Morgunblaðið - 06.10.2022, Page 55

Morgunblaðið - 06.10.2022, Page 55
ÍÞRÓTTIR 55 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. OKTÓBER 2022 Olísdeild kvenna Stjarnan – KA/Þór ............................... 29:18 Valur – Fram ........................................ 27:22 Staðan: Valur 3 3 0 0 91:62 6 Stjarnan 3 3 0 0 79:60 6 ÍBV 2 1 0 1 50:51 2 Fram 3 1 0 2 81:67 2 Selfoss 2 1 0 1 50:52 2 KA/Þór 3 1 0 2 71:82 2 Haukar 2 0 0 2 47:63 0 HK 2 0 0 2 39:71 0 Meistaradeild karla A-riðill: GOG – Veszprém ................................. 30:31 - Bjarki Már Elísson skoraði eitt mark fyrir Veszprém. B-riðill: Celje Lasko – Nantes .......................... 24:35 - Viktor Gísli Hallgrímsson lék ekki með Nantes vegna meiðsla. Noregur Sola – Volda ......................................... 25:18 - Dana Björg Guðmundsdóttir skoraði 4 mörk fyrir Volda en Rakel Sara Elvars- dóttir og Katrín Jensdóttir skoruðu ekki. Halldór Stefán Haraldsson þjálfar liðið. Kristiansand – Storhamar ................. 35:30 - Axel Stefánsson þjálfar kvennalið Stor- hamar. Haslum – Fjellhammer ....................... 24:31 - Örn Vésteinsson skoraði ekki fyrir Haslum. Svíþjóð Bikarinn, 16-liða úrslit, fyrri leikur: Kungälv – Skara.................................. 30:31 - Aldís Ásta Heimisdóttir skoraði 4 mörk fyrir Skara, Ásdís Guðmundsdóttir 1 en Jó- hanna Sigurðardóttir var ekki með. Danmörk Esbjerg – Ringköbing......................... 35:16 - Lovísa Thompson lék ekki með Ringköb- ing. Elín Jóna Þorsteinsdóttir markvörður kom ekkert inn á í leiknum. Þýskaland Thüringen – Zwickau ......................... 32:24 - Díana Dögg Magnúsdóttir skoraði 3 mörk fyrir Zwickau. Sviss Amicitia Zürich – Kreuzlingen.......... 30:24 - Harpa Rut Jónsdóttir skoraði ekki fyrir Amicitia. Sunna Guðrún Pétursdóttir varði 4 skot í marki liðsins. E(;R&:=/D HANDKNATTLEIKUR Úrvalsdeild karla, Olísdeildin: Eyjar: ÍBV – Stjarnan .............................. 18 KA-heimilið: KA – ÍR........................... 19.30 Seltjarnarnes: Grótta – FH................. 19.30 KÖRFUKNATTLEIKUR Úrvalsdeild karla, Subway-deildin: Þorlákshöfn: Þór Þ. – Breiðablik ........ 18.15 Meistaravellir: KR – Grindavík .......... 19.15 Skógarsel: ÍR – Njarðvík..................... 19.15 Hlíðarendi: Valur – Stjarnan............... 20.15 Úrvalsdeild kvenna, Subway-deildin: Hlíðarendi: Valur – ÍR .............................. 18 Í KVÖLD! Knattspyrnuþjálfarinn Sigurður Heiðar Höskuldsson hættir þjálfun karlaliðs Leiknis eftir tímabilið og gengur í raðir Vals, þar sem hann verður í þjálfarateymi Arnars Grét- arssonar hjá karlaliði félagsins. Fótbolti.net greindi frá þessu í gær- kvöld. Arnar Grétarsson yfirgaf KA á dögunum og verður hann að öllum líkindum næsti þjálfari Vals og mun Sigurður Heiðar þá vera honum til halds og trausts. Sig- urður hefur þjálfað Leikni í þrjú og hálft tímabil en liðið er í harðri fall- baráttu í Bestu deildinni. Sigurður á leið til Valsmanna Morgunblaðið/Eggert Valur Sigurður Heiðar Höskuldsson hættir hjá Leikni eftir tímabilið. Pavel Ermolinskij landsliðsmaður í körfuknattleik tilkynnti í gærmorg- un að hann hefði ákveðið að leggja skóna á hilluna. Pavel, sem er 35 ára, var meistaraflokksmaður frá 14 ára aldri hjá Skallagrími og lék síð- an með ÍR, KR og Val hér á landi og sem atvinnumaður í Frakklandi, Á Spáni og í Svíþjóð. Pavel var lykil- maður í sigursælu liði KR þar sem hann varð sjö sinnum Íslandsmeist- ari og bætti við áttunda titlinum með Val síðasta vetur. Pavel lék 74 lands- leiki fyrir Íslands hönd og var í lið- inu sem lék á EM 2015 og 2017. Áttfaldur meist- ari er hættur Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Meistari Pavel Ermolinskij þekkir Íslandsbikarinn betur en flestir. KÖRFUBOLTINN Gunnar Egill Daníelsson gunnaregill@mbl.is Karlaliði Keflavíkur í körfuknattleik er spáð góðu gengi á komandi tíma- bili. Á kynningarfundi Körfuknatt- leikssambands Íslands, KKÍ, í síð- ustu viku fyrir úrvalsdeild karla, Subway-deildina, og 1. deild karla var liðinu spáð efsta sæti af félögun- um í Subway-deildinni og öðru sæti af fjölmiðlum. „Nýtt tímabil leggst rosalega vel í Keflvíkinga. Það er gaman að byrja aftur. Við erum búnir að æfa þokka- lega vel og okkur líst bara ótrúlega vel á hópinn og hvernig við erum að púsla þessu saman,“ sagði Hjalti Þór Vilhjálmsson, þjálfari Keflavíkur, í samtali við Morgunblaðið um tíma- bilið sem framundan er. „Nýju strákarnir passa mjög vel inn. Svo erum við með hóp sem er búinn að vera saman nánast í þrjú ár þannig að við þekkjumst vel. Hóp- urinn er fljótur að grípa það sem ég legg upp með og leikmennirnir eru mjög fljótir að bregðast við, sem er mjög jákvætt,“ bætti hann við. Reiknaði með jákvæðri spá Aðspurður sagði Hjalti Þór það ekki hafa komið sér á óvart að Kefla- vík hafi verið spáð góðu gengi á tímabilinu enda séu slíkar spár í samræmi við vonir og væntingar Keflvíkinga. „Ég persónulega reiknaði með því. Ég og liðið mitt, við ætlum að gera vel í vetur og við sækjumst eft- ir öllum bikurum. Við ætlum að vinna alla leiki sem við förum í en svo kemur í ljós hvort að það gangi upp. Eins og ég benti á erum við með hóp sem hefur verið lengi saman. Svo höfum við bætt við okkur Igor [Maric], Kana [Eric Ayala, lands- liðsmanni Púertó Ríkó] og Óla [Ólafi Inga Styrmissyni],“ sagði hann. Allir þrír eru gjaldgengir fyrir fyrsta leik liðsins í deildinni annað kvöld. Þá kemur Tindastóll í heimsókn til Keflavíkur í öðrum af tveimur stórleikjum 1. umferðar. Deildin fer af stað í kvöld með fjórum leikjum, þar á meðal stórleik Íslandsmeistara Vals og bikarmeistara Stjörnunnar sem mættust einmitt í hörkuleik í Meistarakeppni KKÍ á sunnudags- kvöldið. Meiri breidd í hópnum „Svo snýr náttúrlega David Okeke aftur, þannig séð, og hann lít- ur bara ágætlega út. Þannig að við erum mjög spenntir,“ hélt Hjalti Þór áfram. Ítalinn Okeke meiddist illa á hásin á fyrri hluta síðasta tímabils eftir að hafa leikið frábærlega fyrir Keflavík fram að því og endurkoma hans því sannarlega vatn á myllu liðsins. Hjalti Þór sagði það í raun hafa komið sér á óvart hversu mikinn styrk og dýpt sé að finna innan í leikmannahópsins. „Við erum með miklu meiri breidd. Við erum búnir að ná í leik- menn og í rauninni kom það mér persónulega á óvart hversu góða breidd við höfum sýnt í þessum leikjum sem við höfum spilað á und- irbúningstímabilinu. Margir leikmenn sem voru svona á radarnum, að spila einhverjar mín- útur, þeir eru búnir að bæta helling í og þeir leikmenn sem komu inn eru eiginlega betri en ég þorði að vona.“ Ekkert rosalega langt frá bikar Á síðasta tímabili hafnaði Keflavík í 5. sæti í deildinni, féll úr keppni í oddaleik gegn Tindastóli í 8-liða úr- slitum úrslitakeppninnar og féll naumlega úr leik í undanúrslitum bikarkeppninnar gegn tilvonandi bikarmeisturum Stjörnunnar. Hann sagði síðasta tímabil hafa verið vonbrigði að því leyti að liðinu hafi ekki tekist ætlunarverk sitt, sem var að vinna til bikars. „Já að því leyti, við náttúrlega náðum ekki í bikara en við vorum ekkert rosalega langt frá því. Við vorum ekkert langt frá því að vinna Stjörnuna í undanúrslitum í bik- arnum og fórum í oddaleik á móti Tindastóli í úrslitakeppninni. Við áttum að vinna, fannst mér, þriðja leikinn þar þegar við fórum í framlengingu og vorum klaufar að tapa því. Við vorum því í rauninni ekkert rosalega langt frá því að fara þangað sem við vildum en jú, það voru vissu- lega vonbrigði að ná ekki í bikar. Við ætlum okkur að ná því í vetur,“ sagði Hjalti Þór við Morgunblaðið. Munum sækjast eftir öllum bikurum í vetur - Keflavík spáð góðu gengi - Sterkur leikmannahópurinn verið lengi saman Ljósmynd/Jóhann Helgi Sigmarsson Toppslagur Hjalti Þór Vilhjálmsson fylgist með baráttu Dominykas Milka og Javon Bess í leik Tindastóls og Keflavíkur í úrslitakeppninni í vor. Íslandsmeistarar Njarðvíkur höfðu betur gegn deildarmeisturum Fjölnis í Subway-deild kvenna í körfubolta í Grafarvoginum í gær- kvöldi, 95:84. Njarðvík var með forskotið nán- ast allan leikinn og var sigurinn verðskuldaður. Eins og oft áður voru erlendir leikmenn liðsins í aðalhlutverkum, því Aliyah Collier skoraði 27 stig, Lavina Silva gerði 19 og Raquel Laniero skoraði 15. Taylor Jones var stigahæst hjá Fjölni með 30 stig. Deildarmeist- ararnir eru aðeins með einn sigur í fyrstu þremur umferðunum. Breiðablik vann sinn fyrsta sigur í deildinni á leiktíðinni er liðið sótti Grindavík heim og fagnaði 77:65- sigri. Grindavík var með tveggja stiga forskot í hálfleik en Breiða- blik var sterkari aðilinn í seinni hálfleik. Sanja Orazovic fór á kost- um fyrir Breiðablik, skoraði 32 stig og tók 10 fráköst. Danielle Ro- dríguez skoraði 16 fyrir Grindavík. Leik Keflavíkur og Hauka var ekki lokið þegar blaðið fór í prentun en umfjöllun um hann má nálgast á mbl.is/sport/korfubolti. Morgunblaðið / Kristinn Magnússon Meistarar Raquel Laniero hjá Íslandsmeisturum Njarðvíkur og Taylor Jon- es, leikmaður deildarmeistara Fjölnis, eigast við í Dalhúsum í Grafarvogi. Njarðvík sterkari í meistaraslag Í kvöld kemst á hreint hvort ís- lenska kvenna- landsliðið í knatt- spyrnu fer til Portúgals eða Belgíu til að spila úrslitaleikinn um sæti á HM 2023 næsta þriðjudag. Viðureign Portú- gals og Belgíu hefst í klukkan 17 í Vizela í norður- hluta Portúgal. Íslenska liðið dvelur við æfingar í Algarve á suðurströnd Portúgals og mun á sunnudaginn fljúga á leikstað, annað hvort til Pace de Ferreira í norðurhluta landsins, þar sem leikur gegn Portúgal færi fram, eða þá til Belgíu. Þorsteinn Halldórsson landsliðs- þjálfari sagði við KSÍ TV í gær að Davíð Snorri Jónasson þjálfari 21- árs landsliðs karla yrði á leiknum í Vizela í kvöld. „Hann kemur beint yfir til okkar og leikgreinir leikinn og við förum svo yfir það á föstu- dagskvöld með leikmönnum,“ sagði Þorsteinn. Mótherji Ís- lands kemur í ljós í kvöld Þorsteinn Halldórsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.