Morgunblaðið - 31.12.2022, Qupperneq 22
FRÉTTIR
Viðskipti | Atvinnulíf22
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 31. DESEMBER 2022
Tunguhálsi 10 | 110 Reykjavík
415 4000 | kemi.is | kemi@kemi.is
Bílavarahlutir
BOSCH
ELTAK sérhæfir sig
í sölu og þjónustu
á vogum
Bjóðum MESTA úrval
á Íslandi af smáum
og stórum vogum
31. desember 2022
Gjaldmiðill Gengi
Dollari 143.21
Sterlingspund 172.22
Kanadadalur 105.35
Dönsk króna 20.507
Norsk króna 14.455
Sænsk króna 13.667
Svissn. franki 154.98
Japanskt jen 1.0721
SDR 190.75
Evra 152.5
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 184.6057
STUTT
Sjóður frá Abú Dabí
kaupir Edition-hótelið
z Fjárfestingafé-
lagiðADQ, sem er
einn af þjóðar-
sjóðumAbú Dabí,
hefur fest kaup á
eignarhlut SÍA III,
sjóðs í stýringu
Stefnis, í Reykja-
vík Edition-hótel-
inu viðAusturhöfn
í Reykjavík. Þá
hefurADQ einnig
keypt hluti annarra hluthafa, sem eru
bæði lífeyrissjóðir og einkafjárfestar, en
hlutinn áttu þeir í gegnum eignarhalds-
félagið Mandólín hf., sem átti um 70%
hlut í hótelinu. Samkvæmt heimildum
Morgunblaðsins hafa viðræður staðið
yfir um sölu á eignarhlutnum í um hálft
annað ár. Kaupverðið er ekki gefið upp.
Carpenter & Co., sem hefur verið
meðeigandi Mandólín í verkefninu,mun
halda hlut sínum í félaginu eftir því
sem fram kemur á vef Stefnis, og engar
breytingar verða á rekstri Reykjavík Ed-
ition sem áfram verður rekið af Marriott
International. Þá kemur einnig fram að
salan sé í samræmi við þá sýn SÍA III
að hóteliðmyndi vekja áhuga erlendra
langtímafjárfesta sem sjá tækifæri í því
að taka þátt í frekari framþróun ferða-
mannaiðnaðar hér á landi.
Marriott Edition-hótelið var opnað
haustið 2021 og er eitt glæsilegasta
hótel landsins. Framkvæmdir við hótelið
tóku lengri tíma en áætlað var í upphafi,
meðal annars vegna heimsfaraldurs, og
reyndust þá að sama skapi kostnaðar-
samari.
Marriott Edition-
hótelið í Reykjavík.
Fram undan er mesti álagstími þeirra
verslana sem selja íþróttatengdar
vörur, hvort sem það er æfingabún-
aður, fatnaður eða fæðubótarefni.
Enda ófáir sem setja sér áramótaheit
eftir hátíðarhöld desembermánaðar,
setja sér markmið um breyttan lífs-
stíl og vilja taka sig á í heilsurækt.
Undanfarin misseri hafa íslenskir
smásalar og neytendur þó fundið
fyrir kreatínskorti, en efnið hefur allt
að fjórfaldast í verði á síðastliðnum
tveimur árum.
Aukin eftirspurn
Kreatín er vinsælasta fæðubótar-
efni í heimi og það mest rannsakaða
í þokkabót. Það eykur sprengikraft í
vöðvum og er einstakt að því leytinu
til að það er notað í öllum íþróttum.
„Allir sem eru í einhvers konar
átaki kaupa kreatín“, segir Svavar
Jóhannsson, eigandi FitnessSport í
samtali við Morgunblaðið. „Það er
ekkert sem kemur í staðinn fyrir
þetta.“
Gunnar Emil Eggertsson, fram-
kvæmdastjóri Hreysti, tekur í sama
streng og segir að algjör sprengja
hafi orðið í eftirspurn á efninu.
Hann bendir á að með tilkomu
vitundarvakningar um gagnsemi
kreatíns, hafi konur byrjað að nota
efnið í meira mæli en áður.
„Þú getur rétt ímyndað þér hvaða
áhrif það hefur þegar markhópurinn
skyndilega tvöfaldast,“ segir hann.
Fyrir faraldur jókst sala á kreatíni
um liðlega 5% árlega. Í apríl 2020,
snemma í kórónuveirufaraldrinum,
varð hins vegar algjör sprenging í
sölu á fæðubótarefninu og jókst salan
á heimsvísu um tæplega helming sam-
anborið við árið á undan. Sú mikla
söluaukning hefur ekki gengið til baka
síðan, og heimsmarkaðsverð fjórfald-
ast á sama tímabili.
Skortur og hamstur
Bæði fyrirtækin hafa þurft að þola
skerðingar á sínum birgðum, vegna
skorts á kreatíni. Til viðbótar við hina
stórauknu eftirspurn og sölu hefur
orðið framleiðslu- og flutningsbrestur
frá Kína. Svavar segist nú reyna að
versla meira við þýska birgja, en því
fylgi þó alltaf óvissa, nokkrar vikur
fram í tímann.
Gunnar segir að hans birgjar hafi
tekið upp á því að skammta í smásölu-
fyrirtækin mánaðarlega, og dregið
hafi úr vöruúrvali, en til dæmis komi
einingar í minni skömmtum. Hann
hafi lent í því að lagerinn tæmist í
nokkra daga og fyrir vikið er fólk farið
að skrá sig á biðlista eftir kreatíni.
„Svo rýkur þetta út um leið og
eitthvað kemur til landsins,“ bætir
Gunnar við.
Aðspurður segist hann hafa orðið
var við hamstur. Neytendur reyni að
birgja sig aðeins upp svo þeir verði
ekki uppiskroppa.
Það er ekki aðeins kreatínið sem
hefur hækkað í verði, heldur hefur
verð á mysupróteini nánast tvöfald-
ast. Hvorugur rekstrarmannanna
hefur orðið var við skort á próteininu,
en þeir taka eftir verðhækkunum. Sú
verðhækkun nær þó aðeins til mysu-
próteins, en ekki til plöntupróteins,
sem er dýrara fyrir.
zFæðubótarefni hafa hækkað töluvert í verðizSkammtað ofan í smásala
zTakmarkað framboð að utanzKonur nota kreatín í auknum mæli
Átakið dýrara enáður
Fæðubótarefni
»Heimsmarkaðsverð á krea-
tíni hefur allt að fjórfaldast á
nokkrum árum.
»Markhópurinn tvöfaldast.
»Sala hefur aukist töluvert
mikið á sama tíma og fram-
leiðsla dregst saman og leita
þarf á ný mið.
»Mysuprótein hefur einnig
hækkað mikið í verði.
Björn Leví Óskarsson
blo@mbl.is
Morgunblaðið/Þorgeir Baldursson
HeilsaÁramótaátakið verður dýrara, kjósi fólk að nýta sér fæðubótarefni til þess að ná auknum árangri.
Heilsugæslu höfuðborgarsvæð-
isins var ekki skylt að fram-
kvæma útboð vegna kaupa á
hraðprófum við Covid-19. Félag
atvinnurekenda krafðist þess
fyrir kærunefnd útboðsmála að
samningar milli heilsugæslunnar
og tveggja heildsala yrðu gerðir
óvirkir, því kaupin hefðu verið
útboðsskyld. Með vísan til ófyr-
irsjáanlegra ástæðna og neyðar-
ástands taldi kærunefndin að
heilsugæslunni hefði verið heim-
ilt að nýta undantekningarheim-
ild laga um opinber innkaup.
Ólafur Stephensen, framkvæmda-
stjóri Félags atvinnurekenda,
segir að félagið muni sennilega
una úrskurðinum, en mikilvægt
sé að láta á svona mál reyna, því
eftirliti með innkaupum hins
opinbera sé ábótavant.
Máttu kaupa
hraðpróf
Morgunblaðið/Eggert
ÚtboðHeilsugæslunni var heimilt
að ganga til samninga án útboðs.