Morgunblaðið - 31.12.2022, Blaðsíða 48
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 31. DESEMBER 2022
DÆGRADVÖL48
Stjörnuspá
Árnað heilla
70 ára og
50 ára
Elín Einarsdóttir og
tengdasonur hennar,Óttarr
Hlíðar Jónsson, eiga bæði
stórafmæli í dag. Elín er 70
ára og Óttarr er 50 ára.
Demantsbrúðkaup
Hjónin Kristín Guðmunds-
dóttir og Sigurður Þráinn
Kárason eiga 60 ára brúð-
kaupsafmæli í dag. Sr. Jón
Auðuns gaf þau saman í
Dómkirkjunni á gamlársdag,
þann 31. desember 1962.
Þau eiga þrjár dætur og þrjá
tengdasyni, sjö barnabörn
og eitt barnabarnabarn.
21. mars - 19. apríl A
Hrútur Þér er það óvænt ánægja hvað þú
uppskerð fljótt árangur erfiðis þíns. Taktu
þig til og hentu að minnsta kosti fimm
hlutum sem þú þarfnast alls ekki lengur.
20. apríl - 20. maí B
Naut Þótt þú hafir í mörg horn að líta
máttu ekki gleyma vinum þínum. Sköp-
unargleðin gerir þér fært að feta ótroðnar
slóðir.
21. maí - 20. júní C
Tvíburar Komdu þér í rétta gírinn, því þú
munt brátt koma á áhrifaríkum sambönd-
um sem hækka kaupið. Láttu þínar eigin
þarfir njóta forgangs.
21. júní - 22. júlí D
Krabbi Hugur þinn starfar vel í dag og
þú heldur einbeitingunni þar til þú hefur
gengið frá öllum lausum endum. .
23. júlí - 22. ágúst E
Ljón Þér hefur tekist bærilega til á árinu
og ert fullfær um að stjórna þínum málum
áfram. Lærðu af reynslunni og hafðu hana
að leiðarljósi framvegis.
23. ágúst - 22. september F
Meyja Leitaðu réttar þíns og farðu fram
á það sem þú átt skilið. Að hitta nýtt fólk
laðar það besta fram í þér.
23. september - 22. október G
Vog Þú kemst ekki hjá því að hagræða í lífi
þínu á næstunni. Ef þú færð tækifæri til að
taka stjórnina í einhverju máli, gríptu þá
tækifærið.
23. október - 21. nóvember H
Sporðdreki Nú er sá tími að þú þarft að
láta vinnuna ganga fyrir öðru svo þú náir
að ljúka við þau verkefni sem fyrir liggja.
Gefðu þér tíma til þess að slaka á og allt
verður í lagi.
22. nóvember - 21. desember I
Bogmaður Ekki lofa foreldrum þínum eða
yfirmönnum meiru en þú getur staðið við í
dag. Hvort heldur það er á þínu áhugasviði
eða annars staðar.
22. desember - 19. janúar J
Steingeit Þú finnur fyrir gremju því
foreldrar, kennarar, yfirmenn og fyrirmenni
af einhverju tagi leggja stein í götu þína.
Skoðaðu málið vandlega svo þú hafir það
á hreinu.
20. janúar - 18. febrúar K
Vatnsberi Þegar þú hefur enn ekki komist
yfir það sem þú óskar þér, skaltu herða upp
hugann. Sérviska þín er mjög svo aðlaðandi
fyrir þá sem geta samsamað sig henni og
skilið.
19. febrúar - 20. mars L
Fiskar Ertu enn að bíða eftir því að yfir-
maðurinn taki eftir því hvað þú leggur mikið
á þig? Láttu allar áhyggjur lönd og leið.
Margrét Schram leikskólakennari – 90 ára
Brautryðjandi í barnamenningu
M
argrét Schram er
fædd 31. desember
1932 á Akureyri og
ólst upp í gömlu
símstöðinni þar,
dóttir símstjórahjónanna. Símstöð-
in var þá í Hafnarstræti, sambyggð
pósthúsinu, neðan við Sigurhæðir.
„Þá var gatan alveg við sjóinn og
við krakkarnir lékum okkur mikið í
fjörunni og skautuðum á Pollinum.
Ég man þegar ég var tíu ára að 17
ára stúlka sem vann á símstöðinni
ákvað að synda yfir Eyjafjörðinn
og mér var boðið með í bátinn sem
fylgdi henni. Það var mikið ævin-
týri, henni tókst þetta og var tekið
vel á móti henni á bryggjunni.
Við stunduðum líka skíði. Ekki
var búið að byggja upp skíðasvæðið,
en þá gengum við bara upp í fjall og
skíðuðum svo alla leiðina heim.“
Þegar Margrét var ung fékk
Jónína móðir hennar berkla og
voru Margrét og Gunnar bróðir
hennar send suður til Reykjavíkur
og dvöldu hjá ættingjum í nokkra
mánuði meðan móðir þeirra var á
Kristneshæli. Margrét var á Lauf-
ásveginum hjá móðursystur sinni,
Kristínu Jónsdóttur myndlistar-
manni og eiginmanni hennar, Valtý
Stefánssyni, ritstjóra Morgun-
blaðsins, en Gunnar hjá móðurfor-
eldrum þeirra á Stýrimannastíg.
„Svo kom mamma til baka með
eitt lunga og það gekk nú bara vel
hjá henni eftir það, en fyrst eftir
heimkomuna mátti hún ekki faðma
okkur vegna smithættu.“
Margrét hóf langan fóstruferil
sinn í leikskólanum Pálmholti á
Akureyri og útskrifaðist frá Fóstru-
skóla Sumargjafar árið 1953. „Ég
var strax staðráðin í því að verða
fóstra.“ Hún varð síðan stúdent frá
Menntaskólanum á Laugarvatni
árið 1956.
Hún kynnti sér leikskólastarf í
Kaupmannahöfn veturinn 1957-
58 og hitti þar eiginmann sinn,
verkfræðinemann Helga Hallgríms-
son, á Íslendingastaðnum fræga,
Nellunni. „Ég kynnti mér ýmsa
leikskóla í Kaupmannahöfn, fór víða
um og reyndi að bera áhrifin með
mér heim. Seinna þegar við vorum
komin með tvö börn dvöldum við
einnig veturlangt í Kaupmannahöfn
meðan Helgi lauk frekara námi.“
Þegar börnin stálpuðust fór
Margrét aftur að vinna á leikskól-
um, m.a. í Steinahlíð, á Grænuborg
og Álftaborg. Þá lauk hún kennara-
námi frá Fósturskóla Íslands 1975
og starfaði lungann af starfsævi
sinni við kennslu barnabókmennta
við sama skóla. „Þá var ekki mikið
úrval af barnabókum, sérstaklega
ekki fyrir yngstu börnin, en það
átti eftir að breytast.“ Hún hlaut
viðurkenningu Vorvinda fyrir 25 ára
kennsluferil árið 2001.
Margrét var lengi í stjórn IBBY,
alþjóðlegra samtaka um börn og
bækur, og starfaði einnig í Íslands-
deild Delta Kappa Gamma, sem og
með Inner Wheel samtökunum.
Áhugamál Margrétar Schram
hafa löngum tengst börnum og
barnamenningu, þá aðallega
barnabókum. Það hefur skilað sér
til barna hennar, en tveir synir
hennar eru rithöfundar og einn er
bókaútgefandi. Margrét stundaði
einnig skíði af miklu kappi ásamt
fjölskyldu sinni, og tók á sínum tíma
virkan þátt í uppbyggingu ÍR-svæð-
isins í Hamragili. „Við sem tókum
þátt í þessari uppbyggingu höfum
haldið hópinn síðan, farið bæði í
skíðaferðir og golfferðir erlendis.“
Margrét er vel ern, er dugleg að
hitta fólk og les enn þá. „Ég er þó
ekki mikið að lesa barnabækur, en
les alls konar bækur. Þetta er búið
að vera bara mjög fínt líf.“
Fjölskyldan F.v.: Ásmundur Helgason, Fanney Rut Elínardóttir, Elín G. Ragnarsdóttir, Ragnar Ingi Indíönuson, Nína
Helgadóttir, Hallgrímur Helgason, Þorgerður Agla Magnúsdóttir, Málfríður Jóhanna Ögludóttir Hallgrímsdóttir,
Margrét Schram, Óli Gunnar Gunnarsson, Gunnar Helgason og Björk Jakobsdóttir á ættarmóti sumarið 2022.
Í Fósturskólanum Margrét leikur á
píanó og syngur ásamt nemendum
á Fríkirkjuvegi 11, árið 1964.
Akureyri 1958 Nýgift Helga Hall-
grímssyni, brúarverkfræðingi.