Morgunblaðið - 31.12.2022, Page 20
FRÉTTIR
Innlent20
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 31. DESEMBER 2022
Hinn 24. nóvember síðastliðinn var
afhjúpaður á Teigarhorni í Berufirði
viðurkenningarskjöldur frá Alþjóða-
veðurfræðistofnuninni fyrir yfir 100
ára samfelldar veðurathuganir á
staðnum. Teigarhorn rataði í sögu-
bækurnar sumarið 1939, þegar þar
mældist hæsti hiti sem mælst hefur
á Íslandi, 30,5 stig.
Í raun hafa veðurathuganir átt
sér stað í Berufirðinum lengur,
eða samfleytt í 150 ár. Í nóvem-
ber 1872 hófust veðurathuganir á
Djúpavogi, mælingar voru fluttar
að Teigarhorni árið 1881 og hafa
verið þar allt fram á þennan dag.
Þetta kemur fram á vef Veðurstofu
Íslands. Einungis er ein önnur veð-
urstöð á landinu sem hefur fengið
slíka veðurkenningu frá stofnuninni,
veðurstöðin í Stykkishólmi. Þar hafa
verið gerðar samfelldar mælingar
frá árinu 1845.
Í fyrstu var það Níels Pétur
Weywadt sem sá um veðurathug-
anir á Teigarhorni og dóttir hans
Nicoline Waywadt tók svo við mæl-
ingunum eftir hans daga og sá um
þær til ársins 1921. Næstu 75 árin
voru það feðgarnir Jón Kr. Lúðvíks-
son og Kristján Jónsson sem sinntu
athugunum. Og síðastur var Herbert
Hjörleifsson, sem gerði athuganir
á árunum 1995 til 2009. Nú hefur
tæknin að mestu leyst mannsins
hönd af hólmi í veðurathugunum.
Sjálfvirk veðurstöð var sett upp á
Teigarhorni árið 2009 sem mælir
hita, vind og lofþrýsting. Og nú í nóv-
ember var sjálfvirkur úrkomumælir
settur upp á Teigarhorni.
Boðið var til hádegisfundar í
tilefni af áfanganum á Fólkvangi
Teigarhorns. Kristín Björg Ólafs-
dóttir, sérfræðingur á sviði veður-
farsrannsókna á Veðurstofunni,
flutti þar erindi og fór m.a. yfir mik-
ilvægi viðurkenningarinnar og hvers
vegna Alþjóðaveðurfræðistofnun-
in telur ástæðu til að verðlauna
slíkar mælingar. „Með slíku er
undirstrikað mikilvægi langra og
samfelldra veðurathugana á völdum
veðurstöðvum en langar, samfelldar
mælingar eru raunveruleg vísinda-
og menningarleg verðmæti fyrir
samfélagið. Öflun og varðveisla
slíkra upplýsinga tryggir þekkingu
núlifandi og komandi kynslóða um
veðráttu og loftslagsbreytingar fyrr
og nú. Fyrir utan auðvitað að slíkar
upplýsingar eru uppistaðan í veð-
urspám og loftslagsvísindum öllum.
Það eru þær sem setja núverandi
loftslagsbreytingar í samhengi og
eru forsenda árangursríkra aðgerða
á því sviði,“ sagði Kristín m.a.
Hitametið er 30,5 stig
Hæsti hiti sem mælst hefur á Ís-
landi mældist á Teigarhorni hinn 22.
júní 1939 þegar tilkynnt var um 30,3
stiga hita. Jón Kr. Lúðvíksson las
af mælinum þann dag og skrifaði eft-
irfarandi færslu með: „22. þ.m. steig
hiti hátt eins og skýrsla sýnir. Var
vel að gætt að sól náði ekki að hita
mælira. Tel ég því hita rjétt mælda.“
Þegar hámarksmælir var tekinn í
notkun sýndi hann of lágan hita um
0,2 stig og var hámarkið því hækkað.
Hitametið stendur því enn þann dag
í dag, 30,5 stig.
Viðurkenning fyrir veðurmælingar
Ljósmynd/Flosi Hrafn Sigurðsson
Teigarhorn Leifur Steinarsson, starfsmaður Veðurstofu Íslands, málar úrkomumælinn í júlímánuði árið 1968.
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
lTeigarhorn
í Berufirði er
sögufræg stöð
Árið 2022 er við það að líða í
aldanna skaut með allar sínar
minningar. Samfélagið okkar við
botn Húnafjarðar hefur gengið í
gegnum sætt og súrt, atburði sem
engan hefði órað fyrir í upphafi árs.
Hinir hörmulegu atburðir sem áttu
sér stað í sumar, þegar tveir létu lífið
í skotárás og einn særðist alvarlega,
lita minninguna sterkum litum hvort
sem okkur líkar betur eða verr. Um
þennan atburð hefur mikið verið
fjallað og hann sett mark sitt á allt
samfélagið en málalok hafa ekki
enn litið dagsins ljós. Margir eiga
um sárt að binda og munu mörg
sárin seint gróa. Eitt stendur þó
upp úr þessum harmleik en það er
hin mikla samstaða og samhugur
sem samfélagið býr yfir og umvafði
þá sem um sárt áttu að binda með
kærleik og hlýju.
Árið var ár sameininga í
Austur-Húnavatnssýslu. Sameining
Húnavatnshrepps og Blönduósbæjar
í eitt sveitarfélag var samþykkt í
kosningum snemma í vetur. Sam-
einað sveitarfélag tekur yfir allt það
land sem tilheyrði sveitarfélögunum
tveimur. Hið sameinaða sveitarfélag
fékk nafnið Húnabyggð og standa
á bak við þá nafngift 69% atkvæða
þeirra sem atkvæði greiddu.
Þrátt fyrir grósku og bjartsýni
í nýju sameinuðu samfélagi, sem
býr án nokkurs vafa yfir meiri innri
styrk, nær það ekki að halda í íbúana
því þeim hefur fækkað um 17 á sl. 11
mánuðum. En það er líkt með þetta
og náttúruna almennt, að stundum
eru sólskinsstundirnar færri en í
meðalári.
Sóknarbörnin í Þingeyra-
klaustursprestakalli fengu
nýjan prest á árinu, Eddu Hlíf Hlíf-
arsdóttur. Þingeyraklausturspresta-
kall samanstendur af fimm sóknum,
Auðkúlusókn, Blönduósókn, Svína-
vatnssókn, Undirfellssókn og Þing-
eyrasókn. Íbúafjöldi í prestakallinu
er um 1.350, þar af eru 916 16 ára og
eldri í þjóðkirkjunni. Börn yngri en
16 ára eru 248. Hið forna Þingeyra-
klaustursprestakall virðist hafa ver-
ið lagt niður eftir prestkosninguna
og allar sóknir í Húnavatnssýslum
báðum sameinaðar í eitt prestakall,
Húnavatnsprestakall.
Gagnaverið Borealis Data Center
og ítalska fyrirtækið Leaf Space hafa
gert samning um hýsingu og rekstur
á búnaði fyrir gervitunglafjarskipti.
Gervihnattastöðin er staðsett við
gagnaverið á Blönduósi þar sem
allur búnaður er hýstur. Aðgengi að
grænni orku og öruggum innviðum
Borealis Data Center, ásamt ákjós-
anlegri staðsetningu á Blönduósi,
gerir Leaf Space kleift að þjónusta
stórt svæði og eiga í samskiptum
við gervitungl á norðurslóðum með
sjálfbærum og öruggum hætti.
Tveir, til þess að gera menn
á besta aldri, hafa tekið höndum
saman um að hefja gamla bæj-
arhlutann á Blönduósi til virðingar
á ný. Reynir Finndal Grétarsson
og Bjarni Gaukur Sigurðsson hafa
stofnað þróunarfélag sem ætlað er
að sjá um uppbyggingu miðbæjar
og ferðaþjónustu á Blönduósi. Þeir
eru báðir uppaldir Blönduósingar.
Félagið er búið að gera samning við
Byggðastofnun um kaup á hótelinu
í gamla bænum, sem hefur staðið
autt, og einnig hefur það fest kaup á
tveimur eignum til viðbótar í gamla
bænum. Þessum áformum fagna
íbúar af heilum hug og sjá fram á
betri daga í gamla bæjarhlutanum
þar sem Skáksambandið var stofnað
á sínum tíma.
Sameining sveitarfélaganna
tveggja hefur ruglað nokkra í ríminu
hvað heimilisfesti varðar og einhverjir
Blönduósingar eru farnir að þoka
Blönduóssnafninu út af kortinu og
staðsetja sig í Húnabyggð. Í mínum
huga verð ég ávallt Jón sem skrifar frá
Blönduósi og hinn aldni heiðursmað-
ur og nafni minn í Hnausum verður
alltaf kenndur við þann stað, þótt
sameiginlega búum við í Húnabyggð.
Megi farsæld okkur öllum fylgja inn í
komandi ár.
Samstaða og samhugur á Blönduósi
ÚRBÆJARLÍFINU
Jón Sigurðsson
Blönduósi
Morgunblaðið/Jón Sigurðsson
Blönduós Blanda rennur í klakaböndum gegnum bæinn og bakkarnir fannhvítir og jörðin öll.
Gagnaver Framundan eru spennandi verkefni hjá Borealis gagnaverinu við hýsingu gagna fyrir gervitungl.