Morgunblaðið - 31.12.2022, Page 16
FRÉTTIR
Innlent16
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 31. DESEMBER 2022
E60
Íslensk hönnun og framleiðsla frá 1960
Mikið úrval lita bæði á
áklæði og grind.
Sérsmíðum allt eftir
pöntunum.
Stóll E60 orginal kr. 44.100
Retro borð 90 cm kr. 156.200
(eins og á mynd)
Sólóhúsgögn ehf. Gylfaf löt 16-18 112 Reykjavík 553-5200 solohusgogn. is
„Tímamótin eru stór þótt ekki
standi nú til að minnast þeirra í
nokkru,“ segir Björn G. Björnsson.
Að kvöldi nýársdags eru liðin rétt
60 ár frá því Savanna tríóið kom
fram í fyrsta sinn á Grillinu á Hótel
Sögu sem þá var nýlega opnað.
Þetta var á því herrans ári 1963.
Þarna kom tríóið fram með fullæfða
skemmtidagskrá og skemmti gest-
um á Grillinu og á tveimur öðrum
stöðum í borginni þetta kvöld. Segja
má að þarna hafi tónninn verið gef-
inn, því með þessu hófst ferill sem
stóð í fimm ár með söng um allt
land, hljómplötum, sjónvarpsþátt-
um og skemmtunum innanlands og
utan. Vinsældirnar voru komnar.
Þjóðlög og kúrekatónlist
Savanna tríóið skipuðu auk
Björns þeir Troels Bendtsen og
Þórir Baldursson. Saman störfuðu
þeir til ársins 1967 að leiðir skildi.
Þá var Björn farinn að starfa við
leikmyndagerð á Sjónvarpinu sem
þá var nýlega stofnað. Troels,
sem lengi var kennari, stofnaði
tríóið Þrjú á palli en fór síðan út í
viðskiptalífið með eigið fyrirtæki.
Þórir menntaði sig í tónlist og varð
þekktur tónlistarmaður.
Einkum flutti Savanna tríóið
þjóðlaga- og kúrekatónlist en
fyrirmyndin var meðal annars
Kingston-tríóið bandaríska. Lög í
þeim stílnum byrjuðu félagarnir að
syngja og spila á námsárum sínum í
MR og Verzlunarskólanum.
Mörkuðu skil í
tónlist og menningu
Síðastliðið vor færðu þeir Björn,
Troels og Þórir Tónlistarsafni
Íslands, sem er deild innan Lands-
bókasafnsins í Þjóðarbókhlöðunni,
ýmis gögn frá Savannaferli sínum.
Í þeim pakka voru minnisbæk-
ur, nótur og úrklippu-, bréfa- og
myndasafn. Einnig langspil sem
tilheyrði tríóinu og stundum var
leikið á. Munirnir eru því komnir
á góðan stað og sögunni þar með
haldið til haga. Slíkt skiptir máli því
Savanna tríóið, sem nefnt er eftir
hinu víðfeðma gróðurbelti í Afríku,
markaði skil í íslenskri tónlist og
menningu á marga lund.
„Nei, við höfum mjög sjaldan frá
því Savanna tríóið hætti árið 1967
komið saman opinberlega. Slíkt
gerðum við síðasta árið 2009 á
Jólagestum Björgvins. Og þótt við
stöndum á tímamótum nú, það er
að sextíu ár eru liðin frá því við
stigum fyrst saman á svið, er endur-
koma ekkert inni í myndinni. Við
erum löngu dottnir úr allri æfingu
í tónlistinni og lifum bara á góðum
minningum frá þessum tíma. Þó
er eftirtektarvert að lögin sem við
sungum lifa enn meðal Íslendinga
og sumir virðast jafnvel halda að við
séum enn starfandi. Að lifa þannig
í minni fólks er ansi gott,“ segir
Björn.
lSaga frá nýárskvöldi árið 1963lSavanna sönglKingston var fyrirmyndlEru
úræfingu og endurkoma ekki á dagskrálNutumikilla vinsælda og lögin lifa enn
Sungu fyrst fyrir sextíu árum
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Söngur Þjóðlög og kántrítónlist voru áberandi á efnisskrá Savanna. Hér eru félagarnir á upphafsdögum sínum
með söng og spil. Frá vinstri Björn G. Björnsson, Troels Bendtsen og Þórir Baldursson.
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Félagar Savanna í Þjóðarbókhlöðunni síðastliðið vor þegar þeir afhentu
Tónlistarsafni Íslands gögn og muni ýmiss konar frá ferli sínum.
Framfarasjóður Samtaka iðnað-
arins hefur veitt þremur verk-
efnum styrki samtals að upphæð
14,4 milljónir króna. Við val á
verkefnunum var horft til þess að
þau efldu menntun í iðn-, verk- og
tækninámi, að um væri að ræða
nýsköpun sem styrkti framþróun
í iðnaði og að þau leiddu til fram-
leiðniaukningar.
Verkefnin sem hljóta styrki
úr Framfarasjóðinum eru Félag
blikksmiðjueigenda, sem fær
5 milljónir. Félag ráðgjafa-
verkfræðinga og Samtök arki-
tektastofa fá einnig 5 milljónir
og Samtök skipaiðnaðarins fá 4,4
milljónir króna.
Samtök iðnaðarins segja val á
þessum verkefnum endurspegla
áherslur samtakanna. Sjóðurinn
var stofnaður árið 2016 í þeim
tilgangi að skapa farveg til að
styðja við og þróa framfaramál
tengd iðnaði. Sjóðnum bárust níu
umsóknir að þessu sinni.
lÆtlað að efla iðnnámognýsköpun
Framfarasjóður
með þrjá styrki
Ljósmynd/BIG
Framfarir Fulltrúar styrkþega og Samtaka iðnaðarins við afhendinguna.
Sullivan fékk land-
könnunarverðlaun
Geimfarinn
Kathy Sullivan
hlaut land-
könnunar-
verðlaun Leifs
Eiríkssonar í
ár, en þau voru
veitt á Húsavík
í vikunni.
Könnunar-
safnið á
Húsavík veitir
verðlaunin, sem nú var gert í
sjötta sinn. Tiilefnið er að sýna
sóma þeim sem unnið hafa afrek í
landkönnun og vísindastarfi.
Kathy Sullivan á að baki þrjú
geimflug og hefur ferðast 356
sinnum umhverfis jörðina. Var í
áhöfn geimskutlurnar Discovery
sem komHubble-sjónaukanum
á braut um jörðu árið 1990. Þá
setti geimskutlan hæðarmet er
hún flaug í 621 kílómetra hæð yfir
jörðu. Árið 2020 varð Sullivan
fyrst kvenna til að kafa niður í
Challenger-dýpið í Maríanadjúp-
ál, dýpsta parti hafsins, sem er
um 11 km undir sjávarmáli.
Árið 2013 skipaði Barack
Obama forseti Sullivan forstjóra
NOAA, hafrannsókna- og lofts-
lagsstofnunar Bandaríkjanna.
Kathy Sullivan
Borholuhús brann
í Mosfellssveit
Borholu-
hús Veitna
í Mosfells-
sveit brann í
fyrrinótt með
þeim afleiðing-
um að stór og
öflug borhola
datt úr rekstri
tímabundið.
Í gær lá ekki
fyrir hvað olli
brunanum.
Borholan, sem ber heitið
MG-29, er staðsett í Reykjahlíð
í Mosfellssveit og er ein af tólf
borholum Veitna á svæðinu. Um
er að ræða stóra og öfluga bor-
holu sem skilar um 300 m3 af 93
gráðu heitu vatni á klukkustund.
Bruninn varð til þess að íbúar
í sumum hverfum fundi fyrir
þrýstingsfalli á heitu vatni.
Borholuhús Veitna
sem brann.