Morgunblaðið - 31.12.2022, Síða 56
Í lausasölu 1.410 kr.
Áskrift 8.880 kr. Helgaráskrift 5.550 kr.
PDF á mbl.is 7.730 kr. iPad-áskrift 7.730 kr.
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
LAUGARDAGUR 31. DESEMBER 365. DAGUR ÁRSINS 2022
MENNING
Hátíðarhljómar við áramót
Gamla árið verður kvatt með trompet-, básúnu- og
orgelleik í ljósaskiptunum á síðasta degi ársins, í dag
kl. 16. Fram koma trompetleikararnir Gunnar Kristinn
Óskarsson og Ólafur Elliði Halldórsson og básúnuleik-
ararnir Gunnar Helgason, Steinn Völundur Halldórsson
og Björn Steinar Sólbergsson organisti. Miðar fást við
innganginn og á vefnum tix.is.
ÍÞRÓTTIR
Darri hóf atvinnuferilinn
á tveimur ristarbrotum
Handboltamaðurinn Darri Aronsson sér loksins fram á
að geta byrjað að æfa og spila með sínu nýja liði, Ivry
í Frakklandi, eftir að hafa ristarbrotnað tvisvar með
þriggja mánaða millibili í sumar og haust. Íslenskur
bæklunarlæknir vildi senda Darra í aðgerð eftir fyrra
brotið en liðslæknir Ivry taldi það óþarfa.» 50
Drauga hefur víða verið getið og
í bókinni Draugaslóðum á Íslandi
tekur Símon Jón Jóhannsson
saman um 100 draugasögur úr
öllum landshlutum. „Það losnar um
allan draugagang um áramót,“ segir
Símon. „Þá fara allir á stjá.“
Símon hefur leitað fanga í
þjóðsagnasöfnum. „Ég endurskrifa
sögurnar,“ segir hann. Í bókinni
eru fjölmargar ljósmyndir, sem Ívar
Gissurarson hjá Bókaútgáfunni
Nýhöfn sá um, og kort eftir Guðjón
Inga Hauksson. Fyrir um tveimur
árum kom út bókin Hulduheimar –
Huldufólksbyggðir á Íslandi í saman-
tekt Símonar og segir hann að þeir
hafi fetað svipaða slóð nú.
„Þjóðsögurnar eru óaðgengi-
legar,“ segir Símon um eina helstu
ástæðu útgáfunnar. Almennt fari
fólk ekki í þjóðsagnasöfn til að
lesa þessar sögur sem séu auk
þess skrifaðar á fyrndu máli. „Ég
er í raun að bera þær á borð fyrir
nútímann.“
Sögurnar eru á áhugasviði
Símonar en hann er meðal annars
þjóðfræðingur. Hann hefur kennt í
Flensborg í Hafnarfirði í yfir 30 ár
og meðal annars verið með kúrs í
þjóðfræði undanfarin ár. Meðfram
kennslunni hefur hann stundað
þjóðfræðirannsóknir og sent frá sér
fjölmargar bækur. „Allur sagna-
arfurinn er hluti af þjóðfræðinni og
frá æsku hef ég verið mjög heillaður
af öllu þessu dularfulla og skrýtna í
kringum okkur.“
Ólst upp við drauga
Símon er frá Akureyri og var
mjög meðvitaður um drauga í æsku.
Hann bendir á að flestar drauga-
sögur sé að finna á Snæfellsnesi,
Ströndum og Norðurlandi. Að vísu
geti það verið vegna mismunandi
áhuga þeirra sem söfnuðu sög-
um fyrir til dæmis Jón Árnason,
að sumir hafi verið duglegri að
safna sögum en aðrir. „Þarna
virðast samt vera heitu blettirnir á
landinu.“
Meistaraprófsritgerð Símonar í
þjóðfræði, sem hann lærði í Noregi,
er um eyfirska drauga. Hann fann
120 drauga í 80 sögum frá svæðinu
og skrifaði út frá því með spurn-
inguna hvað gerir mann að draug
sem útgangspunkt. Hann segir
að þeir sem deyi af slysförum eða
ósáttir verði gjarnan draugar, en
þeir sem deyi úr elli eða venjulegum
veikindum fari yfirleitt ekki á stjá.
Illskeyttustu draugarnir séu þeir
sem séu vaktir upp og sendir til
annarra til að gera þeim mein og
jafnvel drepa þá. „Þessir draugar
voru mest áberandi á galdratíman-
um á 18. öld,“ upplýsir hann.
Í bókinni eru draugasögur frá
fyrstu árum Íslandsbyggðar til
nútímans og á Símon erfitt með að
gera upp á milli þeirra. „Ef ég ætti
að nefna eina sögu myndi ég nefna
„Djáknann á Myrká“. Mér hefur
alltaf fundist hún vera feikilega
mögnuð.“
lTók samanum 100draugasögur úr öllum landshlutum
Draugar bornir á
borð fyrir nútímann
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Stoltur Símon Jón Jóhannsson hefur safnað saman um 100 draugasögum víða um land í eina bók