Morgunblaðið - 31.12.2022, Blaðsíða 34
STJÓRNMÁL
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 31. DESEMBER 2022
34
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Við áramót
Á
rið 2022 var ár breyttrar heimsmyndar. Með árásar-
stríði Rússa snemma árs var ekki aðeins ráðist
á saklausa íbúa Úkraínu, heldur þau grunngildi
sem við Íslendingar stöndum vörð um og byggjum
fullveldi okkar á. Þar var ráðist gegn virðingu fyrir mann-
réttindum, alþjóðalögum og sjálfsákvörðunarrétti þjóða. Langt
er síðan svo afdrifaríkir atburðir hafa átt sér stað í veröldinni
og samstaða vinaþjóða hefur sjaldan skipt meira máli en nú.
Það var því mikilvægt að við Íslendingar tækjum skýra
afstöðu með Úkraínu strax frá upphafi. Við stöndum með
vinaþjóð okkar og þeim gildum sem vestræn ríki í Atlantshafs-
bandalaginu munu ávallt verja. Grundvöllur afstöðu okkar
ristir djúpt. Fámenn herlaus þjóð sem hefur þurft að berjast
fyrir fullveldi sínu og sjálfstæði þekkir sérstaklega vel hve
dýrmætt, en brothætt, frelsið getur verið. Fyrir herlausa þjóð
í Norður-Atlantshafi er stríðið sterk áminning um mikilvægi
öryggis- og varnarmála á svæðinu.
Við Íslendingar munum áfram styðja við Úkraínu, jafnt í
orði sem á borði, allt þar til innrásin er brotin á bak aftur og
munum ekki láta okkar eftir liggja við uppbyggingarstarfið
sem þá tekur við.
Eyland í alheimskrísu
Þó þau blikni í samanburði við raunir Úkraínumanna hafa
áhrif innrásarinnar fundist langt út fyrir landamæri ríkisins.
Framboðsbrestir og rof á framleiðslukeðjum hafa sett efna-
hagslíf fjölda ríkja úr skorðum með tilheyrandi áhrifum á íbúa.
Það er fjarlægur veruleiki fyrir flesta Íslendinga að ræða um
það við náungann hvað kostar að fara í sturtu eða hella upp á
kaffikönnuna. Sú er hins vegar raunin víða í orkukreppunni
sem nú skekur nágrannaríki okkar.
Það er á tímum sem þessum sem sjálfbærni í orkumálum
verður ómetanleg, heita vatnið og sjálfbær raforka sér heim-
ilunum fyrir hlýju og birtu. Við höfum marga styrkleika sem
birtast um þessar mundir. Verðmætasköpun hefur verið mikil
og atvinnuleysi lítið sem ekkert, eftir miklar hæðir í heims-
faraldrinum. Kaupmáttur hefur vaxið verulega undanfarin ár
og haldist sterkur ólíkt því sem þekkist víða í kringum okkur
– ekki síst vegna lægri tekjuskatts og mikils stuðnings við
viðkvæma hópa.
Ný fyrirtæki spretta upp, vaxa, dafna og ráða nýtt starfs-
fólk. Íslenskt hugvit nýtist til að leysa fjölmörg alþjóðleg
vandamál og með áframhaldandi skattastuðningi og hvetjandi
umhverfi má gera ráð fyrir að sú þróun haldi áfram af fullum
krafti.
Blómstrandi mannlíf
Kvennalandsliðið stóð sig með prýði á EM í fótbolta á
Englandi í sumar og handboltalandslið karla tryggði sér sæti
á HM sem hefst á næstu dögum, en þar eigum við nú suma
af bestu leikmönnum samtímans. Íslenskt íþróttafólk nær
glæstum árangri, hvort sem er í sundi, á gönguskíðum eða
öðrum greinum.
Listafólkið okkar haslar sér völl um allan heim. Víkingur
Heiðar fékk hin virtu Schock-verðlaun á árinu, Laufey Lín átti
eina vinsælustu plötu Bandaríkjanna og Ragnar Kjartansson,
sem pakkaði sýningu sinni í Moskvu saman eftir innrásina
í Úkraínu, heldur áfram að slá í gegn um allan heim. Hildur
Guðnadóttir fékk svo enn eina tilnefningu til verðlauna nú
undir lok árs og fjöldi annars hæfileikafólks í kvikmyndagerð
sækir fram. Áfram mætti lengi telja.
Afrek ársins eru mörg og til marks um þann kraft sem í
þjóðinni býr. Sterk staða Íslendinga á flestum sviðum er ekki
sjálfsögð, heldur afleiðing áræðni, framtakssemi og fyrir-
hyggju – bæði kynslóðanna sem nú lifa og þeirra sem á undan
komu. Með sama hugarfari á ári komanda heldur sóknin
áfram.
Tækifæri í áskorunum
Þrátt fyrir að verðbólga sé hér einna minnst í Evrópu skiptir
öllu máli að ná henni áfram niður. Til þess þarf samhent átak
en stöðugleiki er markmið sem á að vera hægt að sameinast
um. Gott leiðarljós við þær aðstæður sem nú hafa skapast er
að sígandi lukka er best. Góð tíðindi af kjarasamningum nú
fyrir hátíðarnar gefa fyrirheit um að við séum á réttri braut.
Hins vegar skiptir máli að við gefumst ekki upp á því mikil-
væga verkefni að styrkja íslenska vinnumarkaðslíkanið og
sjálfsagt að horfa til Norðurlanda í því sambandi, með mark-
mið um stöðugleika, grænan vöxt og vaxandi velsæld allra að
leiðarljósi.
Enn ber of mikið á ákalli um ríkisvæðingu allra verkefna
sem aftur kallar á enn aukin útgjöld sem fjármagna á með
stærri lánum og hærri sköttum. Ríkið gegnir víða lykilhlut-
verki, svo sem í heilbrigðis- og félagsþjónustu og mennta-
kerfinu, en samkeppni getur þrifist víðar og einkaframtakið
gegnir lykilhlutverki í því sambandi. Við munum ekki vaxa til
velsældar með ríkisvæðingu tækifæranna. Mikilvægum áfanga
var náð á árinu við að draga úr ríkisumsvifum með öðrum
söluáfanga ríkisins á hlut í Íslandsbanka.
Að undanförnu hefur náðst mikill árangur í að stafvæða
þjónustu ríkisins. Við erum í reynd að bylta þjónustunni með
tækni og spara um leið tíma og peninga. Nýta þarf tæknina
áfram til að fá meira fyrir minna og minnka þannig umfang
hins opinbera þar sem færi gefst. Síðustu ár hafa ýmsar stofn-
anir verið sameinaðar og lagðar niður með góðum árangri og
minni yfirbyggingu, en við eigum enn þá mikið inni. Höfuð-
áherslan á að vera á að sækja lausnirnar út í samfélagið, en
ekki inn í Stjórnarráðið.
Við endurnýjun ríkisstjórnarsamstarfsins tókst að leysa
úr þeim hnút sem upp var kominn í rammaáætlun. Við Ís-
lendingar erum fyrirmynd í nýtingu jarðvarma og vatnsafls og
erum ekki síst þess vegna í dauðafæri til að verða leiðandi afl
á sviði grænna lausna. Við búum yfir auðlindum, þekkingu og
tækifærum til að ná dýrmætu forskoti í orkuskiptum og kynna
til sögunnar tækni og lausnir sem geta haft raunveruleg áhrif í
baráttunni við loftslagsbreytingar.
Við höfum sett okkur metnaðarfull markmið um samdrátt
í losun sem kallar á átak í orkuvinnslu. Alger forsenda þess
að stórir áfangar náist í orkuskiptunum er aukinn kraftur
í virkjanagerð um leið og öðrum þáttum aðgerðaáætlunar
í loftslagsmálum, varðandi landnotkun, rafvæðingu hafna,
hringrásarhagkerfið og fleiri þætti er hrint í framkvæmd. Það
er til mikils að vinna.
Takk fyrir traustið
Við höfum sterklega verið minnt á það undanfarin ár að
ómögulegt er að spá fyrir um hvað framtíðin ber í skauti
sér. Það breytir því ekki að ávallt er fullt tilefni til að horfa
björtum augum fram veginn, mæta hverri áskorun sigurviss
og taka nýju ári fagnandi. Þrátt fyrir strjálbýli, norðlæga legu
okkar og oft erfitt tíðarfar hefur tekist að skapa hér samfé-
lag sem stendur öðrum framar. Samfélag okkar hefur staðið
sterkt í gegnum innlend jafnt sem utanaðkomandi áföll, en
uppskriftin að þessum árangri er trúin á einstaklinginn, fram-
takssemi og frelsi til orða og athafna.
Það eru þessi gildi og samfélagið sem skapast hefur á
grunni þeirra, ekki síst eftir að sjálfstæði og fullveldi landsins
var tryggt, sem kveiktu áhuga minn á landsmálunum. Fyrir
mig hefur það verið sérstakur heiður að fá að leiða stærsta
stjórnmálaafl landsins í rúman áratug og ótvíræður hápunkt-
ur ársins að hljóta sterkt umboð til að halda því áfram eftir
glæsilegan landsfundi okkar í nóvember. Frá honum komum
við endurnærð og full af eldmóði til að vinna að frekari fram-
faramálum fyrir þjóðina.
Gleðilegt nýtt ár.
Afrek ársins eru mörg og til marks um
þann kraft sem í þjóðinni býr. Sterk staða
Íslendinga á flestum sviðum er ekki sjálf-
sögð, heldur afleiðing áræðni, framtakssemi
og fyrirhyggju – bæði kynslóðanna sem
nú lifa og þeirra sem á undan komu. Með
sama hugarfari á ári komanda heldur sóknin
áfram.
Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins og fjármála- og efnahagsráðherra – D