Morgunblaðið - 31.12.2022, Side 50
ÍÞRÓTTIR50
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 31. DESEMBER 2022
Snorri áframá
Hlíðarenda
Snorri Steinn Guðjónsson hefur
framlengt samning sinn við Val
og mun stýra karlaliði félagsins
út keppnistímabilið 2024-2025.
Snorri tók við þjálfun Valsliðsins
árið 2017 og lauk þar á fyrsta
tímabilinu löngum og farsælum
ferli sínum sem leikmaður. Vals-
menn unnu alla þrjá titla síðasta
tímabils, 2021-22, Íslandsmótið,
bikarinn og úrvalsdeildina, en
þeir urðu einnig tvöfaldir meist-
arar, í deild og bikar, tímabilið
2020-21 undir stjórn Snorra.
Ljósmynd/Sigfús Gunnar
Sigursæll Snorri Steinn Guðjóns-
son á sigurstundu með Val.
England
Liverpool – Leicester................................ (2:1)
West Ham – Brentford ............................ (0:2)
Leikjunum var ekki lokið þegar blaðið fór
í prentun. Sjá mbl.is/sport/enski.
Haraldur íþrótta-
eldhugi ársins
Haraldur Ingólfsson var útnefnd-
ur íþróttaeldhugi ársins 2022 af
ÍSÍ en þetta var tilkynnt í hófi
Samtaka íþróttafréttamanna í
Hörpu í fyrrakvöld. Verðlaunin
voru afhent í fyrsta skipti en Har-
aldur fær þau fyrir mikið sjálf-
boðastarf fyrir Þór og Þór/KA á
Akureyri í fótbolta, handbolta og
körfubolta. Þrír sjálfboðaliðar
voru valdir úr hundruðum til-
nefndra. Hin tvö voru Friðrik Þór
Óskarsson úr ÍR og Þóra Guðrún
Gunnarsdóttir úr Birninum.
Morgunblaðið/Hákon
Sjálfboðaliði Haraldur Ingólfsson
fékk nýju verðlaunin fyrstur.
Brotnaði
aftur á fyrstu
æfingunni
lDarri sér loks fyrir endann ámeiðslum
Lukkan hefur ekki verið með Darra
Aronssyni, atvinnumanni hjá
franska 1. deildar liðinu Ivry í hand-
knattleik karla, í liði frá því að hann
gekk í raðir félagsins frá uppeldis-
félagi sínu Haukum í sumar. Vegna
ristarbrots hefur hann ekki náð að
spila neitt fyrir Ivry á tímabilinu.
„Þetta er náttúrlega algjört ólán.
Ég ristarbrotnaði á álagsbroti
svona korteri í flug þannig séð,
þetta gerðist tveimur dögum áður
en ég flaug til Ivry. Svo brotnaði
ég aftur í október þegar ég var að
byrja að æfa handbolta aftur. Á
fyrstu æfingunni til baka brotnaði
ég aftur.
Þá var þetta ekki nógu vel gróið
þannig að ég var settur of snemma
af stað. Eftir seinna brotið var ég
settur í aðgerð núna í nóvember
og verð vonandi tilbúinn aftur
um miðjan febrúar. Vonandi ekki
seinna, þetta er búið að vera ótrú-
legt með þessi bakslög. Vonandi
mun lánið leika aðeins betur við
mig árið 2023,“ sagði Darri í samtali
við Morgunblaðið.
Þrátt fyrir bakslög sagði hann
bataferlið og endurhæfinguna
ganga afar vel um þessar mundir.
„Já, ég er meira að segja tveimur
vikum á undan áætlun eins og
staðan er núna, allavega að mati
skurðlæknisins. Þetta er allt að
ganga vel núna.“
Darri vonast því til þess að missa
ekki af meira en einum til tveimur
leikjum á seinni hluta tímabilsins.
Algjört klúður
Blaðamanni lék forvitni á að vita
af hverju Darri hefði ekki verið
sendur í skurðaðgerð strax eftir að
hann ristarbrotnaði í fyrra skiptið.
„Það var ákveðið af liðslækninum.
Liðslæknirinn ákvað það þrátt fyrir
að Brynjólfur Jónsson, bæklun-
arskurðlæknir í Orkuhúsinu, vildi
meina að ég þyrfti að láta skrúfa
þetta strax vegna þess að hann
hefur oft séð svona brot.
Hann vildi meina að það þyrfti að
gera það til þess að ég myndi jafna
mig sem best en liðslæknarnir vildu
meina að það þyrfti ekki vegna þess
að þetta var ótrúlega fíngert brot.
Þeir vildu meina að það væri óþarfi.
Það var auðvitað algjört klúður
að ég væri ekki bara settur strax í
aðgerð,“ sagði Darri.
Hann vildi þó ekki dvelja við þetta
klúður enda ekki til neins. „Það
er svekkjandi að maður brotnar
á þennan hátt en það þarf ekki að
kenna neinum um og nú er það bara
áfram veginn. Það þýðir ekkert að
hugsa um þetta.“
Búið að vera ótrúlega erfitt
Ivry hefur átt erfitt uppdráttar í
afar sterkri franskri deild þar sem
liðið er með 8 stig eftir 15 leiki,
tveimur stigum fyrir ofan fallsæti.
Darra hefur þótt það leitt að hafa
ekki getað hjálpað Ivry neitt á
tímabilinu en telur liðið þó eiga
mikið inni.
„Þetta er bara búið að vera
ótrúlega erfitt, sérstaklega hvað við
höfum þurft að glíma við gífurlega
mikið af meiðslum. Við misstum
einn af línumönnunum frá okkur
í byrjun tímabils og svo hafa hinir
tveir línumennirnir verið frá til
skiptis, þannig að okkur hefur mjög
mikið vantað „þrista“ í vörninni. Þá
höfum við stundum þurft að fara í
5-1 vörn í staðinn.
Við höfum verið gífurlega
óheppnir, tapað mörgum leikjum
með einu til þremur mörkum, til
dæmis með tveimur á móti sterkum
liðum á við [topplið] Montpellier. Ég
myndi segja að staðan í deildinni
endurspegli ekki frammistöðuna
á vellinum því við höfum verið
ótrúlega sterkir en óheppnir með
meiðsli og annað.“
Hann sagði stutt í endurkomu
annarra leikmanna sem eru meidd-
ir um þessar mundir.
„Þeir eru víst allir að verða heilir
aftur núna í janúar. Vonandi komum
við tvíefldir til leiks á seinni hluta
tímabilsins þegar önnur umferð
deildarinnar byrjar í febrúar.“
Vill endurgjalda traustið
Darri, sem var kallaður inn í
A-landsliðshópinn á EM 2022 í
upphafi ársins vegna fjölda kór-
ónuveirusmita hjá leikmönnum,
sagðist ekkert hafa leitt hugann að
landsliðinu, sem tekur senn þátt á
HM í Svíþjóð og Póllandi, undan-
farið enda í forgangi að jafna sig á
meiðslunum til þess að geta hjálpað
félagsliði sínu sem fyrst.
„Eins og staðan er núna þarf ég
bara að einbeita mér að mínum
hlutum og koma mér aftur inn á
völlinn. Ég held að allir íslenskir
handboltamenn vilji vera landsliðs-
menn og ég mun auðvitað leggja
hart að mér til að vinna fyrir því, að
sýna að ég geti verið það í framtíð-
inni.
En ég hef ekkert verið með HM í
huga núna, ég er auðvitað að koma
úr mjög erfiðum og langvinnum
meiðslum, þetta eru um sex mánuð-
ir. Eins og staðan er núna ætla ég
að endurgjalda mínum mönnum
í Ivry þeirra traust og trú í minn
garð, sem ég er ótrúlega heppinn
með og þakklátur fyrir,“ sagði hann.
„Þrátt fyrir öll þessi meiðsli hafa
þeir staðið gífurlega þétt við bakið á
mér og verið ótrúlega hjálplegir og
þolinmóðir. Ég vil endurgjalda það
traust með því að koma tvíefldur
til baka,“ sagði Darri að lokum í
samtali við Morgunblaðið.
FRAKKLAND
Gunnar Egill Daníelsson
gunnaregill@mbl.is
Ljósmynd/Ivry
Ivry Darri Aronsson vonast til þess að geta loks leikið sinn fyrsta leik fyrir
Ivry í frönsku 1. deildinni í febrúar eftir að hafa ristarbrotnað í tvígang.
Grindavík endur-
heimti sjöunda sætið
Grindavík vann nauman
95:93-sigur á Þór frá Þorlákshöfn
þegar liðin áttust við í hörkuleik
í 11. umferð úrvalsdeildar karla í
körfuknattleik, Subway-deildar-
innar, í Grindavík í gærkvöldi.
Grindavík náði nokkrum
sinnum drjúgri forystu í leiknum
en Þór gafst ekki upp og náði að
minnka muninn í aðeins eitt stig,
91:90 og 94:93, undir blálokin en
komst ekki nær.
Damier Pitts var stigahæstur
í liði Grindavíkur með 26 stig og
átta fráköst. Skammt undan var
Ólafur Ólafsson með 24 stig og
níu fráköst. Hjá Þór var Vinnie
Shahid stigahæstur með 36 stig
og sjö stoðsendingar. Styrmir
Snær Þrastarson bætti við 19
stigum auk þess sem hann tók 12
fráköst og gaf átta stoðsendingar.
Með sigrinum fór Grindavík
upp í 7. sæti deildarinnar á ný þar
sem liðið er með 12 stig, en átta
efstu liðin komast í úrslitakeppn-
ina um Íslandsmeistaratitilinn.
Þór heldur hins vegar kyrru
fyrir í 11. sæti, fallsæti, þar sem
liðið er með einungis 4 stig.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
36 Vinnie Shahid skoraði 36 stig fyrir Þór frá Þorlákshöfn í gærkvöldi.
Aftonbladet í Svíþjóð greinir frá því
að Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari
karlaliðs Breiðabliks, hafi rætt við
sænska félagið Kalmar um að taka við
stjórnartaumum karlaliðs félagsins en
svo dregið sig sjálfur úr kapphlaupinu
um stöðuna.Henrik Jensen, aðstoðar-
þjálfari Midtjylland í Danmörku, mun
taka við þjálfun Kalmar.Davíð Kristján
Ólafsson, fyrrverandi leikmaður
Breiðabliks, er á mála hjá Kalmar.
ÍBV hefur fengið hvítrússneska
handknattleiksmarkvörðinn Pavel
Miskevich í sínar raðir og samið við
hann um að leika með liðinu út þetta
tímabil. Hann er 25 ára gamall og
kemur til Eyja frá San José Lanzarote
frá Kanaríeyjum sem leikur í spænsku
C-deildinni. Miskevich lék áður með
SKAMinsk, sterkasta liði Hvíta-Rúss-
lands.
Alls hafa ellefu leikmenn Detroit
Pistons og Orlando Magic verið
úrskurðaðir í leikbann af NBA-deildinni
í körfuknattleik karla eftir að slagsmál
brutust út í leik liðanna aðfaranótt
fimmtudags.Killian Hayes, leikmaður
Detroit, fékk lengsta bannið, þrjá leiki,
fyrir að gefa Moe Wagner, leikmanni
Orlando, harkalegt olnbogaskot í
hnakkann.Wagner hafði áður hrint
Hayes á varamannabekk Detroit og
fékk fyrir vikið tveggja leikja bann.
Hamidou Diallo hjá Detroit fékk eins
leiks bann fyrir að hrindaWagner
og átta leikmenn Orlando fengu
sömuleiðis eins leiks bann fyrir að fara
af varamannabekk sínum að vara-
mannabekk Detroit meðan á nokkurs
konar óeirðum stóð. Leikmennirnir
átta hjá Orlando eru þeir Cole
Anthony, R.J. Hampton,Gary Harris,
Kevon Harris,Admiral Schofield,
Franz Wagner,Mo Bamba og Wendell
Carter.
Marc Overmars, íþróttastjóri
belgíska knattspyrnufélagsins Royal
Antwerp og fyrrverandi leikmaður
Ajax, Arsenal og Barcelona, hefur verið
lagður inn á spítala eftir að hafa fengið
vægt heilablóðfall. Antwerp greindi frá
þessu í tilkynningu þar sem sagði að
Overmars hefði kvartað undan vanlíð-
an á fimmtudag. Þar sagði einnig að
honum líði prýðilega sem stendur
en muni þurfa að taka því rólega um
skeið. Overmars og fjölskylda hans
muni nú einblína á að hann nái bata.
Enock Mwepu, sem neyddist nýverið
til að hætta knattspyrnuiðkun vegna
hjartavandamála, hefur verið ráðinn
í nýtt starf hjá félagsliðinu sem hann
var síðast á mála hjá, Brighton & Hove
Albion. Mwepu, sem er 24 ára gamall,
hefur verið ráðinn nýr þjálfari U9-ára
liðs drengja hjá félaginu. Hann hafði
staðið sig vel með Brighton í ensku
úrvalsdeildinni undanfarið eitt og hálft
tímabil þegar hann veiktist í flugi á
leið í landsliðsverkefni með Sambíu
í september síðastliðnum. Eftir að
hafa gengist undir rannsóknir hjá
Brighton í kjölfar veikindanna kom
í ljós hjartagalli. Í október tilkynnti
Brighton svo að Mwepu neyddist til að
leggja skóna á hilluna þar semmikil
hætta væri á því að hann yrði fyrir
banvænu hjartaáfalli ef hann héldi
áfram knattspyrnuiðkun.