Morgunblaðið - 31.12.2022, Síða 27
Árið í orkumálum var
sögulegt fyrir margar
sakir og ekki aðeins af
góðu. Strax í byrjun árs
fór saman ein versta
vatnsstaða í lónum
Landsvirkjunar í hátt í
50 ár, mikil sala til iðn-
aðar og tíðar bilanir í
virkjunum. Sú staða
leiddi til skerðingar á
afhendingu rafmagns til
þeirra sem keypt höfðu orku á lægra
verði og olíunotkun jókst umtalsvert.
Umræðan um olíuna var hávær, sér í
lagi í samhengi við loftslagsmark-
miðin sem stjórnvöld hafa sett sér.
Við þetta bættist veðurofsi í upphafi
árs sem olli einum mestu rafmagns-
truflunum í 30 ár þegar vetur kon-
ungur hnyklaði vöðvana, líkt og hann
gerði aftur nýlega.
Innrás Rússa í Úkraínu í febrúar
breytti svo landslagi orkumála Evr-
ópu á einni nóttu og setti umræðuna
um mikilvægi orkusjálfstæðis og
grænnar framtíðar rækilega á dag-
skrá alþjóðamála. Þessi grundvall-
arbreyting á samskiptum Rússa og
Evrópusambandsins mun að öllu
óbreyttu vara næstu árin, enda ekki
einfalt mál að snúa risavöxnu orku-
skipi álfunnar í nýja átt. Það á bæði
við þegar kemur að orkuinnflutningi
frá öðrum ríkjum en Rússlandi, en
ekki síst þegar kemur að uppbygg-
ingu grænnar orkuframleiðslu á meg-
inlandinu. ESB leggur nú allt sitt
kapp á slíkt og hvetur aðrar þjóðir til
dáða, eins og kom fram á loftslags-
ráðstefnu Sameinuðu þjóðanna
(COP27) sem fram fór fyrir skömmu.
Umhleypingar ársins höfðu áhrif
hér á landi og voru að mörgu leyti eins
konar álagspróf á lagaumgjörð orku-
málanna. Starfsfólk Orkustofnunar
hefur verið vakið og sofið yfir áskor-
unum ársins og unnið að þörfum um-
bótum innan stjórnsýslu orkumála til
að styðja við að við séum með öflug og
áfallaþolin orkukerfi með sjálfbærni
og loftslagsmarkmið stjórnvalda að
leiðarljósi. Auk þessara mikilvægu
málefna einkenndist árið af end-
urskipulagningu Orkustofnunar. Í
nýju skipulagi er stóraukin áhersla á
loftslagsmál, orkuskipti og nýsköpun,
greiningar og gagnamál, sterkari
stjórnsýslu og ráðgjöf til stjórnvalda.
Stofnunin hefur umbreyst og eflst
með sterkum mannauði og er mun
betur í stakk búin að mæta áskor-
unum nýrra tíma.
Hér á eftir getur að líta nokkur
dæmi um málefni sem voru fyrirferð-
armikil í starfsemi Orkustofnunar á
árinu.
Kalda vatnið aldrei vinsælla
Hreint og tært grunnvatn er ein
verðmætasta auðlind Íslendinga.
Mikill fjöldi leyf-
isumsókna um nýtingu
grunnvatnsauðlinda
barst til Orkustofnunar
á árinu. Meginástæða
eftirspurnarinnar er
vegna landeldis, sem er
atvinnugrein í örum
vexti. Vatnsnotkun ein-
stakra verkefna getur
verið mjög mikil, eins og
dæmin sýna í Ölfusi þar
sem fyrirætlanir um
uppbyggingu fiskeldis
og annarrar atvinnu-
starfsemi þýða notkun sem er þreföld
kaldavatnsnotkun Reykjavíkur-
borgar. Orkustofnun hefur mikilvægt
hlutverk þegar kemur að nýtingu og
eftirliti með vatnstöku. Auk þess legg-
ur stofnunin áherslu á að kaldavatns-
auðlindin sé kortlögð betur, sem og
áhrif nýtingar hennar á sjálfbærni og
gæði vatns. Þannig má tryggja að
kalda vatnið stuðli að velsæld og
áframhaldandi atvinnusköpun um
land allt til framtíðar.
Nýting jarðefna í nýju samhengi
Vinnsla jarðefna er umfangsmikil
atvinnugrein á Íslandi og á árinu var
umræðan um nýtingu þeirra til út-
flutnings áberandi. Í þeim tilfellum
þar sem nýting jarðefna fer fram á
jörðum í einkaeigu er hún ekki leyf-
isskyld hjá Orkustofnun samkvæmt
auðlindalögum. Hafa ber í huga að á
þeim tíma er lögin voru sett var mark-
miðið að tryggja heimanot bænda og
uppbyggingu innviða, s.s. vegna vega-
gerðar og húsbyggingar í landinu.
Þau voru því ekki hönnuð fyrir jafn
umfangsmikla efnistöku og nú eru
áætlanir um, s.s. stórtækan útflutning
í tengslum við tækifæri nýrra tíma.
Helsta brotalöm núverandi lagaumgj-
arðar er að enginn einn aðili hefur þá
ábyrgð að hafa yfirsýn eða eftirlit
varðandi framkvæmd efnistöku á
landi. Hér er því tækifæri til úrbóta
sem gæti jafnframt aukið traust á
greininni og tryggt ábyrga nýtingu
jarðefna til verðmætasköpunar.
Hitaveiturnar og lífsgæðin
Hitaveiturnar eru réttilega oft kall-
aðar lífæð þjóðarinnar. Orkustofnun
heldur utan um jarðhitanýtingu til
húshitunar, þjónustu og iðnaðar og
gaf út uppfærða jarðvarmaspá á
árinu. Um 70% af varmanotkuninni er
til hitunar heimila, þjónustubygginga
og fyrirtækja en 30% til iðnaðar, mat-
vælaframleiðslu, sundlauga og snjó-
bræðslu. Ásókn í heitt vatn til at-
vinnustarfsemi er sífellt að færast í
aukana. Orkustofnun og Íslenskar
orkurannsóknir (ÍSOR) vinna nú að
því að kortleggja stöðu hitaveitna á
landsvísu svo stjórnvöld geti stutt við
sjálfbæra þróun þeirra og orkuöryggi
almennings til húshitunar um langa
framtíð. Jafnframt tekur Orkustofnun
þátt í verkefni Húsnæðis- og mann-
virkjastofnunar þar sem unnið er að
greiningu á tækifærum til bættrar
orkunýtni í mannvirkjum. Ljóst er að
fjölmörg tækifæri eru fyrir hendi til
að nýta betur jarðhitaauðlindina svo
hún þjóni okkur sem best til framtíðar
og ættum við öll, almenningur og at-
vinnulíf, að grípa þau báðum höndum.
Erlend samvinna á sviði jarðhita jókst
einnig á árinu, en Orkustofnun vinnur
þar sérstaklega náið með Póllandi,
Rúmeníu og Búlgaríu á sviði Upp-
byggingarsjóðs EES, ásamt því að
leggja sín lóð á vogarskálarnar til að
efla framþróun orkugjafans um víða
veröld.
Forgangur almennings
að raforku
Raforkuöryggi almennings var of-
arlega á blaði í vinnu ársins hjá Orku-
stofnun. Í núverandi lagaumgjörð
hafa heimilin og hefðbundin fyrirtæki
ekki forgang að raforku, né eru fyrir
hendi heimildir fyrir stjórnvöld til að
kveða á um slíkan forgang við erfiðar
aðstæður. Í vetur, þegar takmörkuð
orka var á lausu í kerfinu og eft-
irspurn mikil, reyndi á þetta með
beinum hætti. Orkustofnun leiddi hóp
er varðar orkuöryggi, skipaðan af ráð-
herra orkumála, og vinnur ráðuneytið
nú að útfærslu á löggjöfinni. Ljóst er
að sú löggjöf er grundvallarhags-
munamál fyrir orkuöryggi og
verðþróun til heimila og fyrirtækja og
gefst nú tækifæri til að læra af hinu
stóra álagsprófi orkumarkaða Evrópu
frá því í vetur. Auk umbóta á raforku-
öryggi almennings hefur Orkustofnun
lagt áherslu á þróun raforkuinnviða í
þágu orkuöryggis á landsbyggðinni
og orkuskipta sem er langt frá því að
vera lokið. Sömuleiðis hefur netöryggi
raforkuinnviða verið ofarlega á dag-
skrá hjá stofnuninni.
Sjálfbær nýting og aukin
áhersla á nýtni
Alþingi ákveður hvaða orkukostir
fara í nýtingarflokk í rammaáætlun
og í ár var níu ára kyrrstaða þar rofin
undir forystu ráðherra málaflokksins.
Því má gera ráð fyrir frekari aukn-
ingu í umsóknum virkjunarleyfa.
Orkustofnun hefur verið gagnrýnd
fyrir langan málsmeðferðartíma sem
stofnunin tekur alvarlega. Vinnur
stofnunin markvisst að því að efla
þjónustu sína með nýju skipulagi og
mannauði. Til að efla gagnsæi leyfis-
veitingaferlisins og auka upplýs-
ingagjöf hefur Orkustofnun þróað
mælaborð leyfisveitinga sem kynnt
verður í byrjun 2023. Stofnunin mun
áfram vanda til verka við máls-
meðferð virkjunarumsókna, sem gilda
ótímabundið og snúa með beinum
hætti að nýtingu auðlinda landsins, og
setja nýtingunni viðeigandi skilyrði
með sjálfbærni að leiðarljósi.
Samhliða nýjum virkjunarmögu-
leikum var einnig horft á möguleika til
betri nýtni. Afgreitt var frumvarp um
að nýta núverandi virkjanir betur sem
er lykilþáttur ábyrgrar auðlindanýt-
ingar. Orkustofnun beitti sér einnig
fyrir lagabreytingum um einföldun á
uppsetningu varmadælna hjá ein-
staklingum á rafhituðum svæðum. Nú
hafa yfir 40 umsóknir verið afgreiddar
í þessu nýja kerfi sem skila raf-
orkusparnaði upp á um 600 þúsund
kWh eða sem samsvarar raf-
orkunotkun 250 rafbíla.
Vindorkan og leiðin fram á við
Með innleiðingu ramma ESB hefur
landslag orkumálanna breyst hratt.
Skýrasta birtingarmyndin eru þau 34
vindorkuverkefni sem komið hafa á
borð 4. áfanga rammaáætlunar. Ljóst
er að umgjörð skortir sárlega um
þennan málaflokk en von er á frum-
varpi á nýju ári. Vindgæði eru mikil í
lögsögu Íslands og vindorka getur að
mörgu leyti fallið vel við orkukerfi
landsins. Vindurinn blæs t.d. meira á
veturna þegar minna vatn er í lónum
en hægist um á sumrin þegar lónstaða
batnar. Ólíkt Evrópu býr Ísland yfir
fjölbreyttu úrvali endurnýjanlegra
orkuauðlinda og hefur því meiri nýt-
ingarmöguleika en stendur jafnframt
frammi fyrir stærri áskorun um með-
höndlun einstakra náttúrugæða og
þarf að taka ábyrgar ákvarðanir sem
henta ólíkum landsvæðum. Virði nátt-
úru vex á tímum loftslagsbreytinga og
áhrif nýtingar jarðhita, vatnsafls og
vinds er ólíkt þegar horft er til upp-
byggingar mannvirkja sem og ólíks
eðlis auðlindanna sem orkugjafa.
Orkustofnun telur mikinn lærdóm
geta hlotist af því að byggja upp vind-
orku í skrefum og að horfa þurfi á
vindorku á hafi, jafnt og á landi, í vali
á staðsetningum til framtíðar. Einnig
þarf að útfæra hvernig arður af orku-
lindum skilar sér til þjóðarinnar þar
sem flest orkunýtingarverkefni eru
nú ekki á vegum hins opinbera, líkt og
hefur að mestu verið raunin hingað til
hér á landi. Þannig sé líklegra að
ákvarðanataka leiði af sér sátt, sem er
allra hagur.
Orkuskiptin í nútíð og framtíð
Orkustofnun lagði víða hönd á plóg
á árinu varðandi innleiðingu orku-
skipta. Orkusjóður, sem stofnunin
hefur umsjón með, gegnir lykilhlut-
verki þegar kemur að stuðningi við
fjárfestingar í orkuskiptum en til út-
hlutunar komu 1.071,7 milljónir til 140
verkefna. Áætluð minnkun á olíu-
notkun vegna verkefnanna er tæplega
fjórar milljónir lítra á ári. Einnig voru
veittir styrkir til innviða-
uppbyggingar vegna orkuskipta sem
stuðla óbeint að minnkun olíu-
notkunar.
Á árinu gaf Orkustofnun út orku-
skiptalíkan sem er nýi kyndillinn í
nauðsynlegri orkuskiptavegferð
landsins. Líkanið er gagnvirkt þar
sem hægt er að smíða og greina nauð-
synlegar sviðsmyndir sem skilað geta
ásættanlegum árangri, bæði fyrir
loftslagsskuldbindingar og orku-
stefnu landsins. Ein af sviðsmynd-
unum sem kynntar voru við útgáfu
líkansins var nauðsynlegur orku-
skiptahraði í vegasamgöngum. Þar
kom m.a. fram að til að ná lágmarks-
skuldbindingum okkar í loftslags-
málum í samræmi við aðgerðaáætlun
ríkisins þyrfti nýskráningarhlutfall
rafknúinna fólks-, bílaleigu- og sendi-
bíla að vera í kringum 100% strax árið
2025 sem skiptir máli að hafa í huga
við þróun ívilnana og löggjafar. Orku-
stofnun hefur einnig unnið að fjölda
orkuskiptaverkefna í þessum mála-
flokki, s.s. framtíðarskipulagi innviða-
mála og mótun á stuðningskerfi fyrir
orkuskipti í bílaleigum og þungaflutn-
ingum. Nú þegar eru 40 þúsund öku-
tæki í landinu sem geta nýtt innlenda
orku að hluta til eða öllu leyti en mik-
ilvægast er að auka innleiðingarhrað-
ann.
Nýsköpun og tækniþróun
Aldrei hefur verið jafn mikil gerjun
á sviði orku- og loftslagsmála. Eitt
stærsta afrekið á árinu er líklega
áfangi vísindamanna í Bandaríkj-
unum á sviði kjarnasamruna, tækni
sem gæti umbreytt orkumálum á
næstu áratugum takist að hagnýta
hana til orkuframleiðslu. Á Íslandi
hafa fjölmörg loftslagstengd fyrirtæki
sótt fram. Má hér nefna Alor, sem
vinnur að nýrri tegund rafhlaðna,
Carbfix, sem býr yfir tækni til að
breyta CO2 í stein, Laka, sem vinnur
að því að bæta öryggi kerfa, Sidewind,
sem nýtir vindorku á flutningaskip-
um, og Transition Labs, sem hafa
fjárfest í vexti grænna lausna. Ný-
sköpun og tækniþróun munu vinna
með okkur þegar kemur að því að
skapa sem mestan ábata í allri nýt-
ingu fyrir samfélagið og því fylgist
stofnunin vel með framþróun hér.
Að lokum
Árið hefur verið sögulegt og um-
fangsmikið í orkumálunum. Ljóst er
að tækifæri eru fyrir Ísland að taka
ígrundaðar ákvarðanir til framtíðar
og vera sömuleiðis leiðandi í lífs-
gæðum og orkuskiptum. Orkustofnun
þakkar ráðherra, ráðuneyti, stofn-
unum, hagaðilum, þingi og þjóð fyrir
samvinnuna á árinu sem er að líða og
hlakkar til að vinna ötullega og í góðri
sátt á nýju ári – landinu okkar og
framtíðarkynslóðum til góða.
Íslendingar leiðandi þjóð í orkuskiptum
Halla Hrund
Logadóttir » Orkustofnun hefur
mikilvægt hlutverk
þegar kemur að nýtingu
og eftirliti með vatns-
töku.
Halla Hrund Logadóttir
Höfundur er orkumálastjóri.
27
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 31. DESEMBER 2022
Gleði og gaman Snjórinn er kærkominn þegar veðrið leyfir okkur að renna niður brekkur á skíðum og snjóþotum líkt og nokkrir Hafnfirðingar gerðu í vikunni.
Arnþór Birkisson