Morgunblaðið - 31.12.2022, Blaðsíða 49
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 31. DESEMBER 2022
DÆGRADVÖL 49
Hólabraut 11, 230 Reykjanesbæ
Nánari upplýsingar á skrifstofu s. 420 6070 eða eignasala@eignasala.is
Mikið endurnýjuð 4ra-5 herbergja efri hæð ásamt bílskúr.
Húsið einangrað að utan og klætt með álklæðningu.
Jóhannes Ellertsson
Löggiltur fasteignasali
s. 864 9677
Júlíus M Steinþórsson
Löggiltur fasteignasali
s. 899 0555
Bjarni Fannar Bjarnason
Aðstoðamaður fasteignasala
s. 773 0397
Verð 53.500.000 Stærð 159,3 m2
Vísnahorn
Gott er hvað hleypur
Gátan er sem endranær eftir
Guðmund Arnfinnsson:
Vöxtur nú í ánni er.
Árafjölda vitni ber.
Slark á vegi hermi hér.
Hefur dauða í förmeð sér.
Guðrún B. á þessa lausn:
Hlaup var í ánni yfir sanda
og ársvexti horns við sauðfjáreyra.
Hlaupið í stýri veldur vanda,
en voði úr byssuhlaupimeira.
Sjálfur skýrir Guðmundur
gátuna þannig:
Hlaup í ánni hafið er.
Áhornum aldri vitni ber.
Slark á vegi hlaup er hér.
Í hlaupi dauði falinn er.
Þá er limra:
Geiri er frár eins og gaupa
og gjarn fram úr hófi að raupa
af sjálfum sér
og sífellt er
sá hlaupari á sig að hlaupa.
Síðan er ný gáta eftir Guðmund:
Snjóað hefur næsta nóg,
nú sést hvergi á auða tó,
þreyttur gróf ég göng í snjó,
gátuna ég samdi þó:
Hér er fatmeð föngum á.
Finnst á hverjum sláttuljá.
Býsna frægur bærinn sá.
Berst um loftið til og frá.
Úr „Nýárshringingu 1909“ eftir
Matthías Jochumsson:
Hringið út lygar hrekk og prett –
heimskunnar forna syndagjald;
hringið inn fagurt, frjálst og rétt:
fari svo árið Guði á vald.
Guðmundur Arnfinnsson segir
„Bless“ á Boðnarmiði:
Áhjarta kalinn kuldablár
kveð ég þig án eftirsjár,
lengst í burtmeð frost og fár
farðu í rassgat gamla ár.
Þegar síra Guðjón Hálfdánar-
son fékk Saurbæ í Eyjafirði kom
hann sunnan af landi og hafði
þjónað Krossþingum. Var hann þá
við aldur. Þá kvað Jónas Jónsson,
er bjó í Villingadal og Hólsgerði:
Loks þegar snjóinn leysti í ár
lands um flóann kunnan
kommeð lóum grettinn, grár
grallaraspói að sunnan.
Ólafur Stefánsson yrkir:
Króna beygð en kalinn haddur
kuldagjóstur vefst um ból.
Þannig fer ef gufa og gaddur
ganga í leik í skemmstri sól.
„HANN LAUG MEIRA AÐ SEGJA TIL UM
ALDUR SINN.“
„ÉG ER VISS UM AÐ EF VIÐ BIÐJUM
ÞAU FALLEGA ÞÁ FÁUM VIÐ AÐ KLÁRA
KVÖLDMATINN ÁÐUR EN ÞAU FLYTJA INN.“
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að halda Zoom-partí
á afmælisdaginn.
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
UHHH… ÞAÐ ER SVO ERFITT
AÐ META SVONA DÆS!
DÆS FYRIR-
GEFÐU!
DÆS
FYRIR
HVAÐ?
FYRIRGEFÐU!
ÞETTA VAR
LOFTSTEINN!
SJÁÐU!
ELDFLUGA!
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Fjölskylda
Eiginmaður Margrétar var
Helgi Hallgrímsson, f. 22.2. 1933,
d. 8.10. 2020, brúarverkfræðingur
og vegamálastjóri. Þau bjuggu á
Njálsgötunni, Háaleitisbraut og
Glaðheimum áður en þau fluttu
í Mörkina, þar sem Margrét býr
enn. Foreldrar Helga voru hjónin
Hallgrímur Helgason, f. 4.10. 1892,
d. 18.12. 1940, bóndi, og Málfríður
Þórarinsdóttir, f. 10.1. 1900, d. 16.7.
1998, húsfreyja. Þau bjuggu á Hér-
aði og í Seyðisfirði.
Börn Margrétar og Helga eru 1)
Hallgrímur Helgason, f. 18.2. 1959,
myndlistarmaður og rithöfundur,
búsettur í Reykjavík. Maki hans
er Þorgerður Agla Magnúsdóttir,
sálfræðinemi; 2) Nína Helgadóttir, f.
20.11. 1960, mannfræðingur, búsett
á Álftanesi. Maki hennar er Kjartan
Valgarðsson, framkvæmdastjóri; 3)
Ásmundur Helgason, f. 24.11. 1965,
bókaútgefandi, búsettur í Reykja-
vík. Maki hans er Elín G. Ragnars-
dóttir, bókaútgefandi; 4) Gunnar
Helgason, f. 24.11. 1965, leikari og
rithöfundur, búsettur í Hafnarfirði.
Maki hans er Björk Jakobsdóttir,
leikkona og leikstjóri. Barnabörnin
eru orðin tólf og barnabarnabörnin
fimm.
Bróðir Margrétar var Gunnar G.
Schram, f. 20.2. 1931, d. 29.8. 2004,
lagaprófessor og þingmaður, var
búsettur í Reykjavík.
Foreldrar Margrétar voru hjónin
Gunnar Schram, f. 22.6. 1897, d.
26.11. 1980, símstjóri á Akureyri, og
Jónína Jónsdóttir Schram, f. 23.5.
1897, d. 27.7. 1974, húsmóðir.
Margrét
Schram
Helga Gunnlaugsdóttir
húsfreyja á Hraunum
Sveinn Sveinsson
bóndi og hreppstjóri
á Hraunum í Fljótum
Guðlaug Helga Sveinsdóttir
húsfreyja í Arnarnesi
Jón Kristján Antonsson
útvegsbóndi í Arnarnesi
á Galmaströnd, Eyjaf.
Jónína Jónsdóttir Schram
Margrét Jónsdóttir
húsfreyja í Arnarnesi,
frá Siglunesi í Siglufirði
Vilhelm Anton Sigurðarson
(launsonur Levers kaupm.)
bóndi og sjómaður í Arnarnesi
Margrét Gestsdóttir
húsfreyja á Fossi og í Reykjavík
Árni „gáta“ Halldór Hannesson
bóndi og fræðimaður á Fossi í
Staðarsveit, síðar í Reykjavík
Magdalena Sigríður Árnadóttir Schram
húsfreyja í Reykjavík
Ellert Kristófer Kristjánsson Schram
skútuskipstjóri í Reykjavík
Hallbjörg Guðmundsdóttir
yfirsetukona í Öndverðarnesi
Kristján Gynther Ellertsson Schram
trésmiður í Öndverðarnesi, Árn. síðar í Eidsvold, Lyon, Minnesota, BNA
Ætt Margrétar Schram
Gunnar Schram
símstöðvarstjóri á Akureyri