Morgunblaðið - 31.12.2022, Side 53
MENNING 53
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 31. DESEMBER 2022
Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is
TRYGGÐU ÞÉR
MIÐA INNÁ
FRÁ ÞEIM SÖMU OG FÆRÐU OKKUR ENCANTO
KOMIN Í BÍÓ
SÝND MEÐ ÍSLENSKU OG ENSKU TALI
N Ý T T ÆV IN T Ý R I Ú R HE IM INUM
71%
REEL VIEWS EMPIRE AV CLUBNEW york post indie wire
entertainmentweekly the atlantic chicaco sun-times the playlist
Það eru heil átta ár síðan
Muna, sólóplata Markétu
kom út. Hún hefur nú búið
á Íslandi í tíu ár, fékk íslenskan
ríkisborgararétt fyrir þremur árum
og hún og eiginmaður hennar, upp-
tökustjórinn Sturla Mio Þórisson,
eiga og reka
saman hljóð-
verið Master-
key Studios
(meðfram því að
eignast börn og
stofna fjölskyldu
sem í dag telur
sex manneskjur og hund!). Lila
er gefin út af Masterkey Sounds í
samstarfi við Secretly Canadian og
Overcoat Recordings. Platan flæðir
nú um streymisveitur en er auk
þess fáanleg á forláta vínyl (fallega
fjólubláum), sem geisladiskur og
líka sem gerðarleg bók; með text-
um, myndum og ritgerð (og diski).
Þema plötunnar er sígilt. Ástin.
Í öllum sínum birtingarmyndum.
Sönn, fölsk, viðkvæm, ímynduð,
barnsleg, líkamleg, hrein, ruglandi,
rómantísk, sameinandi, foreldraást.
Markéta fæddist í Tékklandi árið
1988 og árið 2008 varð hún yngsti
handhafi Óskarsverðlauna fyrir
besta frumsamda lagið , „Falling
Slowly“, sem hún samdi með Glen
Hansard fyrir kvikmyndina Once
þar sem hún lék annað aðalhlut-
verkið. Fyrsta sólóplata hennar,
Anar, kom út 2011 en önnur,Muna,
kom út 2014. Vinna við hana hófst
2012, árið sem „fleytti henni til
Íslands“ eins og það er skemmtilega
orðað í fréttatilkynningu.
Lila var tekin upp í Masterkey
hljóðverinu og sá Mio um upp-
tökustjórn, upptökur, hljóðblöndun
og hljómjöfnun. Textar og tónlist
eru eftir Markétu sem jafnframt
syngur, útsetur og leikur á píanó,
bodhrán, bassa, gítar, hörpu og
flautu. Með henni eru Marja
Gaynor (fiðla og víóla), Peter Moc
(gítar) og Manuel Barreto (tromm-
ur og slagverk).
Fyrsta lagið fer fallega af stað,
maður sér fyrir sér dalverpi, fagran
dag og töfrum slegið umhverfi.
„Enginn er ónæmur fyrir ástinni,
þá hún finnur þig,“ segir Markéta,
íslenskun mín. „Og þó ég hafi misst
þig, þá dvaldi hún áfram hjá mér,“
heldur hún áfram og vísar þannig til
myrkari hliða. Og segir jafnframt,
að þó að hún hafi viljað ástina í
burtu, hafi ástin neitað að fara.
Klókt upphaf verður að segjast,
hvar þolgæði ástarinnar er rammað
inn. Ástin er eilíf, alltaf til staðar og
er þarna – hvort sem okkur líkar
betur eða verr.
„Girl from a Movie“ er næst og
þar er gott að nema vel til fundnar
útsetningarnar. Strengir lúra á bak
við og gefa laginu lit. Það rúllar
áfram í popp/rokktakti en strengir,
píanó og hækkun undir rest draga
fram epískan, nánast gotneskan
blæ. Popp og klassík kyssast, ekki
ósvipað og í verkum Juliu Holter
eða Joönnu Newsom. „High & Dry“
er ekki ósvipað, haganlega samið
og vandað kammerpopp hvar allar
rásir eru nýttar upp í topp til að
vefa marglaga hljómagaldur þar
sem ekkert er of eða van.
Plötunni vindur svona fram,
meira og minna. Það er góður
heildartónn yfir, lög tengjast og
mynda heildarsvip. Verkinu lýkur
með „Know Yourself“, dramatísku
endastefi nema hvað, þar sem talað
er um mikilvægi sjálfsþekkingar-
innar, að skilja og þekkja sjálfan
sig ... tja ... elska sjálfan sig í raun
réttri. Glúrinn endapunktur á plötu
sem fjallar um ástina í öllum sínum
myndum því að ef maður hefur ekki
rænu á að sýna sjálfum sér mildi og
elsku er erfitt að ætlast til þess að
ástin flæði til manns, hvað þá frá
manni.
Hin gerðarlegasta plata verður að
segjast. Stór, stæðileg og tilkomu-
mikil en um leið er í henni mildur
og ægifagur kjarni, tandurhreinn
eins og eigindi sannrar ástar.
Ástinmildar, ástin styrkir
Haganlega samið
og vandað kamm-
erpopp hvar allar rásir
eru nýttar upp í topp
til að vefa marglaga
hljómagaldur þar sem
ekkert er of eða van.
Markéta Irglová hefur
verið búsett á Íslandi
um langa hríð. Síð-
sumars kom út platan
Lila, hennar fyrsta í
átta ár, þar sem ástin
í öllu sínu veldi er
miðlæg.
TÓNLIST
Arnar Eggert Thoroddsen
arnareggert@arnareggert.is
Ást Á plötunni Lila skoðar
Markéta Irglová ástina frá
mörgum hliðum.
Ljóðadagskrá í
Gröndalshúsi
„Árljóð“ er
heiti ljóða-
dagskrár
sem verður í
Gröndalshúsi
í Grjótaþorpi
frá sólarupprás
til sólarlags
á nýársdag.
Sjö skáld lesa,
kveða og þylja
þá þindarlaust
frá klukkan 10 til 17. Í tilkynningu
segir að allir séu velkomnir í
hús Benedikts að hlusta, þiggja
kaffibolla eða maula piparköku
en einnig verður hægt að fylgjast
með dagskránni í myndstreymi
á vefslóðinni reykjavik.is/nyars-
ljod. Skáldin sjö eru Dagur Hjart-
arson, Oddný EirÆvarsdóttir,
Sjón, Sigurbjörg Þrastardóttir,
Haukur Ingvarsson, Gerður
Kristný og Jón Gnarr.
Oddný Eir
Ævarsdóttir
Pönkhönnuðurinn
Westwood látin
Breski tísku-
hönnuðurinn
Vivienne
Westwood er
látin, 81 árs að
aldri. Frægðar-
sól hennar reis
hratt á tímum
pönkbylgjunn-
ar í Bretlandi,
á áttunda
áratug síðustu aldar, þegar hún
gerði pönkútlitið að tískufyrir-
bæri.
Westwood var sjálfmenntaður
hönnuður sem fann sína leið
með því að taka sundur og setja
aftur saman notaðar flíkur af
ýmsu tagi. Annar eiginmaður
hennar, MalcolmMcLaren, var
umboðsmaður frægustu hljóm-
sveitar pönkbylgjunnar, Sex
Pistols, og sá hún um að velja
föt á hljómsveitarmeðlimina.
Ögrandi nálgun hennar rataði
síðan inn í meginstrauminn og
hefur Westwood notið vinsælda
og virðingar fyrir hönnun sína,
þrátt fyrir að hún hafi áfram
notið þess að ögra viðteknum
gildum í hönnun sem tali. Hún
var öðluð af Bretadrottningu
árið 2006.
Vivienne Westwood