvöld þegar liðin mættust þar í Meistaradeildinni. City sigraði 5:0 eftir 3:0 í hálfleik þar sem Erling Haaland var búinn að skora tvö mörk eftir 32 mínútur en lét svo þar við sitja. Riyad Mahrez og Julian Álvarez skoruðu einnig fyrir City og eitt markanna var sjálfsmark. Ísak Bergmann Jóhannesson var þar í annað sinn í byrjunarliði Köb- enhavn í fyrstu þremur umferðum keppninnar og Hákon Arnar Har- aldsson kom inn á sem varamaður og hefur því einnig tekið þátt í öll- um þremur leikjum danska liðsins. Chelsea tók loksins við sér eftir að hafa fengið eitt stig úr tveimur fyrstu leikjunum og vann AC Milan 3:0 á Stamford Bridge. Wesley Fof- ana, Pierre-Emerick Aubameyang og Reece James skoruðu mörkin. Fimm marka tap Köbenhavn í Manchester AFP/Lindsey Parnaby City Julian Álvarez skorar fimmta markið gegn Köbenhavn. ÍBV – FH 2:1 1:0 Telmo Castanheira 8. 1:1 Ólafur Guðmundsson 33. 2:1 Eiður Aron Sigurbjörnsson 56. M Arnar Breki Gunnarsson (ÍBV) Telmo Castanheira (ÍBV) Atli Hrafn Andrason (ÍBV) Eiður Aron Sigurbjörnsson (ÍBV) Kristinn Freyr Sigurðsson (FH) Ólafur Guðmundsson (FH) Dómari: Pétur Guðmundsson – 6. Áhorfendur: 168. VÍKINGUR R. – VALUR 3:2 0:1 Jesper Juelsgård 29. 0:2 Birkir Heimisson 45. 1:2 Danijel Dejan Djuric 70. 2:2 Nikolaj Hansen 84. 3:2 Danijel Dejan Djuric 86. MM Danijel Dejan Duric (Víkingi) M Halldór Smári Sigurðsson (Víkingi) Pablo Punyed (Víkingi) Ari Sigurpálsson (Víkingi) Frederik Schram (Val) Jesper Juelsgård (Val) Sigurður Egill Lárusson (Val) Aron Jóhannsson (Val) Birkir Heimisson (Val) Dómari: Sigurður H. Þrastarson – 8. Áhorfendur: Um 500. _ Liðsuppstillingar, gul spjöld, viðtöl og greinar um leikina – sjá mbl.is/sport/fot- bolti. BESTA DEILDIN Víðir Sigurðsson vs@mbl.is Ævintýralegur endasprettur Vík- inga sem færði þeim sigur á Val, 3:2, kom í veg fyrir að Breiðablik fengi færi á að tryggja sér Íslandsmeist- aratitil karla í fótbolta á sunnudag. Um leið tryggu þeir KA sæti í Evrópukeppni í fyrsta sinn í 33 ár. Ekkert benti til annars þegar Arnar Gunnlaugsson gerði fjórfalda skiptingu hjá Víkingum um miðjan síðari hálfleik þegar Valur var með 2:0 forystu í Fossvoginum. Varamenn Víkinga gjörbreyttu leiknum, Danijel Dejan Djuric skor- aði tvö mörk og Nikolaj Hansen eitt og þeir Arnór Borg Guðjohnsen og Viktor Örlygur Andrason lögðu upp sitt markið hvor. _ Víkingar eru því aftur í öðru sætinu, með betri markatölu en KA, og á ný átta stigum á eftir Blikum þegar fjórum umferðum er ólokið. _ Víkingar hafa þar með ekki tap- að í 17 leikjum í röð í deildinni, síðan þeir töpuðu fyrir Breiðabliki 16. maí, og hafa auk þess unnið fjóra bikar- leiki á sama tíma. Víkingar mæta Stjörnunni á mánudagskvöldið en áður eigast KA og Breiðablik við á Akureyri á sunnudeginum. Eyjamenn stigu stórt skref í átt að áframhaldandi veru í deildinni með því að leggja FH-inga 2:1 á Há- steinsvelli í gær. Um leið þyngdist róður FH-inga enn frekar því þeir sitja áfram í fallsæti deildarinnar, einu stigi á eftir Leiknismönnum, sem einmitt koma í heimsókn í Kaplakrika á sunnudaginn kemur. Eins og staðan er núna stefnir í að það verði algjör lykilleikur í fallbar- áttunni og mestar líkur á að annað hvort liðanna falli niður í 1. deild ásamt Skagamönnum. ÍBV hafði aðeins unnið einn af síð- ustu fimm leikjum sínum og sogast nær og nær hættusvæðinu. Nú er staða Eyjamanna allt önnur, þeir eru fjórum stigum frá fallsæti og eiga aftur heimaleik á sunnudag gegn Keflavík. _ Eiður Aron Sigurbjörnsson fyr- irliði ÍBV skoraði sigurmarkið í leiknum. Hann hefur skorað þrjú mörk í deildinni í ár, öll í sigur- leikjum og tvö þeirra gegn FH á Há- steinsvelli. Ótrúlegur endasprettur hjá Víkingum Ljósmynd/Sigfús Gunnar Skoruðu Telmo Castanheira og Eiður Aron Sigurbjörnsson gerðu mörk ÍBV og fagna hér sigurmarki Eiðs gegn FH ásamt Alex Frey Hilmarssyni. - Varamennirnir skoruðu þrjú mörk í 3:2 sigri á Val - KA í Evrópukeppni Valur vann glæsilegan 27:22- heimasigur á ríkjandi Íslands- meisturum Fram í 3. umferð Olís deildar kvenna í handbolta í gær- kvöldi. Um sannkallaðan stórleik var að ræða á milli Íslandsmeist- ara síðustu tveggja ára og liða sem er spáð afar góðu gengi í vetur. Leikurinn var kaflaskiptur, en Valskonur voru með 15:12- forskot í hálfleik. Fram byrjaði seinni hálfleikinn betur og komst í 20:18 en Valskonur voru magn- aðar á lokakaflanum og unnu að lokum nokkuð sannfærandi sigur. Thea Imani Sturludóttir gerði sex mörk fyrir Val og Sara Sif Helgadóttir átti stórleik í mark- inu og varði 15 skot. Madeleine Lindholm, Steinunn Björnsdóttir og Perla Ruth Albertsdóttir voru með fimm mörk hver fyrir Fram, sem er aðeins með tvö stig eftir þrjá leiki. Stjörnukonur líta vel út Stjarnan er með fullt hús stiga eftir afar sannfærandi 29:18-sigur á KA/Þór í Garðabænum. Lena Margrét Valdimarsdóttir skoraði átta mörk fyrir Stjörnuliðið og þær Anna Karen Hansdóttir og Britney Cots gerðu fimm hvor. Þrátt fyrir að leikmenn á borð við Helenu Rut Örvarsdóttur og Evu Björk Davíðsdóttir hafi oft skorað meira var Stjarnan mun sterkari aðilinn, sem er mikið styrkleikamerki. Þá varði hin svartfellska Darija Zecevic 17 skot í markinu. Tímabilið gæti orðið erfitt fyrir KA/Þór, en nánast allt byrjunar- liðið frá því á síðustu leiktíð er horfið á braut. Hin brasilíska Nat- halia Baliana lék sinn fyrsta leik með liðinu og skoraði fjögur mörk, eins og Hildur Lilja Jóns- dóttir. KA/Þór er með tvö stig. Morgunblaðið / Kristinn Magnússon Átta Lena Margrét Valdimarsdóttir, sem skoraði átta mörk fyrir Stjörnuna, sækir að marki KA/Þórs í TM Höllinni í Garðabænum í gærkvöldi. Valur og Stjarn- an með fullt hús
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.