Morgunblaðið - 06.10.2022, Page 58

Morgunblaðið - 06.10.2022, Page 58
58 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. OKTÓBER 2022 Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is Tónlistarhátíðin Extreme Chill Festival hefst í miðborginni í dag og stendur yfir til 9. október. Verð- ur raftónlist í öndvegi en þó víðar komið við í hinum ýmsu greinum tónlistar. Hátíðin var fyrst haldin árið 2009 á Hellissandi af feðgunum Pan og Óskari Thorarensen sem saman skipa rafsveitina Stereo Hypnosis ásamt Þorkeli Atlasyni tón- skáldi og hefur umfang hennar aukist með ári hverju. Að þessu sinni fara tónleikar fram í Tjarnarbíói, Húrra, Fríkirkjunni í Reykjavík, Sirkus, Space Odyssey, Miðgarði og Húsi Máls og menningar. Tugir listamanna koma fram, allt frá til- raunakenndum til klassískra og má af nokkrum nefna Fennesz, KMRU, Meitei, Mariu W Horn, Klöru Lewis, Mixmaster Morris, Christopher Chaplin, Sóleyju og Eraldo Bernocchi en dagskrána alla og upplýsingar um flytjendur má finna á extremechill.org. Væn dagskrá í Tjarnarbíói Blaðamaður sló á þráðinn til Pans í fyrradag og spurði hvort allt væri tilbúið fyrir hátíðarhöldin. „Já, já, þannig séð, maður er náttúrlega aldrei 100% klár, finnst alltaf þurfa að gera eitthvað. Það þarf að vera smá stress í þessu, „extreme“ stress,“ svaraði Pan kíminn. Hátíðin hefst í kvöld í Tjarnarbíói með vænni dagskrá þar sem fram koma Jónas Sen, Rúnar Magnús- son, Aristokrasía (Úlfur Eldjárn), Klara Lewis og Sóley Stefánsdóttir með verkefnið Harmonik. „Það er rosa „line-up“ á opnunarkvöldinu og á föstudaginn verðum við á Sirk- us með prógramm og á Húrra um kvöldið. Á laugardeginum verðum við með smá djassstemningu í Mið- garði á Center Hotel, á móti Lucky Records,“ nefnir Pan og kl. 18 á laugardag verður dagskrá í Húsi Máls og menningar. Þess má geta að frítt er inn á nokkra tónleika á hátíðinni, eins og sjá má á vefsíðu hennar. Ekki má svo gleyma tón- leikum í Fríkirkjunni í Reykjavík og Space Odyssey við Skólavörðu- stíg þar sem goðsögnin Mixmaster Morris mun troða upp. Alls konar tilraunir Tónlistinni á hátíðinni hefur jafn- an verið lýst sem tilraunakenndri raftónlist en Pan segir að með árunum hafi hátíðin þróast frá því að vera hrein raftónlistarhátíð yfir í meiri fjölbreytni. „Þetta er bara alls konar stöff sem fólk er að gera tilraunir með, Sóley er t.d. með harmonikkuverkefni,“ segir Pan. Hann segist sjálfur móta hátíðina og dagskrána og því þýði lítið að sækja um að koma fram á henni. Pan á í góðu samstarfi við sambæri- legar hátíðir á Norðurlöndunum og hafa tónlistarmenn farið á milli þeirra og komið fram. „Þetta er mjög sniðugt verkefni,“ segir hann um það samstarf og að samskiptin séu mikil og góð. Þá hafi mikill fjöldi verkefna spunnist út frá fyrri Extreme Chill-hátíðum þar sem tónlistarmenn komi saman og kynnist. Slík tengslamyndun sé dýrmæt. Pan er spurður að því hvaða tón- listarmenn erlendir séu hvað þekkt- astir af þeim sem koma fram á há- tíðinni í ár og segist hann almennt reyna að velja tónlistarmenn sem séu á uppleið en vissulega séu mjög þekkt nöfn á lista flytjenda. „Til dæmis Fennesz, ástralski gítarleik- arinn, hann er algjört legend og breytti svolítið rafmúsíkinni á sín- um tíma með gítarpælingunum sín- um,“ segir Pan. KMRU sé líka einn af hans uppáhaldstónlistarmönnum en hann er frá Nairobi í Keníu. „Hann er rosalega áhugaverður gæi,“ segir Pan og spáir KMRU frægð og frama. Pan nefnir einnig Japanann Meitei sem hann segir geggjaðan tónlistarmann, hina sænsku Mariu W Horn og landa hennar Klöru Lewis. Og þannig mætti áfram telja. Þá mætir yngsti sonur Charlie Chaplin, Christoph- er, sem er tónskáld og tilrauna- tónlistarmaður og glettilega líkur föður sínum. Fólk seint til eftir Covid Pan er spurður út í aðsókn og segir hann aðsókn að tónlistar- hátíðum almennt hafa dregist nokk- uð saman með og í kjölfar Covid- faraldursins. „Eftir Covid er bara eins og fólk sé búið að venjast því að vera heima,“ segir hann og blaðamaður nefnir að hann hefði haldið að það yrði einmitt öfugt, að fólk myndi streyma á hátíðir þegar það væri aftur leyfilegt. „Það er það sem allir héldu en það er eins og þetta sé að taka lengri tíma en fólk bjóst við,“ segir Pan. Hann óttast þó ekki dræma aðsókn að Extreme Chill, segir að fólk muni mæta en Íslendingar séu alltaf frekar seinir til þegar komi að miðakaupum. Pan segir þetta líklega bara taka lengri tíma en búist var við, þ.e. að fólk fari að mæta aftur á hátíðir og tón- leika. Fólk virðist líka lengi að ákveða hvort eigi að fara eða ekki. „Ég ákvað einn daginn að hætta að stressa mig á hlutum sem maður getur voða lítið gert í. Ég er búinn að klára alla vinnu og verð bara að treysta því að fólk komi,“ segir Pan hinn rólegasti. Mætingin hafi verið góð í fyrra og nú megi líka djamma fram að morgunmat. Hátíðin er ástríðuverkefni hjá Pan og segist hann orðinn ríkur af samböndum. „Á meðan maður finn- ur fyrir ástríðunni er þetta gaman,“ segir hann að endingu. Miða á hátíðina, dagsmiða eða hátíðar- passa, má nálgast í Space Odyssey, Skólavörðustíg 22b, eða á tix.is. Á hátíð Joseph Kamaru, sem gengur undir listamannsnafninu KMRU, og Maria W Horn eru meðal þeirra sem koma fram á hátíðinni Extreme Chill. bbbb Pan Thorarensen „Á meðan maður finnur fyrir ástríðunni er þetta gaman“ - Tónlistarhátíðin Extreme Chill hefst í dag - Mikill fjöldi tónlistarmanna, innlendra sem erlendra Hin árlega A! Gjörningahátíð fer fram á Akureyri næstu daga og hefst í kvöld, fimmtudagskvöld, með tveimur gjörningum. Í Listasafninu á Akureyri verður Rösk með gjörn- ing kl. 20 og kl. 21 verður Áki Sebastian Frostason með gjörning í Hlöðunni í Litla-Garði. A! er fjögurra daga alþjóðleg gjörningahátíð sem er nú haldin í áttunda sinn og er þetta eina hátíðin á Íslandi sem snýst einungis um gjörningalist. Ókeypis er inn á alla viðburði. 22 alþjóðlegir listamenn taka þátt að þessu sinni og koma frá Króatíu, Rússlandi, Bandaríkjunum, Póllandi og Íslandi. Dómnefnd valdi verk úr hópi margra ólíkra listamanna og eru gjörningar af öllum toga á dag- skránni: myndlist, sviðslist, tónlist og ritlist. Í tilkynningu segir að þátt- takendur séu ungir og upprennandi listamenn, ásamt reyndum og vel þekktum gjörningalistamönnum. Að þessu sinni fara gjörningarnir fram í Listasafninu á Akureyri, Hlöðunni í Litla-Garði, Deiglunni, Kaktus, Eyjafjarðarsveit og á Ketil- kaffi. Þátttakendur eru meðal annars Dýrfinna Benita Basalan, Kaktus, Katrin Hahner, Olya Kroyter, Rashelle Reyneveld, Tricycle Trauma, og Örn Alexander Ámundason. Á morgun, föstudag, verða við- burðir í Ketilkaffi og Kaktus kl. 20 og 21. Á laugardag er fyrsti við- burður kl. 14 í einkasafninu og sá síðasti kl. 22 í Listasafninu. Gjörningahátíðin er samvinnu- verkefni margra menningarstofn- ana og skóla á Akureyri auk Kynningarmiðstöðvar íslenskrar myndlistar. Gjörningur Frá gjörningi þekktrar listakonu, Olyu Kroyter, sem starfar nú hér á landi. A! Gjörningahátíðin hefst á Akureyri Strandgötu 24 | 220 Hafnarfjörður | Sími 565 4100 | nyform.is N Ý F O R M H Ú S G A G N A V E R S L U N Mikið úrval af HVÍLDARSTÓLUM með og án rafmagns lyftibúnaði ELITE stólalínan 3 gerðir: Wiliam, Alex, Charles, 3 möguleikar: Rafdrifinn, manual eða með skammeli. 3 litir Cognac, dökk brúnt, svart, albólstraður með anelin leðri. Komið og skoðið úrvalið Hækkanlegur rafdrifinn tóll með innb. skammel. vörtu leðri og gráu tauáklæði.Til í s LIVER Hækkanlegur rafdrifinn hvíldarstóll, 2 mótorar, með innb. skammel. Til í svörtu leðri og gráu tauáklæði. Konukvöld á Strandgötu - Opið til kl. 21 í kvöld

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.